Sólin Sólin Rís 08:36 • sest 17:48 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 17:12 • Sest 01:13 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 02:52 • Síðdegis: 15:18 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 09:05 • Síðdegis: 21:41 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Í hvaða landi eru flest virk eldfjöll?

Emilía Dagný Sveinbjörnsdóttir

Svarið við spurningunni fer eftir því við hvaða tímabil og skilgreiningar er miðað. Hér er stuðst við upplýsingar frá svonefndu Global Volcanism Program sem er umfangsmikill gagnagrunnur um eldstöðvar og eldgos í heiminum á vegum Smithsonian-stofnunarinnar. Í gagnagrunninum er meðal annars miðað við eldstöðvar sem hafa gosið á nútíma (e. Holocene), það er á síðustu um það bil 12.000 árum. Einnig er hægt að svara spurningunni út frá þrengra tímabili, til dæmis með því að skoða eldstöðvar sem gosið hafa á sögulegum tíma, síðustu aldir eða jafnvel aðeins síðustu áratugi.

Annað sem þarf að hafa í huga er hvernig eldstöð er skilgreind og gos í henni talin. Stundum er það einfalt mál, en eldsumbrot geta átt sér stað á stóru svæði og úr mörgum gígum eða sprungum. Þá er ekki alltaf sjálfgefið hvað eigi að teljast ein eldstöð. Global Volcanism Program reynir að taka tillit til þess hvort gosstöðvar tengist sama undirliggjandi kvikukerfi og því getur ein eldstöð í gagnagrunninum náð yfir fleiri en eitt gosop, sprungur eða eldfjöll.

Þegar löndin eru borin saman þarf einnig að hafa í huga að tölurnar ná til þeirra landsvæða sem Global Volcanism Program tengir við hvert ríki og eru því ekki bundnar við meginland þess. Eldstöðvar á eyjum og öðrum yfirráðasvæðum geta því talist með og það skiptir miklu máli, eins og til dæmis í tilfelli Bandaríkjanna.

Elgos í fjallinu Bromo á Jövu í Indónesíu.

Á vef Global Volcanism Program er að finna töflu yfir þau 20 lönd sem hafa flestar virkar eldstöðvar síðustu 12.000 árin. Þar eru Bandaríkin efst á lista en þar hafa 165 eldstöðvar gosið á þessu tímabili. Japan er í öðru sæti með 116 og Rússland í því þriðja með 106 virk eldstöðvakerfi. Indónesía fylgir þar á eftir með 101.

Röðin breytist hins vegar ef horft er til styttra tímabils. Taflan sýnir einnig hversu mörg eldstöðvakerfi hafa gosið frá árinu 1800 og frá 1960. Ef aðeins er litið til tímabilsins frá 1800 er Indónesía efst, en þar hefur 71 eldstöð gosið. Bandaríkin koma þar á eftir með 63 og Japan með 61. Indónesía er einnig efst ef horft er á tímabilið frá 1960. Þar hafa 55 eldstöðvar gosið frá þeim tíma, samanborið við 40 í Japan og 39 í Bandaríkjunum.

Svarið við spurningunni um í hvaða landi séu flest virk eldfjöll fer því eftir því hvaða tímabil er lagt til grundvallar. Ef miðað er við síðustu um 12.000 ár eru Bandaríkin efst, en ef horft er til síðustu tveggja alda eða síðustu áratuga er Indónesía efst.

Þess má geta að Ísland er í 9. sæti listans bæði þegar miðað er við síðustu 12.000 ár og tímabilið frá 1800. Alls eru 35 íslenskar eldstöðvar á lista Global Volcanism Program yfir gos á nútíma og 14 þeirra hafa gosið frá árinu 1800. Ef aðeins er litið til tímabilsins frá 1960 er Ísland hins vegar í 8. sæti, en 10 eldstöðvar hafa gosið hér á landi frá þeim tíma.

Rétt er að ítreka að hér er verið að telja eldstöðvar en ekki einstök eldgos. Fjöldi eldgosa er miklu meiri þar sem ein og sama eldstöðin getur gosið margsinnis. Eins og fram kemur fram í svari við spurningunni Hversu mörg eldgos hafa verið á Íslandi síðustu fimmtíu árin? eru eldgos á Íslandi á 20. og 21. öldinni alls 56 talsins, þar af 33 gos síðustu 50 árin og 18 á þessari öld (miðað við september 2026).

Heimildir og myndir:

Höfundur þakkar Sigurði Steinþórssyni, prófessor emeritus í jarðfræði, fyrir yfirlestur og gagnlegar athugasemdir.

Höfundur

Emilía Dagný Sveinbjörnsdóttir

landfræðingur og starfsmaður Vísindavefsins

Útgáfudagur

21.10.2026

Spyrjandi

Sigrún

Tilvísun

Emilía Dagný Sveinbjörnsdóttir. „Í hvaða landi eru flest virk eldfjöll?“ Vísindavefurinn, 21. október 2026, sótt 21. október 2026, https://visindavefur.is/svar.php?id=89787.

