Sólin Sólin Rís 05:15 • sest 21:38 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 01:18 • Sest 04:30 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 07:36 • Síðdegis: 19:53 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 01:39 • Síðdegis: 13:42 í Reykjavík

Ég fann ögn loðið skordýr í hveitipoka, getið þið sagt mér hvað dýrið heitir?

Jón Már Halldórsson

Upprunlega spurningin hljóðaði svo:
Þegar ég var við brauðbakstur í sumarbústaðnum fann ég lítið sníkjudýr í hveitipokanum. Skordýrið er á stærð við hrísgrjón eða um 0,5-1,0 cm. Það hefur margar fætur og er ögn loðið. Örmjó hár koma svo framan og aftan úr dýrinu, sem er með ljósbrúna skel og gæti líkst pínulítilli humarskel. Einnig fundum við horn í hveitiskúffunni þar sem nánast einungis voru „skeljar“ eða svæði þar sem dýrið hafði skipt um ham. Meðfylgjandi myndir sýna þetta vel.

Lirfa hamgæru eða hambjöllu í hveitipokanum.

Myndirnar sem spyrjandi sendi sýna lirfur hamgæru eða hambjöllu (Reesa vespulae). Þessi bjalla er af svokallaðri fleskbjölluætt (Dermestidae) og er nokkuð algengt meindýr í heimahúsum víða um land. Nafn bjöllunar er dregið af hamskiptum hennar eins og fram kemur í svari sama höfundar við spurningunnu: Hvað er hambjalla? Því þrífst hún í hýbýlum manna? Getur hún valdið skaða? Á lirfustigi skiptir bjallan um ham 5-7 sinnum. Fyrst var þessarar bjöllu vart árið 1974 og mun hún hafa dreifst hratt út um landið.

Hamgærur éta meðal annars kornmeti, harðfisk og aðra þurrvöru.

Hamgærur geta verið nokkuð miklir skaðvaldar á skinnvöru, auk þess sem dýrasöfn geta orðið fyrir tjóni af þeirra völdum. Þær éta einnig kornmeti, harðfisk og aðra þurrvöru.

Nafnið hambjalla er dregið af hamskiptum hennar. Meðan hún er á lirfustiginu skiptir bjallan um ham 5-7 sinnum og skilur haminn eftir þar sem hún hefur verið.

Talið er að lífsferill hamgærunnar taki eitt ár. Hvert dýr verpir allt að 20 eggjum og er klaktíminn um tvær vikur. Úr eggjunum koma lirfur en lirfutíminn er mislangur. Ræðst hann af aðstæðum hverju sinni en lirfurnar geta verið án vatns og næringar í marga mánuði sem lengir lirfutímann. Því næst púpa dýrin sig og úr púpunum koma bjöllur sem fólk oft sér dauðar í gluggum á vorin og sumrin.

Myndir:
  • Þór Blöndahl Arngrímsson.

Höfundur

Jón Már Halldórsson

líffræðingur

Útgáfudagur

27.10.2016

Spyrjandi

Þór Blöndahl Arngrímsson

Tilvísun

Jón Már Halldórsson. „Ég fann ögn loðið skordýr í hveitipoka, getið þið sagt mér hvað dýrið heitir?“ Vísindavefurinn, 27. október 2016. Sótt 26. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=72867.

Jón Már Halldórsson. (2016, 27. október). Ég fann ögn loðið skordýr í hveitipoka, getið þið sagt mér hvað dýrið heitir? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=72867

Jón Már Halldórsson. „Ég fann ögn loðið skordýr í hveitipoka, getið þið sagt mér hvað dýrið heitir?“ Vísindavefurinn. 27. okt. 2016. Vefsíða. 26. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=72867>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

...