Sólin Sólin Rís 07:03 • sest 20:04 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 10:50 • Sest 07:38 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 01:06 • Síðdegis: 14:03 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 07:48 • Síðdegis: 20:16 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Er hættulegt að vera í rafmagnsbíl í eldingaveðri?

Ari Ólafsson

Elding í mótun skynjar bifreið sem holan rafleiðara með einangrandi undirlagi. Þetta eru ytra byrði bílsins annarsvegar og hjólbarðar hinsvegar. Rafstraumar, og þar með taldar eldingar, leita alltaf auðveldustu leiðar á milli póla. Bíllinn styttir vegalengdina milli rafhlaðinna skýja og jarðar, og dregur þannig eldinguna til sín. Með öðrum orðum, það eru meiri líkur á að eldingu slái niður í bílinn en næsta umhverfi hans, ef bíllinn er á flatlendi og er ekki falinn milli bygginga, trjáa eða kletta. Hjólbarðarnir einangra bílinn frá jörð og sjá til að það er ekki algengt að eldingum slái niður í bíla. En það gerist þó af og til.

En rafstraumur í eldingu hleypur eftir rafleiðandi ytra byrði bílsins, svo farþegar eru vel varðir inni í bílnum. Bílskelin beinir þannig rafstraumnum framhjá farþegum bílsins og verndar þá. Rými af þessu tagi eru kölluð Faraday-búr og eru notuð víða til að hlífa viðkvæmum rafrásum. Farþegarnir eru öruggari inni í bílnum en utan hans í eldingaveðri. Hitamyndunin vegna rafstraumsins verður mest þar sem hann brýtur sér leið í gegnum illa leiðandi hjólbarðana til jarðar.

Skemmdir á bifreiðum vegna eldinga eru helst á hjólbörðum, á viðkvæmum skynjurum eða tölvurásum. Eldingum slær helst niður í loftnet bifreiða og þeim er hætt við að bráðna. Eldsvoðar í bifreiðum af völdum eldinga eru sjaldgæfir en koma fyrir. Oftast byrja þeir í hjólbörðum.

Eldingin sér lítinn mun á bifreiðum með sprengihreyfil eða rafhreyfil. Í eldingaveðri ætti ekki að tengja rafbíla við hleðslustöð því þá er komin tenging bílsins við jörð, svo hjólbarðarnir einangra hann ekki lengur. Jarðtengingin eykur hættu á að eldingu slái niður í bílinn verulega.

Eldingin sér lítinn mun á bifreiðum með sprengihreyfil eða rafhreyfil. Báðum tegundum fylgir orkugeymsla sem er varin inni í bílskelinni. Sprengihreyflinum fylgir tankur með fljótandi eldsneyti og rafhreyflinum rafhlaða. Í báðum tilvikum er bruni í orkugeymslunni hættulegt mál.

Ekki hefur orðið vart við meiri hættu á íkveikju í orkugeymslu rafbíla en bifreiða með sprengihreyfla.

Í eldingaveðri ætti ekki að tengja rafbíla við hleðslustöð því þá er komin tenging bílsins við jörð, svo hjólbarðarnir einangra hann ekki lengur. Jarðtengingin eykur hættu á að eldingu slái niður í bílinn verulega.

Myndir:

Höfundur

Ari Ólafsson

dósent emeritus í eðlisfræði við HÍ

Útgáfudagur

27.3.2026

Spyrjandi

Lára Stefánsdóttir

Tilvísun

Ari Ólafsson. „Er hættulegt að vera í rafmagnsbíl í eldingaveðri?“ Vísindavefurinn, 27. mars 2026, sótt 27. mars 2026, https://visindavefur.is/svar.php?id=88523.

Ari Ólafsson. (2026, 27. mars). Er hættulegt að vera í rafmagnsbíl í eldingaveðri? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=88523

Ari Ólafsson. „Er hættulegt að vera í rafmagnsbíl í eldingaveðri?“ Vísindavefurinn. 27. mar. 2026. Vefsíða. 27. mar. 2026. <https://visindavefur.is/svar.php?id=88523>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

Myndir:...