Sólin Sólin Rís 05:22 • sest 21:31 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 23:11 • Sest 05:11 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 06:38 • Síðdegis: 18:56 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 00:39 • Síðdegis: 12:46 í Reykjavík

Af hverju er Everestfjall svona hátt?

ÍDÞ

Everestfjall er hæsta fjall jarðar, nánar tiltekið 8.850 metrar yfir sjávarmáli. Fjallið tilheyrir Himalajafjallgarðinum en hann er í 6 löndum sem heita: Bútan, Kína, Indland, Nepal, Pakistan og Afganistan.

Myndun fellingafjalla getur orðið með þrennum hætti:

  1. Hafsbotnsskorpa sekkur undir aðra hafsbotnsskorpu.
  2. Hafsbotnsskorpa sekkur undir meginlandsskorpu.
  3. Tvö meginlönd rekur saman.
Himalajafjöll falla undir þriðja liðinn en þau verða til vegna tveggja meginlandsfleka sem rekast saman. Setlög af landgrunni flekanna tveggja kýtast þá saman og mynda fellingar. Ástæðan fyrir gífurlegri hæð fjallgarðsins, og þannig hæð Everestfjalls, er sú að meginlandsskorpan undir fjallgarðinum er tvöföld, um 80 km, en þetta gerðist þegar norðurhluti Indlandsflekans rak undir syðsta hluta Asíuflekans.

Frekara lesefni og heimildir á Vísindavefnum:


Þetta svar er í flokknum "bekkirnir spyrja" þar sem starfsfólk vefsins svarar spurningum frá grunnskólabekk í kennslustund, samkvæmt samningi. Lögð er áhersla á skjót svör, stutt og aðgengileg. Oft er byggt á öðrum svörum sem kunna að nýtast almennum lesendum betur.

Höfundur

Útgáfudagur

5.4.2011

Spyrjandi

Kristján Númi Sveinsson, f. 1995

Tilvísun

ÍDÞ. „Af hverju er Everestfjall svona hátt?“ Vísindavefurinn, 5. apríl 2011. Sótt 24. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=59270.

ÍDÞ. (2011, 5. apríl). Af hverju er Everestfjall svona hátt? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=59270

ÍDÞ. „Af hverju er Everestfjall svona hátt?“ Vísindavefurinn. 5. apr. 2011. Vefsíða. 24. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=59270>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

=

Af hverju er Everestfjall svona hátt?
Everestfjall er hæsta fjall jarðar, nánar tiltekið 8.850 metrar yfir sjávarmáli. Fjallið tilheyrir Himalajafjallgarðinum en hann er í 6 löndum sem heita: Bútan, Kína, Indland, Nepal, Pakistan og Afganistan.

Myndun fellingafjalla getur orðið með þrennum hætti:

  1. Hafsbotnsskorpa sekkur undir aðra hafsbotnsskorpu.
  2. Hafsbotnsskorpa sekkur undir meginlandsskorpu.
  3. Tvö meginlönd rekur saman.
Himalajafjöll falla undir þriðja liðinn en þau verða til vegna tveggja meginlandsfleka sem rekast saman. Setlög af landgrunni flekanna tveggja kýtast þá saman og mynda fellingar. Ástæðan fyrir gífurlegri hæð fjallgarðsins, og þannig hæð Everestfjalls, er sú að meginlandsskorpan undir fjallgarðinum er tvöföld, um 80 km, en þetta gerðist þegar norðurhluti Indlandsflekans rak undir syðsta hluta Asíuflekans.

Frekara lesefni og heimildir á Vísindavefnum:


Þetta svar er í flokknum "bekkirnir spyrja" þar sem starfsfólk vefsins svarar spurningum frá grunnskólabekk í kennslustund, samkvæmt samningi. Lögð er áhersla á skjót svör, stutt og aðgengileg. Oft er byggt á öðrum svörum sem kunna að nýtast almennum lesendum betur....