Sólin Sólin Rís 07:57 • sest 18:32 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 17:48 • Sest 10:43 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 06:44 • Síðdegis: 19:02 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 00:40 • Síðdegis: 12:58 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hver er ekki lamb að leika sér við?

Guðrún Kvaran

Upprunalega spurningin hljóðaði svona:

Hver er merkingin í orðasambandinu að maðurinn er ekki lamb að leika sér við?

Orðasambandið að vera ekki lamb að leika sér við er notað um þann sem er erfiður viðureignar. Lömbin eru yfirleitt til í leik en sýni einhver maður erfiðleika í samvinnu líkist hann ekki ljúfu lambinu.

Í Ritmálssafni Orðabók Háskólans eru elst dæmi frá síðari hluta 19. aldar:

Jeg sá að vísu að hjer var ekki við lambið að leika sjer og vonlítið að vel mundi fara.

það væri heldur ekki við lambið að leika sér, þar sem Þorkell væri.

Heimild og mynd:

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

7.10.2025

Spyrjandi

Arnar Elvarsson

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hver er ekki lamb að leika sér við?“ Vísindavefurinn, 7. október 2025, sótt 8. október 2025, https://visindavefur.is/svar.php?id=87891.

Guðrún Kvaran. (2025, 7. október). Hver er ekki lamb að leika sér við? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=87891

Guðrún Kvaran. „Hver er ekki lamb að leika sér við?“ Vísindavefurinn. 7. okt. 2025. Vefsíða. 8. okt. 2025. <https://visindavefur.is/svar.php?id=87891>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

...