Spurning
Hvað tilheyrir þeim kvæðum sem kölluð eru eddukvæði?
Spyrjandi
Eva Þórdís Ebenezersdóttir, Helga Rún Garðarsdóttir, f. 1991
Svar
Hugtakið eddukvæði er notað um fornan norrænan kveðskap sem flestur er ortur undir fornyrðislagi og er ekki eignaður höfundum.Hefð er fyrir því að skipta eddukvæðum í tvennt:
- goðakvæði
- hetjukvæði
Aðgreining eddukvæða á rætur að rekja til meginhandrits kvæðanna, Konungsbókar eddukvæða, sem er talin vera skrifuð á árunum 1265-1280. Þar koma goðakvæði á undan hetjukvæðum, með einni undantekningu þó, Völundarkviða sem telst til hetjukvæða er á undan Alvíssmálum sem er goðakvæði.
Goðakvæðin eru þessi:
- Völuspá
- Hávamál
- Vafþrúðnismál
- Grímnismál
- Skírnismál
- Hárbarðsljóð
- Hymniskviða
- Lokasenna
- Þrymskviða
- Alvíssmál
- Baldurs draumar
- Rígsþula
- Hyndluljóð
Helstu hetjukvæðin eru þessi:
- Völundarkviða
- Helgakviða Hundingsbana I og II
- Grípisspá
- Sigurdrífumál
- Helgakviða Hjörvarðssonar
- Reginsmál
- Fáfnismál
- Brot af Sigurðarkviðu, einnig nefnd Sigurðarkviða hin forna
- Sigurðarkviða hin skamma
- Helreið Brynhildar
- Guðrúnarkviða I, II og III
- Oddrúnargrátur
- Guðrúnarhvöt
- Atlakviða
- Atlamál
- Hamðismál
- Hlöðskviða, í Heiðreks sögu
- Dánaróður Hildibrands, í Ásmundar sögu kappabana
- Dánaróður Hjálmars, í Heiðreks sögu og Hervarar og í Örvar-Odds sögu
- Víkarsbálkur í Gautreks sögu
- Vésteinn Ólason, "Eddukvæði", í Íslensk bókmenntasaga I, Mál og menning, Reykjavík 1992, bls. 75-187.
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur29.9.2004
Flokkun:
Efnisorð
Tilvísun
JGÞ. „Hvað tilheyrir þeim kvæðum sem kölluð eru eddukvæði?“. Vísindavefurinn 29.9.2004. http://visindavefur.is/?id=4535. (Skoðað 19.5.2013).
Höfundur
JGÞbókmenntafræðingur og ritstjóri Vísindavefsins




