Sólin Sólin Rís 08:42 • sest 17:41 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 16:56 • Sest 04:33 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 04:24 • Síðdegis: 16:37 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:34 • Síðdegis: 22:52 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Eru hraun jarðar í stöðugri hringrás?

JGÞ

Öll spurningin hljóðaði svona:

Hraunið sem kemur upp úr eldgosum hérlendis. Er það að koma upp á yfirborð jarðar í fyrsta skipti eða hefur það áður verið á yfirborðinu? Er hringrás á þessu ferli?

Stutta svarið er einfaldlega já, svonefnd hafsbotnsskorpa er í sífelldri hringrás á jörðinni. Hún eyðist á niðurstreymisbeltum og myndast á rekhryggjum.

Yfirborð kjarna jarðar er mun heitara en möttullinn fyrir ofan. Efnið sem liggur neðst í möttlinum, næst kjarnanum, er heitara og þar með eðlisléttara en efnið sem er ofar í möttlinum. Eðlisléttara efnið stígur upp í formi möttulstróka en kaldara efni sígur niður að kjarnanum. Þessi hringrás efnisins birtist á yfirborði jarðar í flekareki, það er í hreyfingu skorpuflekanna.

Skýringarmynd af innri gerð jarðar. Yfirborð kjarna jarðar er heitara en möttullinn. Efni í möttlinum sem liggur næst kjarnanum stígur upp í formi möttulstróka en kaldara efni, fyrrum hafsbotnsskorpa, sígur niður. Á yfirborði jarðar birtist þessi hringrás í flekareki.

Hafsbotnsskorpan er stöðugt að myndast á rekhryggjum og eyðast á niðurstreymisbeltum. Þar sem flekana rekur saman myndast svonefnd sökkbelti. Þau einkennast af djúprennu eða djúpál þeim megin sem hafsbotninn er, en af fellingafjöllum eða eyjabogum landmegin.

Þessi hringrás efnisins hófst væntanlega snemma í ævi jarðarinnar. Elstu þekktu jarðmyndanir eru 4,03–4,16 milljarða ára en aldur jarðarinnar er um 4,5 milljarðar.

Nánar má fræðast um hringrás hafsbotnsskorpunnar í tengdum svörum hér fyrir neðan. Þetta svar byggir alfarið á þeim.

Myndir:

Höfundur

Jón Gunnar Þorsteinsson

bókmenntafræðingur og ritstjóri Vísindavefsins

Útgáfudagur

23.10.2026

Spyrjandi

Guðni Baldur Gíslason

Tilvísun

Jón Gunnar Þorsteinsson. „Eru hraun jarðar í stöðugri hringrás?“ Vísindavefurinn, 23. október 2026, sótt 23. október 2026, https://visindavefur.is/svar.php?id=89816.

Jón Gunnar Þorsteinsson. (2026, 23. október). Eru hraun jarðar í stöðugri hringrás? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=89816

Jón Gunnar Þorsteinsson. „Eru hraun jarðar í stöðugri hringrás?“ Vísindavefurinn. 23. okt. 2026. Vefsíða. 23. okt. 2026. <https://visindavefur.is/svar.php?id=89816>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

Myndir:...