Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!
Mér hefur ekki tekist að finna svar við þessari spurningu, en í mannslíkama eru um það bil 200 mismunandi tegundir frumna. Í einu grammi af vef eru allnokkrir tugir milljóna af frumum, en auðvitað er það mismunandi eftir því um hvaða vef er að ræða. Í sumum vefjum og líffærum standa frumurnar mjög þétt saman, til dæmis í lifrinni og ýmsum kirtlum, en í öðrum vefjum er mikið af millifrumuefni eða vökva, svo sem í beinum eða blóði. Ég held að ég láti spyrjanda eftir að reikna meira.
Ritstjórn Vísindavefsins hefur rannsakað málið og áætlað frumufjöldann, meðal annars út frá upplýsingum Helgu. Samkvæmt því sem við komumst næst skiptir frumufjöldi í mannslíkama billjónum og er trúlega einhvers staðar á bilinu \(10^{12}\) til \(10^{14}\).
Guðmundur Eggertsson prófessor í líffræði hefur bent á að sé miðað við frumufjöldann \(10^{13}\) og að í hverri frumu sé lengd DNA 2 metrar er lengd DNA í mannslíkamanum \(2\cdot10^{13}\) m. Þetta er töluvert lengra en fjarlægð jarðar frá sólu sem er „aðeins“ \(1,5\cdot10^{11}\) m.
Frekara lesefni á Vísindavefnum:
Helga Ögmundsdóttir. „Hvað eru margar frumur í einum mannslíkama?“ Vísindavefurinn, 7. nóvember 2000, sótt 23. ágúst 2025, https://visindavefur.is/svar.php?id=1100.
Helga Ögmundsdóttir. (2000, 7. nóvember). Hvað eru margar frumur í einum mannslíkama? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=1100
Helga Ögmundsdóttir. „Hvað eru margar frumur í einum mannslíkama?“ Vísindavefurinn. 7. nóv. 2000. Vefsíða. 23. ágú. 2025. <https://visindavefur.is/svar.php?id=1100>.