Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!
Keflavíkurflugvöllur á rætur sínar að rekja til síðari heimsstyrjaldarinnar, en mikilvægt er að gera greinarmun á byggingu flugvallarins og þeirri herstöð sem síðar var þar. Bandaríkjaher hóf framkvæmdir við flugvelli á Reykjanesi árið 1942, eftir að Bandaríkin höfðu tekið við vörnum Íslands af Bretum. Fyrri völlurinn, Patterson Field á Njarðvíkurheiði, var tekinn í notkun árið 1942 en Meeks Field á Miðnesheiði árið 1943. Meeks Field var með fjórum flugbrautum og varð síðar Keflavíkurflugvöllur.[1]
Á þessum tíma var þegar til flugvöllur í Reykjavík. Bretar höfðu hafið gerð Reykjavíkurflugvallar skömmu eftir hernám Íslands í maí 1940 og hann var tekinn í notkun árið 1941.[2] Þegar Bandaríkjamenn tóku við vörnum landsins jókst hins vegar þörf fyrir stærri og betri flugbrautir en flugvöllurinn í Reykjavík hentaði illa fyrir stórar eftirlits- og sprengjuflugvélar Bandaríkjamanna. Bæði Bretar og Bandaríkjamenn höfðu gert athuganir á svæðum til flugvallargerðar og fljótlega kom í ljós að landslag á Reykjanesi, sem og nálægðin við Reykjavík hentaði vel fyrir stóran flugvöll.[3]
Skömmu eftir hernám Íslands í maí 1940 hófu Bretar gerð Reykjavíkurflugvallar og var hann tekinn í notkun árið 1941. Hann hentaði hins vegar illa fyrir stórar eftirlits- og sprengjuflugvélar Bandaríkjamanna.
Á Miðnesheiði var tiltölulega opið land fyrir langar flugbrautir og umfangsmikil mannvirki sem fylgdu stórum herflugvelli. Í Reykjavík var svigrúmið minna. Reykjavíkurflugvöllur lá í Vatnsmýrinni nærri byggð og lega hans takmarkaði möguleika á frekari stækkun.[4] Þessi munur varð síðar mikilvægur þegar rætt var um framtíð flugvallanna tveggja.[5]
Staðsetning Keflavíkurflugvallar tengdist einnig hlutverki Íslands í flugsamgöngum yfir Norður-Atlantshaf. Keflavíkurflugvöllur varð mikilvæg viðkomustöð fyrir bandarískar herflugvélar á leið milli Norður-Ameríku og Evrópu. Umfang starfseminnar var mikið en um 15.000 bandarískum herflugvélum og að minnsta kosti 9.000 breskum og kanadískum flugvélum var flogið yfir Norður-Atlantshaf til Evrópu í síðari heimsstyrjöld.[6]
Það var þó alls ekki sjálfgefið við stríðslok að Keflavík yrði áfram helsti millilandaflugvöllur landsins. Almennt flug um Keflavíkurflugvöll hófst sumarið 1945 og Ísland varð mikilvægur áningarstaður á norðurflugleiðinni yfir Atlantshaf. En árið 1946, þegar samið var við Bandaríkin um áframhaldandi afnot þeirra af Keflavíkurflugvelli, var hart deilt um framtíð flugvallanna. Íslensk flugmálayfirvöld vildu að Reykjavíkurflugvöllur yrði aðalflugvöllur landsins og að Keflavíkurflugvöllur yrði aðeins rekinn sem varaflugvöllur. Andstæðingar Keflavíkursamningsins héldu því meðal annars fram að hægt væri að stækka Reykjavíkurflugvöll þannig að hann uppfyllti kröfur til Atlantshafsflugvallar. Um leið var bent á kostnaðinn við að reka tvo stóra flugvelli.[7]
Gamla flugstöðin á Keflavíkurflugvelli, mynd frá 1955.
Keflavíkurflugvöllur var afhentur Íslendingum til eignar 25. október árið 1946 og þróaðist svo í aðalmillilandaflugvöll Íslands en Reykjavíkurflugvöllur varð fyrst og fremst miðstöð innanlandsflugs. Keflavíkurflugvöllur hafði jafnframt áfram mikla hernaðarlega þýðingu fyrir Bandaríkin.
Í umræðu um flugvöllinn er nauðsynlegt að greina á milli flugvallarins og herstöðvarinnar sem þar var. Bandarískt herlið fór frá Íslandi eftir stríð og samkvæmt Keflavíkursamningnum frá 1946 fengu Bandaríkjamenn áfram ákveðin afnot af flugvellinum. Það var síðan með varnarsamningi Íslands og Bandaríkjanna árið 1951 sem bandarískt herlið kom aftur til landsins og varanleg herstöð varð til á Keflavíkurflugvelli. Fram að þeim tíma, á árunum 1946–1951 höfðu andstæðingar Keflavíkursamningsins þó haldið því fram að vera bandarískra starfsmanna flugvallarfélagsins á Keflavíkurflugvelli jafngilti því að hann væri dulbúin herstöð Bandaríkjamanna.[8]
Staðsetning Keflavíkurflugvallar á Miðnesheiði mótaðist fyrst og fremst af þörfum heimsstyrjaldarinnar. Þá var flugleiðin yfir Norður-Atlantshaf orðin svo hernaðarlega mikilvæg að það þurfti stóran flugvöll og landrými fyrir umfangsmikil flugmannvirki. Að stríðinu loknu öðlaðist staðurinn síðan nýja þýðingu í samskiptum Íslands og Bandaríkjanna og að lokum í varnarkerfi NATO á Norður-Atlantshafi.
Tilvísanir:
^ Arnþór Gunnarsson, Saga flugvalla og flugleiðsögu á Íslandi, bls. 74–75.
^ Arnþór Gunnarsson, Saga flugvalla og flugleiðsögu á Íslandi, bls. 51–61.
^ Friðþór Eydal, Frá heimsstyrjöld til herverndar, bls. 33–37.
^ Friðþór Eydal, Frá heimsstyrjöld til herverndar, bls. 34.
Rósa Magnúsdóttir. „Hvers vegna var ákveðið að reisa flugvöll og herstöð í Keflavík, en ekki nær höfuðborginni?“ Vísindavefurinn, 27. nóvember 2026, sótt 27. nóvember 2026, https://visindavefur.is/svar.php?id=89295.
Rósa Magnúsdóttir. (2026, 27. nóvember). Hvers vegna var ákveðið að reisa flugvöll og herstöð í Keflavík, en ekki nær höfuðborginni? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=89295
Rósa Magnúsdóttir. „Hvers vegna var ákveðið að reisa flugvöll og herstöð í Keflavík, en ekki nær höfuðborginni?“ Vísindavefurinn. 27. nóv. 2026. Vefsíða. 27. nóv. 2026. <https://visindavefur.is/svar.php?id=89295>.