Sólin Sólin Rís 10:02 • sest 16:22 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 15:26 • Sest 24:23 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 11:49 • Síðdegis: 24:27 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 05:14 • Síðdegis: 18:18 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hvað er vitað um nýju kattartegundina sem nýlega fannst í Suður-Ameríku?

Jón Már Halldórsson

Á haustmánuðum 2026 bárust fréttir af því að nýrri kattartegund hefði verið lýst vísindalega og er það fyrsta lýsingin á áður óþekktri núlifandi kattartegund í rúma öld. Tegundin hefur fengið latneska heitið Leopardus tilcayo (e. tilcayo) og er náskyld tegundinni Leopardus tigrinus (e. oncilla), sem er nokkuð útbreidd í norðurhluta Suður-Ameríku. Síðarnefnda tegundin hefur stundum verið kölluð tígurköttur á íslensku en nýja tegundin hefur enn ekki fengið íslenskt heiti.

Í Suður-Ameríku eru nokkrar tegundir smávaxinna katta af ættkvíslinni Leopardus. Nýja tegundin á heimkynni sín í Yungas-skóglendinu í austurhlíðum Andesfjalla í Bólivíu. Þótt tegundinni hafi ekki áður verið lýst vísindalega hafa heimamenn lengi þekkt til kattarins og kallað hann tilcayo. Það heiti var síðan tekið upp sem vísindalegt tegundarheiti.

Árið 2017 hófst atburðarás sem leiddi að lokum til þess að kettinum var lýst sem sérstakri tegund. Það ár setti dýraathvarfið Senda Verde í Bólivíu sig í samband við bólivíska líffræðinginn Paolu Nogales-Ascarrunz, sem hefur sérhæft sig í rannsóknum á villtum kattardýrum. Köttur nokkur hafði fundist um ári fyrr og var í fyrstu álitið að hann væri kettlingur heimiliskattar. Dýrið reyndist hins vegar ekki vel sem gæludýr og var þá farið með það í athvarfið. Nogales-Ascarrunz taldi í upphafi að um væri að ræða tígurkött með nokkuð sérstakt útlit en við nánari skoðun fóru að vakna hjá henni efasemdir. Erfðarannsóknir alþjóðlegs hóps vísindamanna leiddu síðan í ljós að um væri að ræða áður óþekkta tegund. Samkvæmt rannsóknum greindist L. tilcayo frá nánustu ættingjum sínum fyrir um 1,4 milljónum ára.

<em>Leopardus tilcayo</em> er fyrsta nýja kattartegundin sem lýst hefur verið vísindalega í rúma öld.

Leopardus tilcayo er fyrsta nýja kattartegundin sem lýst hefur verið vísindalega í rúma öld.

L. tilcayo er smávaxinn villiköttur, minni en margir heimiliskettir. Samkvæmt tegundarlýsingu eru höfuð og bolur samtals 42,5–50,5 cm að lengd og rófan 25–26,5 cm. Þyngd eins rannsakaðs einstaklings var um 1,4 kg. Hann er grannvaxinn og feldurinn ljósbrúnn með stórum, óreglulegum, dökkum rósettum, ekki ósvipað og hjá hlébarðakettinum (Pardofelis marmorata) og hinum miklu stærri, fjarskylda ættingja hans, jagúarnum (Panthera onca).

Þar sem L. tilcayo hefur svo nýlega verið lýst sem sérstakri tegund er afar lítið vitað um hana. Þó hafa fundist leifar smárra nagdýra í saur kattarins sem benda til þess að þau séu hluti af fæðu hans.

Ekki er vitað hversu margir einstaklingar tilheyra tegundinni eða hversu útbreidd hún er og því hefur enn ekki verið hægt að meta verndarstöðu hennar. Búsvæðum kattarins stafar þó ógn af skógareyðingu og breyttri landnotkun, meðal annars vegna útþenslu landbúnaðar. Frekari rannsóknir á útbreiðslu og lífsháttum tegundarinnar eru því mikilvægar til að hægt sé að meta stöðu hennar og verndarþörf.

Heimildir og myndir:

Höfundur

Jón Már Halldórsson

líffræðingur

Útgáfudagur

17.11.2026

Spyrjandi

Guðrún

Tilvísun

Jón Már Halldórsson. „Hvað er vitað um nýju kattartegundina sem nýlega fannst í Suður-Ameríku?“ Vísindavefurinn, 17. nóvember 2026, sótt 17. nóvember 2026, https://visindavefur.is/svar.php?id=89907.

