Sólin Sólin Rís 02:55 • sest 24:04 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 00:00 • Sest 00:00 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 04:09 • Síðdegis: 16:41 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:25 • Síðdegis: 23:05 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Breytist kennitala einstaklings ef hann skiptir um kyn?

JGÞ

Upprunalega spurningin hljóðaði svona:

Sæl verið þið. Nú skiptir einstaklingur um kyn. Breytist kennitalan við það?

Kennitala er tíu stafa auðkennisnúmer sem allir einstaklingar skráðir hjá Þjóðskrá Íslands hafa. Hver kennitala er einstök, en það merkir að engar tvær kennitölur eru eins. Öll börn sem fæðast á Íslandi fá sjálfkrafa kennitölu þegar þau eru skráð í tölvukerfi fæðingarstofnunar.

Fyrstu sex stafir kennitölu eru einfaldlega fæðingardagur, mánuður og ár viðkomandi einstaklings, allt skráð með tveimur tölustöfum. Síðan koma tveir tölustafir sem hafa enga merkingu, þá svonefnd vartala og seinasta talan táknar öldina sem viðkomandi fæddist á.

Af þessu sést að kyn fólks er ekki hluti af kennitölunni og því er engin þörf á nýrri kennitölu ef skráningu á kyni fólks er breytt. Enda eru kennitölubreytingar ekki leyfðar nema í undantekningartilfellum, til dæmis ef einstaklingur fær ranga kennitölu í upphafi. Það gæti gerst ef fæðingardagurinn er vitlaus í kennitölunni.

Heimildir:

Mynd:

Höfundur

Jón Gunnar Þorsteinsson

bókmenntafræðingur og ritstjóri Vísindavefsins

Útgáfudagur

23.6.2025

Spyrjandi

Sævaldur Elíasson

Tilvísun

JGÞ. „Breytist kennitala einstaklings ef hann skiptir um kyn?“ Vísindavefurinn, 23. júní 2025, sótt 23. júní 2025, https://visindavefur.is/svar.php?id=87887.

JGÞ. (2025, 23. júní). Breytist kennitala einstaklings ef hann skiptir um kyn? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=87887

JGÞ. „Breytist kennitala einstaklings ef hann skiptir um kyn?“ Vísindavefurinn. 23. jún. 2025. Vefsíða. 23. jún. 2025. <https://visindavefur.is/svar.php?id=87887>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

Mynd:...