Sólin Sólin Rís 06:33 • sest 20:15 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 03:30 • Sest 19:58 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 05:06 • Síðdegis: 17:20 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 11:11 • Síðdegis: 23:42 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hvernig tala menn reiprennandi?

Guðrún Kvaran

Upprunalega spurningin var:

Hvaða reip- er átt við þegar einhver talar t.d. reiprennandi frönsku? Hvaðan er þetta upprunnið?

Að gera eitthvað reiprennandi merkir að gera eitthvað mjög auðveldlega, án erfiðismuna. Þetta gæti til dæmis átt við texta sem einhver fer með utan bókar viðstöðulaust eða talar erlent tungumál án þess að reka í vörðurnar.

Hvorugkynsorðin reip og reipi merkja ‘kaðall’ og líkingin er sótt til þess er reipi rennur viðstöðulaust úr hönk þegar togað er í það eða í gegnum lykkju. Danir nota orðið flydende ‘fljótandi’ á sama hátt, það er um eitthvað sem rennur auðveldlega.

Mynd:

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

9.9.2026

Spyrjandi

Sindri Snær Sigurðsson

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvernig tala menn reiprennandi?“ Vísindavefurinn, 9. september 2026, sótt 9. september 2026, https://visindavefur.is/svar.php?id=88518.

Guðrún Kvaran. (2026, 9. september). Hvernig tala menn reiprennandi? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=88518

Guðrún Kvaran. „Hvernig tala menn reiprennandi?“ Vísindavefurinn. 9. sep. 2026. Vefsíða. 9. sep. 2026. <https://visindavefur.is/svar.php?id=88518>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

Mynd:...