Sólin Sólin Rís 07:18 • sest 19:53 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 06:17 • Sest 03:37 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 09:05 • Síðdegis: 21:29 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 02:59 • Síðdegis: 15:15 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hvaða meðferð gagnast þeim sem hafa langvinnt COVID?

Jón Magnús Jóhannesson

COVID-19 borði í flokk
Ýmsar veirusýkingar geta haft langvinnar afleiðingar á bæði líkamlega og andlega heilsu og þar er COVID-19 engin undantekning. Langvinn veikindi eða ný einkenni eftir bráðafasa COVID-19 hafa verið kölluð ýmsum nöfnum. Hugtakið langvinnt COVID (e. long COVID, LC) er víða notað, önnur heiti á ensku eru post-COVID og post-acute sequelae of COVID-19 (PASC). Til einföldunar verður hér notast við LC um þessa kvilla, enda er LC hugtak sem sjúklingar sjálfir komu með til lýsingar á sínum langvinnu einkennum eftir COVID-19.

Meðferð, fyrirbygging og horfur

Gífurlega margar rannsóknir eru nú í gangi að kanna meðferðarúrræði við LC. Lykilatriði er að sérsníða þarf meðferð eftir einkennum hvers og eins. Fyrir einstaklinga með svefntruflanir er hægt að reyna meðferð með melatóníni. Góðgerlar sem innihalda bífídóbakteríur hjálpa mögulega við meltingareinkennum, þreytu, minnistruflunum og athyglisbrest. Andhistamín, til að mynda lóratidín, geta hjálpað við ofnæmiseinkennum. Mikilvægt er að meðhöndla þá ýmsu sjúkdóma sem hafa þróast sem afleiðing af COVID-19.

Bólusetning er ein árangursríkasta leiðin til að minnka líkur á LC, þó vörnin sé ekki fullkomin. Bólusetning minnkar einnig alvarleika COVID-19 og minnkar líkur á öðrum fylgikvillum, til að mynda hjarta- og æðasjúkdómum. Einnig benda gögn til þess að bólusetning við COVID-19 eftir greiningu LC geti minnkað einkenni marktækt, og er virknin meiri því fleiri skammtar sem eru gefnir. Langvinn einkenni sjást í sjaldgæfum tilfellum sem fylgikvilli bólusetningar gegn COVID-19, en áhættan er mun minni en eftir sjúkdóminn sjálfan. Enn fremur sýna vísindaleg gögn svart á hvítu að bólusetning minnkar líkur á LC, enda eru nær allir útsettir fyrir því að fá COVID-19 á einhverjum tímapunkti á lífsleiðinni.

Bólusetning er ein árangursríkasta leiðin til að minnka líkur á LC, þó vörnin sé ekki fullkomin. Bólusetning minnkar einnig alvarleika COVID-19 og minnkar líkur á öðrum fylgikvillum, til að mynda hjarta- og æðasjúkdómum.

Notkun andveirulyfja, til dæmis nirmatrelvir-ritonavir (sérlyfjaheiti er Paxlovid), getur dregið úr líkum á að þróa með sér vissar svipgerðir LC. Slík meðferð gagnast hins vegar ekki ef LC er þegar til staðar. Notkun barkstera í bólgufasa COVID-19 minnkar einnig hættu á LC.

Flestir sem fá LC munu að lokum ná einhverjum bata og búast má við því að flest einkenni verði farin eftir um 2 ár frá upphafi þeirra. Hins vegar geta sum einkenni verið viðvarandi og haldið áfram að valda marktækri takmörkun á lífsgæðum, meira að segja mörgum árum eftir sýkingu.

Heimildir og myndir:

Höfundur

Jón Magnús Jóhannesson

læknir og rannsakandi

Útgáfudagur

23.3.2026

Spyrjandi

Björn Reynir Halldórsson

Tilvísun

Jón Magnús Jóhannesson. „Hvaða meðferð gagnast þeim sem hafa langvinnt COVID?“ Vísindavefurinn, 23. mars 2026, sótt 23. mars 2026, https://visindavefur.is/svar.php?id=88528.

