Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!
Orðasambandið kjósa með fótunum sem stundum sést og heyrist en virðist ekki vera í neinni íslenskri orðabók, er væntanlega komið úr ensku þar sem vote with your feet merkir 'to show your opinion by leaving an organization or by no longer supporting, using, or buying something' eða 'að láta skoðun sína í ljósi með því að yfirgefa einhver samtök eða hætta að styðja, nota eða kaupa eitthvað'. Sambandið er talið eiga uppruna sinn í pedibus in sententiam ire eða 'ganga með fótunum í afstöðu' sem vísar til þess hvernig atkvæði voru greidd í rómverska senatinu. Nútímanotkun sambandsins er talin runnin frá Lenín en breiddist út eftir 1945 þegar farið var að nota það um fólk sem flýði Austur-Þýskaland.
Það á einmitt við um elstu dæmi sem ég finn um þetta samband á íslensku – þau vísa öll til Austur-Þýskalands. Í Vísi 1957 segir: „Í brezku blaði var í morgun kveðið svo að orði, að 2¼ millj. Austur-Þjóðverja hefði þegar greitt atkvæði gegn kommúnistum „með fótunum“, þ. e. með því að flýja landið og ógnarstjórn þeirra.“ Í Morgunblaðinu 1962 segir: „Blómin marka þá staði þar sem fólk, sem vildi „neyta almenns kosningaréttar síns með fótunum“ þ. e. velja um það hvort það vildi vera kyrrt í Austur-Berlín eða flýja vestur, hefir látið lífið.“ Í Vísi 1963 segir: „4 milljónir manna hafa „kosið með fótunum“.“ Í Vesturlandi 1964 segir: „Þetta fólk „hefur kosið með fótunum,“ eins og það hefur verið orðað. Og það kýs enn með fótunum.“
Austurþýski landamæravörðurinn Konrad Schumann stekkur yfir gaddavír til að flýja til Vestur-Þýskalands á meðan Berlínarmúrinn var í byggingu. Eftir 1945 var farið að nota orðasambandið að kjósa með fótunum um það fólk sem flýði Austur-Þýskaland.
Smátt og smátt var svo farið að nota sambandið í víðari merkingu og um flutning fólks frá öðrum löndum en Austur-Þýskalandi. Í grein um íslenska pólitík í Alþýðublaðinu 1981 skrifar Jón Baldvin Hannibalsson: „Sumir stjórnmálaflokkar hafa verið að forheimska sig á því, að leggja til við háttvirta kjósendur, að þeir herði sultarólina, í nafni „baráttunnar gegn verðbólgunni“. Kjósendur hafa svarað fyrir sig með því að greiða atkvæði – með fótunum.“ Þarna virðist vísað til þess að fólk hafi flutt úr landi. Í Tímanum 1990 segir um hugsanlegan flóttamannastraum frá Sovétríkjunum til Finnlands: „Ef vöruskortur verður svo mikill að fólk sér fram á hungursneyð mun fólk kjósa með fótunum og flytja sig þangað sem mat er að fá.“
Sambandið hefur orðið töluvert algengt á seinni árum – í Risamálheildinni er hátt á fjórða hundrað dæma um kjósa (eða greiða atkvæði) með fótunum. En jafnframt hefur merking þess víkkað talsvert og virðist nú vera svipuð þeirri sem það hefur í ensku og lýst var hér að framan – það vísar sem sé ekki endilega til þess að flytja sig um set í landfræðilegum skilningi. Í Fréttablaðinu 2020 segir: „Lífeyriskerfið væri orðið of stórt, sjóðfélagar þyrftu að geta kosið með fótunum ef þeim mislíkar stjórn sjóða.“ Í Morgunblaðinu 2021 segir: „Viðskiptavinurinn mun mótmæla þessu með fótunum.“ Í Vísbendingu 2022 segir: „hluthafar myndu einfaldlega kjósa með fótunum og selja hlutabréf þeirra fyrirtækja sem stóðu sig illa á markaði.“
Myndir:
Eiríkur Rögnvaldsson. „Hvernig kýs fólk með fótunum? Hvaðan kemur þetta orðasamband?“ Vísindavefurinn, 27. ágúst 2026, sótt 27. ágúst 2026, https://visindavefur.is/svar.php?id=89070.
Eiríkur Rögnvaldsson. (2026, 27. ágúst). Hvernig kýs fólk með fótunum? Hvaðan kemur þetta orðasamband? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=89070
Eiríkur Rögnvaldsson. „Hvernig kýs fólk með fótunum? Hvaðan kemur þetta orðasamband?“ Vísindavefurinn. 27. ágú. 2026. Vefsíða. 27. ágú. 2026. <https://visindavefur.is/svar.php?id=89070>.