Sólin Sólin Rís 08:04 • sest 19:14 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 00:00 • Sest 00:00 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 10:25 • Síðdegis: 22:57 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 04:23 • Síðdegis: 16:24 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hvað er langvinnt COVID og hversu algengt er það?

Jón Magnús Jóhannesson

COVID-19 borði í flokk
COVID-19 er smitsjúkdómur sem orsakast af veirunni SARS-CoV-2. Ýmsar veirusýkingar geta haft langvinnar afleiðingar á bæði líkamlega og andlega heilsu og þar er COVID-19 engin undantekning. Langvinn veikindi eða ný einkenni eftir bráðafasa COVID-19 hafa verið kölluð ýmsum nöfnum. Hugtakið langvinnt COVID (e. long COVID, LC) er víða notað, önnur heiti á ensku eru post-COVID og post-acute sequelae of COVID-19 (PASC). Til einföldunar verður hér notast við LC um þessa kvilla, enda er LC hugtak sem sjúklingar komu sjálfir með til lýsingar á sínum langvinnu einkennum eftir COVID-19.

Hvernig er LC skilgreint og hversu algengt er það?

Margar tilraunir hafa verið gerðar til að skilgreina LC til að gæta samræmis í rannsóknum, greiningu og meðferð þess. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (e. World Health Organization, WHO) skilgreinir LC sem áframhald eða þróun nýrra einkenna 3 mánuðum eftir upphaf COVID-19. Einkenni þurfa að hafa varað í að minnsta kosti 2 mánuði og ekki hafa aðra skýra orsök. LC er þannig regnhlífarhugtak um marga mismunandi kvilla sem eiga það sameiginlegt að koma fram eftir COVID-19 og vara í lengri tíma. Sumir skipta þessu frekar niður þar sem PASC (sjá fyrir ofan) nær til allra langvinnra fylgikvilla COVID-19 meðan LC nær einungis til þeirra einkenna sem ekki má skýra út frá sértækum greiningum.

Vegna mismunandi skilgreininga, tilkomu bóluefna (sem minnka líkur á LC) og breytinga á eiginleikum SARS-CoV-2 hefur verið erfitt að meta raunverulegt algengi LC. Af þeim sem fá COVID-19 geta yfir 30% þróað með sér langvinn einkenni eftir sjúkdóminn, en sum hver væg og stök, til að mynda tap á lyktarskyni. Algengi í öllu samfélaginu er oft talið vera á bilinu 2-10%. Af þeim sem eru með LC eru allt að 20% með alvarleg einkenni.

Algengi í öllu samfélaginu er oft talið vera á bilinu 2-10%. Af þeim sem eru með LC eru allt að 20% með alvarleg einkenni.

Margskonar breytileiki hefur fundist í blóðprufum frá einstaklingum með LC en engin ein niðurstaða hefur fundist sem má nota til að staðfesta eða útiloka greiningu. Í framtíðinni verður þó mögulega hægt að mæla samansafn mismunandi gilda í blóði og áætla líkur á að LC sé til staðar. Hins vegar er mikilvægt að undirstrika að ekki þarf fyrri jákvætt próf fyrir SARS-CoV-2 til að greinast með LC.

Hvaða þættir auka líkur á LC?

LC getur komið fram óháð alvarleika upprunalegra veikinda, áhættuþáttum og tíma frá upphafi einkenna – flestir með LC voru ekki alvarlega veikir af COVID-19. Hins vegar eru vissir þættir sem auka líkur á LC. Slíkir þættir eru meðal annars hærri aldur, alvarlegri veikindi COVID-19, kvenkyn, reykingar, offita, fjöldi undirliggjandi heilsufarsvandamála, skortur á snemmmeðferð við COVID-19 og að vera óbólusettur gegn COVID-19. Endurteknar sýkingar af COVID-19 auka einnig líkur á þróun LC.

Hversu margir eru með LC á Íslandi?

Lítið er vitað um algengi og umfang LC á Íslandi sérstaklega. Benda má á Ský - Félag fólks með Post Covid, sem er hagsmunafélag fólks með post-COVID. Einnig ber að benda á Akureyrarklíníkina, sem veitir þjónustu sérstaklega til einstaklinga með LC og ME sjúkdóminn.

Heimildir:

Myndir:

Höfundur

Jón Magnús Jóhannesson

læknir og rannsakandi

Útgáfudagur

10.3.2026

Spyrjandi

Björn Reynir Halldórsson

Tilvísun

Jón Magnús Jóhannesson. „Hvað er langvinnt COVID og hversu algengt er það?“ Vísindavefurinn, 10. mars 2026, sótt 10. mars 2026, https://visindavefur.is/svar.php?id=88525.

Jón Magnús Jóhannesson. (2026, 10. mars). Hvað er langvinnt COVID og hversu algengt er það? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=88525

Jón Magnús Jóhannesson. „Hvað er langvinnt COVID og hversu algengt er það?“ Vísindavefurinn. 10. mar. 2026. Vefsíða. 10. mar. 2026. <https://visindavefur.is/svar.php?id=88525>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

Myndir:...