Emilía Dagný Sveinbjörnsdóttir. (2026, 21. október). Í hvaða landi eru flest virk eldfjöll? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=89787

Emilía Dagný Sveinbjörnsdóttir. „Í hvaða landi eru flest virk eldfjöll?“ Vísindavefurinn. 21. okt. 2026. Vefsíða. 21. okt. 2026. <https://visindavefur.is/svar.php?id=89787>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

=

Í hvaða landi eru flest virk eldfjöll?
Svarið við spurningunni fer eftir því við hvaða tímabil og skilgreiningar er miðað. Hér er stuðst við upplýsingar frá svonefndu Global Volcanism Program sem er umfangsmikill gagnagrunnur um eldstöðvar og eldgos í heiminum á vegum Smithsonian-stofnunarinnar. Í gagnagrunninum er meðal annars miðað við eldstöðvar sem hafa gosið á nútíma (e. Holocene), það er á síðustu um það bil 12.000 árum. Einnig er hægt að svara spurningunni út frá þrengra tímabili, til dæmis með því að skoða eldstöðvar sem gosið hafa á sögulegum tíma, síðustu aldir eða jafnvel aðeins síðustu áratugi.

Annað sem þarf að hafa í huga er hvernig eldstöð er skilgreind og gos í henni talin. Stundum er það einfalt mál, en eldsumbrot geta átt sér stað á stóru svæði og úr mörgum gígum eða sprungum. Þá er ekki alltaf sjálfgefið hvað eigi að teljast ein eldstöð. Global Volcanism Program reynir að taka tillit til þess hvort gosstöðvar tengist sama undirliggjandi kvikukerfi og því getur ein eldstöð í gagnagrunninum náð yfir fleiri en eitt gosop, sprungur eða eldfjöll.

Þegar löndin eru borin saman þarf einnig að hafa í huga að tölurnar ná til þeirra landsvæða sem Global Volcanism Program tengir við hvert ríki og eru því ekki bundnar við meginland þess. Eldstöðvar á eyjum og öðrum yfirráðasvæðum geta því talist með og það skiptir miklu máli, eins og til dæmis í tilfelli Bandaríkjanna.

Elgos í fjallinu Bromo á Jövu í Indónesíu.

Elgos í fjallinu Bromo á Jövu í Indónesíu.

Á vef Global Volcanism Program er að finna töflu yfir þau 20 lönd sem hafa flestar virkar eldstöðvar síðustu 12.000 árin. Þar eru Bandaríkin efst á lista en þar hafa 165 eldstöðvar gosið á þessu tímabili. Japan er í öðru sæti með 116 og Rússland í því þriðja með 106 virk eldstöðvakerfi. Indónesía fylgir þar á eftir með 101.

Röðin breytist hins vegar ef horft er til styttra tímabils. Taflan sýnir einnig hversu mörg eldstöðvakerfi hafa gosið frá árinu 1800 og frá 1960. Ef aðeins er litið til tímabilsins frá 1800 er Indónesía efst, en þar hefur 71 eldstöð gosið. Bandaríkin koma þar á eftir með 63 og Japan með 61. Indónesía er einnig efst ef horft er á tímabilið frá 1960. Þar hafa 55 eldstöðvar gosið frá þeim tíma, samanborið við 40 í Japan og 39 í Bandaríkjunum.

Svarið við spurningunni um í hvaða landi séu flest virk eldfjöll fer því eftir því hvaða tímabil er lagt til grundvallar. Ef miðað er við síðustu um 12.000 ár eru Bandaríkin efst, en ef horft er til síðustu tveggja alda eða síðustu áratuga er Indónesía efst.

Þess má geta að Ísland er í 9. sæti listans bæði þegar miðað er við síðustu 12.000 ár og tímabilið frá 1800. Alls eru 35 íslenskar eldstöðvar á lista Global Volcanism Program yfir gos á nútíma og 14 þeirra hafa gosið frá árinu 1800. Ef aðeins er litið til tímabilsins frá 1960 er Ísland hins vegar í 8. sæti, en 10 eldstöðvar hafa gosið hér á landi frá þeim tíma.

Rétt er að ítreka að hér er verið að telja eldstöðvar en ekki einstök eldgos. Fjöldi eldgosa er miklu meiri þar sem ein og sama eldstöðin getur gosið margsinnis. Eins og fram kemur fram í svari við spurningunni Hversu mörg eldgos hafa verið á Íslandi síðustu fimmtíu árin? eru eldgos á Íslandi á 20. og 21. öldinni alls 56 talsins, þar af 33 gos síðustu 50 árin og 18 á þessari öld (miðað við september 2026).

Heimildir og myndir:

Höfundur þakkar Sigurði Steinþórssyni, prófessor emeritus í jarðfræði, fyrir yfirlestur og gagnlegar athugasemdir....