Sólin Sólin Rís 05:12 • sest 21:41 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 00:00 • Sest 00:00 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 08:09 • Síðdegis: 20:27 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 02:12 • Síðdegis: 14:14 í Reykjavík

Hvaða stimi kemur fyrir í orðinu stimamjúkur?

Guðrún Kvaran

Öll spurningin hljóðaði svona:

Er vitað hvaðan orðið „stimamjúkur“ er dregið og hvað er „stimi“ í þessu orði?

Orðið stimamjúkur merkir ‘kurteis, snúningslipur, liðugur, mjúkmáll’ samkvæmt Íslenskri orðsifjabók Ásgeirs Blöndal Magnússonar (1989:961). Hann taldi að upphafleg merking hefði tengst glímu og verið ‘glímulipurð, liðleiki’, og að forliðurinn þá tengst nafnorðinu stím ‘glíma, bardagi’. Hann taldi einkennilegt að orðið stimamjúkur virðist hafa i en ekki í í stofni en á því hafði hann enga skýringu og enga hef ég fundið. Engin dæmi voru um nafnorðið stimi í Ritmálssafni Orðabókar Háskólans.

Sá sem er stimamjúkur er ‘kurteis, snúningslipur, liðugur, mjúkmáll. Málverk eftir hollenska málarann Johannes Vermeer (1632–1675).

Heimildir:

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

11.3.2024

Spyrjandi

Ragnar Lárusson

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvaða stimi kemur fyrir í orðinu stimamjúkur?“ Vísindavefurinn, 11. mars 2024. Sótt 27. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=85899.

Guðrún Kvaran. (2024, 11. mars). Hvaða stimi kemur fyrir í orðinu stimamjúkur? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=85899

Guðrún Kvaran. „Hvaða stimi kemur fyrir í orðinu stimamjúkur?“ Vísindavefurinn. 11. mar. 2024. Vefsíða. 27. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=85899>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

...