Kolvetni, fita og prótín eru helstu næringarefni fæðunnar. Til þess að nýta þau úr fæðunni þarf að melta hana fyrst. Það felur í sér að mala hana og síðan að brjóta stórsameindir hennar niður í smásameindir sem hægt er að taka upp í gegnum þarmavegginn í blóðrásina.
Stórsameindirnar eru fjölsykrur eins og mjöl...
Ljós og rakabreytingar eru meðal þeirra umhverfisþátta sem geta valdið skemmdum á safnkosti. Þar á meðal eru ýmsar litabreytingar af völdum ljóss: gripir geta upplitast, dökknað eða gulnað. Hiti frá ljósi getur einnig valdið ofþornun og stökknun ýmissa efna. Gripir sem eru sérstaklega viðkvæmir fyrir ljósskemmdum ...
Upprunalega var spurningin svona:Ég er leikskólakennari og fékk þessa spurningu frá einum 5 ára "Hvað verður um frumur sem deyja?"Hér er einnig svarað spurningunni:Hvað er frumudauði?
Stöðug endurnýjun á sér stað á frumum í mannslíkamanum; frumur skipta sér til þess að viðhalda starfsemi í vefjum á meðan aðrar ...
Óson er sameind sem gerð er úr þremur súrefnisfrumeindum og myndast í andrúmsloftinu þegar súrefnisfrumeind (O) sameinast súrefnissameind (O2) eins og lesa má um í svari Ágústs Kvarans við spurningunni Hvernig myndast ósonlagið og er talið að það muni einhvern tímann eyðast? Óson myndast á náttúrulegan hátt og...
Hér er einnig svarað spurningunum:Af hverju verður maður andfúll?
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir það að verða andfúll eða losna við andfýlu?
Af hverju vaknar maður andfúll á morgnana þó maður hafi burstað tennurnar kvöldið áður?
Aðrir spyrjendur eru: Birna Gunnarsdóttir, Hrund Harðardóttir, Eiríkur Þorbjö...
Í galli eru gallsölt sem gegna lykilhlutverki við meltingu á fitu. Þessi mikilvægu sölt hverfa þó ekki úr líkamanum þótt gallblaðran sé fjarlægð því gallið er ekki myndað í gallblöðrunni, heldur lifrinni. Eftir myndun berst það í gallblöðruna, þar sem það er geymt og styrkt með því að fjarlægja vatn úr því. Þaðan ...
Stutta svarið er: Laktósafríar mjólkurvörur eru ekki hollari en venjulegar mjólkurvörur, enda er næringarinnihald beggja tegunda mjög svipað. Laktósafríar mjólkurvörur eru þó ákjósanlegur valkostur fyrir þá sem hafa mjólkursykuróþol.
Mjólkurvörur innihalda ýmis orku- og næringarefni. Þar á meðal er mjólkursykur...
Brennisteinstvíildi, sem einnig er nefnt brennisteinsdíoxíð, er litlaus lofttegund sem flestir finna lykt af, ef styrkurinn nær um það bil 1000 µg/m3. Allt jarðefnaeldsneyti inniheldur brennistein og er það háð uppruna og tegund eldsneytisins hve mikill hann er.
Meginhluti þess brennisteinstvíildis sem lendir a...
Þessari spurningu er hægt að svara á marga vegu. Líkaminn þarf á vatni, kolvetnum, fitu og próteinum, vítamínum og steinefnum að halda til vaxtar og viðhalds.
Án vatns lifir maðurinn ekki nema nokkra daga, en hann getur lifað margfalt lengur án matar (40-60 daga). Þá nýtir hann sér fitu og vöðvavefi líkamans s...
Upprunalega spurningin hljóðaði svona:
Mega aðstandendur sjá um undirbúning og framkvæmd útfara og þurfa líkkistur að fylgja einhverjum stöðlum?
Útför er yfirheiti og er það notað um athöfnina sjálfa. Jarðarför er einnig oft notað um athöfnina og jarðsetningu ef um kistu er að ræða en bálför ef brennt er.
...
Allar lífverur þurfa súrefni til þess að vinna orku úr fæðuefnum. Mikilvægi súrefnis hefur verið þekkt öldum saman en það er ekki fyrr en nýlega sem vísindamenn áttuðu sig á því hvernig frumur lífvera laga sig að breytingum á súrefnismagni. Nóbelsverðlaunin í læknisfræði árið 2019 tengjast þessu en þau hljóta þrír...
Spurningin í heild hljóðaði svona:Hvers vegna er gott að rækta skóg til að losna við koldíoxíð? Hvað verður um dauðan skóg, en öll tré drepast eftir mislangan árafjölda.
Hér er einnig að finna svar við spurningunni:Hver er munurinn á CO2 losun með því að brenna timbur (tré) eða láta það rotna ofan jarðar?
Þ...
Rétt mataræði getur skipt sköpum fyrir hlaupara og aðra íþróttamenn, ekki síst þegar nær dregur keppni.
Kolvetni eru oftast lykilorkugjafi fyrir íþróttamenn og á þetta sérstaklega við um þá sem stunda þolíþróttir. Sérfræðingar mæla yfirleitt með ríkulegri kolvetnaneyslu samfara þjálfun. Mikil kolvetnaneysla st...
Upphaflega hljóðaði spurningin svona: Hvað má reikna með að hvalur (t.d. hnúfubakur) gefi mikið frá sér af metangasi, eða skaðlegum efnum fyrir andrúmsloftið? Tímaeiningin gæti t.d. verið mánuður eða ár. Við erum að tala um hvalaprump. Það væri fróðlegt að fá samanburð t.d. við nautgripi.
Langflest spendýr o...
Bæði heilaköngull og heiladingull eru innkirtlar og framleiða því hormón.
Heilaköngull (e. pineal gland, lat. epiphysis) er lítið líffæri, um 1 cm á lengd, sem er í laginu eins og furuköngull. Það er staðsett rétt fyrir ofan miðheilann og fyrir framan litla heilann. Hlutverk heilaköngulsins er að mynda og seyt...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!