Sólin Sólin Rís 05:26 • sest 21:28 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 21:24 • Sest 05:22 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 06:10 • Síðdegis: 18:30 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 00:11 • Síðdegis: 12:20 í Reykjavík

Er hægt að skipta um kennitölu?

Emelía Eiríksdóttir

Í stuttu máli, nei.

Kennitala er 10 tölustafa auðkennisnúmer sem við notum til að auðkenna okkur í viðskiptum og samskiptum við hvert annað. Hver kennitala er því einstök.

Þegar einstaklingi hefur verið úthlutuð kennitala fylgir hún honum um alla ævi. Undantekning á þessu getur verið ef einstaklingurinn hefur fengið ranga kennitölu úthlutaða í upphafi, til dæmis ef fæðingardagur hans er rangur í kennitölunni; ef það gerist þá fær viðkomandi aðra kennitölu um leið og mistökin uppgötvast.

Einstaklingi er hins vegar heimilt að skipta um nafn, en einungis einu sinni, nema ærin ástæða liggi að baki. Þjóðskrá Íslands hefur alfarið séð um nafnabreytingar frá 6. apríl 2011 þegar breytingar á lögum um mannanöfn (nr. 45/1996) tóku gildi.

Heimildir:

Höfundur

Emelía Eiríksdóttir

efnafræðingur og starfsmaður Vísindavefsins

Útgáfudagur

12.12.2011

Spyrjandi

Arnór Freyr

Tilvísun

Emelía Eiríksdóttir. „Er hægt að skipta um kennitölu?“ Vísindavefurinn, 12. desember 2011. Sótt 23. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=9587.

Emelía Eiríksdóttir. (2011, 12. desember). Er hægt að skipta um kennitölu? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=9587

Emelía Eiríksdóttir. „Er hægt að skipta um kennitölu?“ Vísindavefurinn. 12. des. 2011. Vefsíða. 23. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=9587>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

Heimildir:...