Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!
Hundaheitið Kaffon er að öllum líkindum sótt í rímnakveðskap.[1] Hundar sem fengu heitið þóttu sumir líkjast kaffi á litinn eða þá að nafngiftin var tilkomin vegna þeirrar venju eigendanna að gefa þeim kaffi.
Mannsnafnið Kaffon virðist eiga rætur að rekja til Líkafrónsrímna eftir Sigurð Breiðfjörð (1798-1846). Rímurnar komu fyrst út á prenti árið 1843 undir titlinum Rímur af Líkafróni kóngssyni og köppum hans. Í annari rímu er kveðið svona: „Kaffon skaltu kalla mig“[2] og er það elsta heimildin um nafnið á prenti.
Á vefnum Tímarit.is er elsta dæmi um Kaffon sem hundsheiti frá árinu 1923. Í greininni „Kaffon og Hrani“ eftir Ásgeir Blöndal í tímaritinu Dýraverndaranum, er frásögn af hundi sem Hannes Hannesson póstur átti. Hundinum er lýst svona: „Honum fylgdi rakki af útlendu kyni, sem Kaffon hjet, stærri talsvert en íslenskir hundar gerast, svartur að lit, með hvítt brjóst og dökkrauðar lappir og kjamma“.[3] Annar hundur með Kaffonsheitið er nefndur árið 1958 og er honum lýst sem móstrútóttum,[4] það er mórauðum á lit með hvítan kraga um háls.
Nokkur dæmi er að finna um hunda sem fengu Kaffonsheitið vegna þeirra venju eigendanna að gefa þeim kaffi. Í þriðja bindi ritsins Göngur og réttir frá árinu 1948 segir af hundi sem nefndur var Kaffon „af því hann drekkur kaffi eins og hitt fólkið.“[5] Og í tímaritinu Akranes, frá 1957, skrifar Benedikt Gíslason frá Hofteigi um dýravininn Þorgerði á Hraunfelli sem ól hvolp sinn á kaffi:
Saga var það að hvolp einn ól hún upp og lét hann ekki skorta dálætið, og þá er hún fór með kaffi handa fólki, þóttist hún ekki geta sett hann hjá. Vandist hann á að lepja kaffi. Var hann af því Kaffon kallaður. Þótti þetta snjöll saga, en þó meira nýmóðinsleg. Kaffon þótti afburða vitur hundur, og allra hunda frægastur af nafni sínu.[6]
Jón Gunnar Þorsteinsson. „Hvaðan kemur hundanafnið Kaffon og af hverju voru hundar nefndir því?“ Vísindavefurinn, 19. nóvember 2026, sótt 19. nóvember 2026, https://visindavefur.is/svar.php?id=87520.
Jón Gunnar Þorsteinsson. (2026, 19. nóvember). Hvaðan kemur hundanafnið Kaffon og af hverju voru hundar nefndir því? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=87520
Jón Gunnar Þorsteinsson. „Hvaðan kemur hundanafnið Kaffon og af hverju voru hundar nefndir því?“ Vísindavefurinn. 19. nóv. 2026. Vefsíða. 19. nóv. 2026. <https://visindavefur.is/svar.php?id=87520>.