Jón Már Halldórsson. (2026, 17. nóvember). Hvað er vitað um nýju kattartegundina sem nýlega fannst í Suður-Ameríku? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=89907

Jón Már Halldórsson. „Hvað er vitað um nýju kattartegundina sem nýlega fannst í Suður-Ameríku?“ Vísindavefurinn. 17. nóv. 2026. Vefsíða. 17. nóv. 2026. <https://visindavefur.is/svar.php?id=89907>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

=

Hvað er vitað um nýju kattartegundina sem nýlega fannst í Suður-Ameríku?
Á haustmánuðum 2026 bárust fréttir af því að nýrri kattartegund hefði verið lýst vísindalega og er það fyrsta lýsingin á áður óþekktri núlifandi kattartegund í rúma öld. Tegundin hefur fengið latneska heitið Leopardus tilcayo (e. tilcayo) og er náskyld tegundinni Leopardus tigrinus (e. oncilla), sem er nokkuð útbreidd í norðurhluta Suður-Ameríku. Síðarnefnda tegundin hefur stundum verið kölluð tígurköttur á íslensku en nýja tegundin hefur enn ekki fengið íslenskt heiti.

Í Suður-Ameríku eru nokkrar tegundir smávaxinna katta af ættkvíslinni Leopardus. Nýja tegundin á heimkynni sín í Yungas-skóglendinu í austurhlíðum Andesfjalla í Bólivíu. Þótt tegundinni hafi ekki áður verið lýst vísindalega hafa heimamenn lengi þekkt til kattarins og kallað hann tilcayo. Það heiti var síðan tekið upp sem vísindalegt tegundarheiti.

Árið 2017 hófst atburðarás sem leiddi að lokum til þess að kettinum var lýst sem sérstakri tegund. Það ár setti dýraathvarfið Senda Verde í Bólivíu sig í samband við bólivíska líffræðinginn Paolu Nogales-Ascarrunz, sem hefur sérhæft sig í rannsóknum á villtum kattardýrum. Köttur nokkur hafði fundist um ári fyrr og var í fyrstu álitið að hann væri kettlingur heimiliskattar. Dýrið reyndist hins vegar ekki vel sem gæludýr og var þá farið með það í athvarfið. Nogales-Ascarrunz taldi í upphafi að um væri að ræða tígurkött með nokkuð sérstakt útlit en við nánari skoðun fóru að vakna hjá henni efasemdir. Erfðarannsóknir alþjóðlegs hóps vísindamanna leiddu síðan í ljós að um væri að ræða áður óþekkta tegund. Samkvæmt rannsóknum greindist L. tilcayo frá nánustu ættingjum sínum fyrir um 1,4 milljónum ára.

<em>Leopardus tilcayo</em> er fyrsta nýja kattartegundin sem lýst hefur verið vísindalega í rúma öld.

Leopardus tilcayo er fyrsta nýja kattartegundin sem lýst hefur verið vísindalega í rúma öld.

L. tilcayo er smávaxinn villiköttur, minni en margir heimiliskettir. Samkvæmt tegundarlýsingu eru höfuð og bolur samtals 42,5–50,5 cm að lengd og rófan 25–26,5 cm. Þyngd eins rannsakaðs einstaklings var um 1,4 kg. Hann er grannvaxinn og feldurinn ljósbrúnn með stórum, óreglulegum, dökkum rósettum, ekki ósvipað og hjá hlébarðakettinum (Pardofelis marmorata) og hinum miklu stærri, fjarskylda ættingja hans, jagúarnum (Panthera onca).

Þar sem L. tilcayo hefur svo nýlega verið lýst sem sérstakri tegund er afar lítið vitað um hana. Þó hafa fundist leifar smárra nagdýra í saur kattarins sem benda til þess að þau séu hluti af fæðu hans.

Ekki er vitað hversu margir einstaklingar tilheyra tegundinni eða hversu útbreidd hún er og því hefur enn ekki verið hægt að meta verndarstöðu hennar. Búsvæðum kattarins stafar þó ógn af skógareyðingu og breyttri landnotkun, meðal annars vegna útþenslu landbúnaðar. Frekari rannsóknir á útbreiðslu og lífsháttum tegundarinnar eru því mikilvægar til að hægt sé að meta stöðu hennar og verndarþörf.

Heimildir og myndir: ...