Jón Magnús Jóhannesson. (2026, 23. mars). Hvaða meðferð gagnast þeim sem hafa langvinnt COVID? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=88528

Jón Magnús Jóhannesson. „Hvaða meðferð gagnast þeim sem hafa langvinnt COVID?“ Vísindavefurinn. 23. mar. 2026. Vefsíða. 23. mar. 2026. <https://visindavefur.is/svar.php?id=88528>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

=

Hvaða meðferð gagnast þeim sem hafa langvinnt COVID?
Ýmsar veirusýkingar geta haft langvinnar afleiðingar á bæði líkamlega og andlega heilsu og þar er COVID-19 engin undantekning. Langvinn veikindi eða ný einkenni eftir bráðafasa COVID-19 hafa verið kölluð ýmsum nöfnum. Hugtakið langvinnt COVID (e. long COVID, LC) er víða notað, önnur heiti á ensku eru post-COVID og post-acute sequelae of COVID-19 (PASC). Til einföldunar verður hér notast við LC um þessa kvilla, enda er LC hugtak sem sjúklingar sjálfir komu með til lýsingar á sínum langvinnu einkennum eftir COVID-19.

Meðferð, fyrirbygging og horfur

Gífurlega margar rannsóknir eru nú í gangi að kanna meðferðarúrræði við LC. Lykilatriði er að sérsníða þarf meðferð eftir einkennum hvers og eins. Fyrir einstaklinga með svefntruflanir er hægt að reyna meðferð með melatóníni. Góðgerlar sem innihalda bífídóbakteríur hjálpa mögulega við meltingareinkennum, þreytu, minnistruflunum og athyglisbrest. Andhistamín, til að mynda lóratidín, geta hjálpað við ofnæmiseinkennum. Mikilvægt er að meðhöndla þá ýmsu sjúkdóma sem hafa þróast sem afleiðing af COVID-19.

Bólusetning er ein árangursríkasta leiðin til að minnka líkur á LC, þó vörnin sé ekki fullkomin. Bólusetning minnkar einnig alvarleika COVID-19 og minnkar líkur á öðrum fylgikvillum, til að mynda hjarta- og æðasjúkdómum. Einnig benda gögn til þess að bólusetning við COVID-19 eftir greiningu LC geti minnkað einkenni marktækt, og er virknin meiri því fleiri skammtar sem eru gefnir. Langvinn einkenni sjást í sjaldgæfum tilfellum sem fylgikvilli bólusetningar gegn COVID-19, en áhættan er mun minni en eftir sjúkdóminn sjálfan. Enn fremur sýna vísindaleg gögn svart á hvítu að bólusetning minnkar líkur á LC, enda eru nær allir útsettir fyrir því að fá COVID-19 á einhverjum tímapunkti á lífsleiðinni.

Bólusetning er ein árangursríkasta leiðin til að minnka líkur á LC, þó vörnin sé ekki fullkomin. Bólusetning minnkar einnig alvarleika COVID-19 og minnkar líkur á öðrum fylgikvillum, til að mynda hjarta- og æðasjúkdómum.

Bólusetning er ein árangursríkasta leiðin til að minnka líkur á LC, þó vörnin sé ekki fullkomin. Bólusetning minnkar einnig alvarleika COVID-19 og minnkar líkur á öðrum fylgikvillum, til að mynda hjarta- og æðasjúkdómum.

Notkun andveirulyfja, til dæmis nirmatrelvir-ritonavir (sérlyfjaheiti er Paxlovid), getur dregið úr líkum á að þróa með sér vissar svipgerðir LC. Slík meðferð gagnast hins vegar ekki ef LC er þegar til staðar. Notkun barkstera í bólgufasa COVID-19 minnkar einnig hættu á LC.

Flestir sem fá LC munu að lokum ná einhverjum bata og búast má við því að flest einkenni verði farin eftir um 2 ár frá upphafi þeirra. Hins vegar geta sum einkenni verið viðvarandi og haldið áfram að valda marktækri takmörkun á lífsgæðum, meira að segja mörgum árum eftir sýkingu.

Heimildir og myndir:...