Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!
Stutta svarið er nei, það hefur ekki tekist þrátt fyrir viðamiklar og rándýrar tilraunir. Hins vegar reyndust tilraunirnar óþarfar til að svara þeirri spurningu úr hverju jarðmöttullinn er því svarið fékkst með einfaldari hætti.
Lengra svarJarðskorpan er ysta lag jarðar, hún flýtur ofan á eðlisþyngri jarðmöttli og er efnafræðilega frábrugðin honum. Jarðskorpan skiptist í basaltíska úthafsskorpu, oftast 6–7 km þykka, og granítíska meginlandsskorpu, 30–40 km þykka. Sá sem uppgötvaði þessa lagskiptingu jarðar hét Andrija Mohorovičić (1857–1936), króatískur veðurfræðingur sem gerðist áhugasamur um jarðeðlisfræði og var nýbúinn að koma upp nýmóðins jarðskjálftamælum á veðurstofunni í Zagreb árið 1909 þegar stór jarðskjálfti reið yfir borgina. Upptök skjálftans voru í Kupa-dal, 30–40 km SSA við Zagreb og Milancovičić til undrunar mældust fyrstu merki frá jarðskjálftanum fyrr en hann hafði talið mögulegt. Af því dró hann þá ályktun að sumar bylgjurnar hefðu farið um dýpra og þéttara berg – sem nú nefnist jarðmöttullinn – en þær bylgjur sem fóru um skorpuna. Mót möttuls og skorpu nefnast nú Mohorovicic-mörkin, stytt í Móhó, og hvað þar er fyrir neðan var gátan mikla.
Borskipið CUSS 1, sem notað var við Mohole-verkefnið, var eitt af fyrstu skipum sem hönnuð voru sérstaklega fyrir boranir á djúpu vatni.
Árið 1957 kom upp sú hugmynd hjá félagsskap sem kalla mætti Sérvitringaklúbb bandarískra vísindamanna[1] að bora gegnum jarðskorpuna niður að möttlinum fyrir neðan; sumir litu á þetta sem svar jarðvísindamanna við áætlun geimvísindamanna að koma manni á tunglið og „keppninni um geiminn“ (e. Space Race). Bandaríkjamenn nefndu verkefnið „Project Mohole“ eftir fyrirhugaðri borholu. Með því að hafsbotnsskorpan er miklu þynnri en meginlandsskorpa var sá kostur talinn álitlegri.
Í mars 1961 var hafist handa, með fjárhagsstuðningi National Science Foundation (NSF) og heillaóskaskeyti frá Kennedy forseta, við að bora í Kyrrahafshafsbotn um 240 km vestur af Mexíkó-hluta Baja-Kaliforníuskagans. Þarna er 3.500 metra sjávardýpi og borpramminn ótjóðraður á opnu hafi, enda komust bormenn ekki nema 183 m niður í hafsbotninn. Fjölmargar tæknilegar þrautir þurfti að leysa, ekki síst að halda skipinu stöðugu yfir holunni og að hitta á holuna aftur og aftur eftir að borinn hafði verið dreginn upp þegar hver stuttur kjarnabútur (tæplega 10 metrar) hafði verið boraður. Verkefninu var hætt árið 1966 en þá höfðu verið boraðar fimm holur án þess að tekist hefði að bora ofan í möttulinn.
Þótt ekki tækist betur til, varð þetta ævintýri upphaf afar árangursríkra hafsbotnsrannsókna kenndum við JOIDES (e. Joint Oceanographic Institutions for Deep Earth Sampling) sem gerir út séstakt borskip sem siglir um heimshöfin og borar – til að rannsaka hafsbotninn, ekki það sem undir er.
Víða í fellingafjöllum eru jarðmyndanir sem nefnast „ófíólít“ og eru hlunkar af hafsbotnsskorpu og efsta hluta möttulsins sem jarðskorpuhræringar hafa ekið (þrýst) upp á meginlandsskorpu. Mynd frá Grikklandi.
Vísindamenn fleiri þjóða hafa tekið þátt í þessu „kapphlaupi“, til dæmis sérhönnuðu Japanir borskipið Chikyū beinlínis til að geta borað 7000 m niður í hafsbotninn að Moho. Síðla árs 2024 komst Chikyū í Heimsmetabók Guinness þegar borað var niður í botn 6.900 m djúps djúpáls NA af Japan til að rannsaka upphafsstað jarðskjálftans mikla 2011 – heimsmetið vannst fyrir lengstu borstöng við hafsbotnsborun, 7.906 m frá yfirborði sjávar – þar af 800 m í hafsbotninn.
Og ekki létu Sovétmenn sitt eftir liggja. Í mars 1970 hófst djúpborun í meginlandsskorpu á Kolaskaga, skammt frá landamærunum við N-Noreg. Árið 1989 náði hola 12.262 metrum og skömmu síðar þótti nóg komið. Þetta er dýpsta hola sem boruð hefur verið í þágu vísindanna, 23 cm í þvermál; hiti við botn var 180°C, tvöfalt hærri en reiknað hafði verið með.
Snið gegnum ófíólít, byggt á Troodos á Kýpur.
En hvað um möttulinn? Árið 1971 birtist grein eftir jarðvísindamennina Fred Vine[2] og Eldridge Moores þar sem lýst er stað (Troodos) á eynni Kýpur í Miðjarðarhafi þar sem ganga má þurrum fótum frá hafsbotni niður í jarðmöttulinn.[3] Um er að ræða „berghlunk“, hluta af úthafs-stinnhveli (skorpa + efsti hluti möttuls) sem jarðskorpuhræringar hafa ekið (þrýst) upp á meginlandsskorpu. Bergmyndanir af þessu tagi nefnast ófíólít (e. ophiolite) og eru þekktar nokkuð víða en sennilega er Troodos skýrasta og best varðveitta ófíólítið sem enn er þekkt.
Tilvísanir:
^ Fred Vine er sá hinn sami og kynnti botnrekskenninguna ásamt D.H. Mathews í Nature 1963.
^ E.M. Moores og F.J. Vine 1971. The Troodos Massif, Cyprus, and other ophiolites as oceanic crust: evaluation and implications. Philosophical Transactions of the Royal Society of London. Series A. Mathematical and Physical Sciences. 268: 443–466.
M. Wilson. Igneous Petrogenesis. Kluwer Academic Publishers, Dordrecht, 1989
Upphaflega hljóðaði spurninginn svona:
Við hér í 7HH í Flataskóla erum að læra um pláneturnar. Okkur langar svo að vita hvernig menn komust að því úr hverju jörðin er? Hvernig er vitað úr hverju kjarninn er? Hvernig er það greint? Hefur einhver borað sig í gegnum jarðskorpuna?
Hér er aðeins svarað síðasta hluta spurningarinnar þar sem nú þegar er að finna nokkur svör á Vísindavefnum um innri gerð jarðar - sjá tengd svör hér fyrir neðan.
Sigurður Steinþórsson. „Hefur einhver borað sig í gegnum jarðskorpuna?“ Vísindavefurinn, 10. nóvember 2026, sótt 10. nóvember 2026, https://visindavefur.is/svar.php?id=77201.
Sigurður Steinþórsson. (2026, 10. nóvember). Hefur einhver borað sig í gegnum jarðskorpuna? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=77201
Sigurður Steinþórsson. „Hefur einhver borað sig í gegnum jarðskorpuna?“ Vísindavefurinn. 10. nóv. 2026. Vefsíða. 10. nóv. 2026. <https://visindavefur.is/svar.php?id=77201>.