Sólin Sólin Rís 04:39 • sest 22:12 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 00:00 • Sest 00:00 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 09:41 • Síðdegis: 22:06 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 03:41 • Síðdegis: 15:35 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hver er uppruni hugtaksins smjörklípa í stjórnmálum?

Guðrún Kvaran

Upprunalega spurningin hljóðaði svona:

Hver er uppruni hugtaksins í stjórnmálum um „smjörklípu“ og hvernig kom það til?

Nafnorðið smjörklípa merkir ‘öng eða lítill biti af smjöri’. Á netinu má finna frásögn hafða eftir Davíð Oddssyni fyrrum borgarstjóra og forsætisráðherra í sjónvarpsviðtali þar sem hann notaði orðið smjörklípa. Sagði hann að á heimili móður hans hefði verið köttur og hefði hann látið ófriðlega hefði hún klínt á hann smjörklípu. Kötturinn hefði þurft langan tíma til að hreinsa smjörið úr feldinum og var til friðs á meðan. Ekki fylgdi sögunni hvort kötturinn naut þess að sleikja smjörið. Davíð mun í sjónvarpsviðtali hafa sagt frá því að honum hafi líkað smjörklípuaðferðin vel og nýtt sér hana á sínum stjórnmálaferli. Með því að kasta einhverju fram og klína á andstæðinginn drap hann umræðunni á dreif um tíma á meðan sá hinn sami þurfti tíma til að verja sig.

Sambærilegt hugtak í ensku er red herring (rauð síld). Það er notað í stjórnmálaumræðu þegar einhver skýtur inn í umræðuna villandi athugasemd sem dregur athyglina frá því sem verið er að tala um.

Á netinu má finna frásögn hafða eftir Davíð Oddssyni fyrrum borgarstjóra og forsætisráðherra í sjónvarpsviðtali þar sem hann notaði orðið smjörklípa.

Ekki kom fram hvort heimilisketti móður Davíðs þótti smjörið gott en hér á árum áður þegar lítill matur var til og jafnvel enginn hefði mörgum þótt gott að sleikja smjörklípu eins og fram kemur í sögu af tveimur vergangskonum í Þjóðsögum Jóns Árnasonar (V:356–357). Önnur var orðin mjög hrum og treysti sér ekki til að halda lengra og sagði við þá hraustari: „Blessuð mín, ef þú kannt að koma í himnaríki þá skilaðu kveðju minni til hennar sánkti Maríá og segðu henni að nú sé ég orðin aumingi og hefði ég verið nær henni hefði ég beðið hana að gefa mér smjörklípu eða tóbakslauf í nösina.“

Heimild og myndir :

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

7.5.2026

Spyrjandi

Einar Gunnar Thoroddsen

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hver er uppruni hugtaksins smjörklípa í stjórnmálum?“ Vísindavefurinn, 7. maí 2026, sótt 7. maí 2026, https://visindavefur.is/svar.php?id=88557.

Guðrún Kvaran. (2026, 7. maí). Hver er uppruni hugtaksins smjörklípa í stjórnmálum? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=88557

Guðrún Kvaran. „Hver er uppruni hugtaksins smjörklípa í stjórnmálum?“ Vísindavefurinn. 7. maí. 2026. Vefsíða. 7. maí. 2026. <https://visindavefur.is/svar.php?id=88557>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

=

Hver er uppruni hugtaksins smjörklípa í stjórnmálum?
Upprunalega spurningin hljóðaði svona:

Hver er uppruni hugtaksins í stjórnmálum um „smjörklípu“ og hvernig kom það til?

Nafnorðið smjörklípa merkir ‘öng eða lítill biti af smjöri’. Á netinu má finna frásögn hafða eftir Davíð Oddssyni fyrrum borgarstjóra og forsætisráðherra í sjónvarpsviðtali þar sem hann notaði orðið smjörklípa. Sagði hann að á heimili móður hans hefði verið köttur og hefði hann látið ófriðlega hefði hún klínt á hann smjörklípu. Kötturinn hefði þurft langan tíma til að hreinsa smjörið úr feldinum og var til friðs á meðan. Ekki fylgdi sögunni hvort kötturinn naut þess að sleikja smjörið. Davíð mun í sjónvarpsviðtali hafa sagt frá því að honum hafi líkað smjörklípuaðferðin vel og nýtt sér hana á sínum stjórnmálaferli. Með því að kasta einhverju fram og klína á andstæðinginn drap hann umræðunni á dreif um tíma á meðan sá hinn sami þurfti tíma til að verja sig.

Sambærilegt hugtak í ensku er red herring (rauð síld). Það er notað í stjórnmálaumræðu þegar einhver skýtur inn í umræðuna villandi athugasemd sem dregur athyglina frá því sem verið er að tala um.

Á netinu má finna frásögn hafða eftir Davíð Oddssyni fyrrum borgarstjóra og forsætisráðherra í sjónvarpsviðtali þar sem hann notaði orðið smjörklípa.

Á netinu má finna frásögn hafða eftir Davíð Oddssyni fyrrum borgarstjóra og forsætisráðherra í sjónvarpsviðtali þar sem hann notaði orðið smjörklípa.

Ekki kom fram hvort heimilisketti móður Davíðs þótti smjörið gott en hér á árum áður þegar lítill matur var til og jafnvel enginn hefði mörgum þótt gott að sleikja smjörklípu eins og fram kemur í sögu af tveimur vergangskonum í Þjóðsögum Jóns Árnasonar (V:356–357). Önnur var orðin mjög hrum og treysti sér ekki til að halda lengra og sagði við þá hraustari: „Blessuð mín, ef þú kannt að koma í himnaríki þá skilaðu kveðju minni til hennar sánkti Maríá og segðu henni að nú sé ég orðin aumingi og hefði ég verið nær henni hefði ég beðið hana að gefa mér smjörklípu eða tóbakslauf í nösina.“

Heimild og myndir :...