Sólin Sólin Rís 03:30 • sest 23:22 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 22:25 • Sest 02:19 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 05:07 • Síðdegis: 17:34 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 11:17 • Síðdegis: 23:47 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hvað kemur steik málinu við þegar „allt er í steik“?

Guðrún Kvaran

Öll spurningin hljóðaði svona:

Hvað kemur steik málinu við þegar sagt er „allt í steik“? Hvaðan kemur þetta orðatiltæki?

Orðasambandið allt er í/komið í steik þekkist frá síðari hluta 20. aldar í merkingunni ‘allt er komið í óefni’.

Eina dæmið í Ritmálssafni Orðabókar Háskólans er úr bókinni Vatn á myllu kölska eftir Ólaf Hauk Símonarson sem kom út 1978:
Kemur það fyrir að þú dottar við vinnuna? […] Já, það hefur komið fyrir mig […] Það getur verið stórhættulegt. Þá er auðvitað allt komið í steik.

Jón G. Friðjónsson skrifaði um orðatiltækið í bók sinni Mergur málsins, segir málið óformlegt og telur líkinguna óljósa og trúlega um afbrigði orðatiltækjanna allt er í kássu, allt er í (hræri)graut að ræða. Enga frekari skýringu var að fá í Orðabók um slangur. Eftir talsverða leit hallast ég að skýringu Jóns.

Heimildir og mynd:
  • Jón G. Friðjónsson. 2006. Mergur málsins. Íslensk orðatiltæki. Uppruni, saga og notkun. Bls. 823. Mál og menning. Reykjavík.
  • Orðabók um slangur, slettur, bannorð og annað utangarðsmál. 1982. Mörður Árnason, Svavar Sigmundsson og Örnólfur Thorsson tóku saman. Reykjavík, Svart á hvítu.
  • Ritmálssafn Orðabókar Háskólans. Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. http://ritmalssafn.arnastofnun.is
  • Yfirlitsmynd: Jon Sullivan. Porterhouse biff, grilling, grill, griller, kjøtt. Pixnio. https://pixnio.com/no/mat-drikke/grillmat/porterhouse-biff-grilling-grill-griller-kjott

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

29.5.2026

Spyrjandi

Kristín

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvað kemur steik málinu við þegar „allt er í steik“?“ Vísindavefurinn, 29. maí 2026, sótt 29. maí 2026, https://visindavefur.is/svar.php?id=88567.

Guðrún Kvaran. (2026, 29. maí). Hvað kemur steik málinu við þegar „allt er í steik“? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=88567

Guðrún Kvaran. „Hvað kemur steik málinu við þegar „allt er í steik“?“ Vísindavefurinn. 29. maí. 2026. Vefsíða. 29. maí. 2026. <https://visindavefur.is/svar.php?id=88567>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

...