Sólin Sólin Rís 09:43 • sest 16:40 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 00:00 • Sest 00:00 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 07:17 • Síðdegis: 19:32 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 01:02 • Síðdegis: 13:32 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hvers vegna er sagt að maður sé „heitinn“ þegar maður er dáinn?

Guðrún Kvaran

Heitinn er lýsingarháttur þátíðar af sögninni heita sem merkir meðal annars ‘nefnast tilteknu nafni, vera kallaður; gefa nafn, skíra …’ . Jón heitinn er látinn en hann hét Jón í lifanda lífi og sama er að segja um Guðrúnu heitna, látna konu sem hét Guðrún í lifanda lífi. Elst dæmi í Ritmálssafni Orðabókar Háskólans er úr Íslensku fornbréfasafni frá miðri 16. öld:

var þetta epter Þorgerdi heitna fra fallna

Sambærilegt finn ég ekki í nágrannamálum en í sænsku og dönsku er notað orðið salig sem er sama orð og sálugur. Sálugur er tökuorð í íslensku, sennilega úr miðlágþýsku í gegnum dönsku og er notað til jafns við heitinn.

Heimild og mynd:
  • Ritmálssafn Orðabókar Háskólans. Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. https://ritmalssafn.arnastofnun.is
  • Yfirlitsmynd: Emilía Dagný Sveinbjörnsdóttir.

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

11.11.2026

Spyrjandi

Lísa

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvers vegna er sagt að maður sé „heitinn“ þegar maður er dáinn?“ Vísindavefurinn, 11. nóvember 2026, sótt 11. nóvember 2026, https://visindavefur.is/svar.php?id=89711.

Guðrún Kvaran. (2026, 11. nóvember). Hvers vegna er sagt að maður sé „heitinn“ þegar maður er dáinn? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=89711

Guðrún Kvaran. „Hvers vegna er sagt að maður sé „heitinn“ þegar maður er dáinn?“ Vísindavefurinn. 11. nóv. 2026. Vefsíða. 11. nóv. 2026. <https://visindavefur.is/svar.php?id=89711>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

...