Sólin Sólin Rís 07:53 • sest 19:23 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 00:00 • Sest 00:00 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 01:28 • Síðdegis: 14:33 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 08:10 • Síðdegis: 20:53 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Er vitað hvað orsakar langvinnt COVID?

Jón Magnús Jóhannesson

COVID-19 borði í flokk
Ýmsar veirusýkingar geta haft langvinnar afleiðingar á bæði líkamlega og andlega heilsu og þar er COVID-19 engin undantekning. Langvinn veikindi eða ný einkenni eftir bráðafasa COVID-19 hafa verið kölluð ýmsum nöfnum. Hugtakið langvinnt COVID (e. long COVID, LC) er víða notað, önnur heiti á ensku eru post-COVID og post-acute sequelae of COVID-19 (PASC). Til einföldunar verður hér notast við LC um þessa kvilla, enda er LC hugtak sem sjúklingar sjálfir komu með til lýsingar á sínum langvinnu einkennum eftir COVID-19.

Hugsanlegar orsakir

Enn er lítið vitað um nákvæmar orsakir og er þróun LC margþætt og mismunandi eftir birtingarmynd hverju sinni. Líklegast er óeðlilegt ónæmissvar gegn SARS-CoV-2 sameiginleg orsök í flestum tilfellum. Það er mögulegt að ónæmissvarinu sé beint að viðvarandi afurðum SARS-CoV-2 í líkamanum, aðallega prótínum og kjarnsýrum, þó þetta sé ekki að fullu staðfest. Þetta óeðlilega ónæmissvar getur síðan leitt til vanvirkni í öðrum kerfum, svo sem bakteríuflóru líkamans, hjarta- og æðakerfi, frumum, til dæmis taugafrumum og meira að segja frumulíffærum, til dæmis hvatberum. Enn fremur getur ónæmissvarið leitt til endurvakningar annarra veira í líkamanum, til að mynda Epstein-Barr-veiru (EBV). Vísbendingar eru síðan um að gallar í virkni æðaþelsins (innra borð æða) með tilheyrandi kvillum í storkukerfi líkamans eigi þátt í þróun vissra einkenna.

Þegar talað er um bólgusvar í hinum ýmsu kerfum er ekki endilega verið að tala um hefðbundið bólgusvar sem flestir þekkja. Bólgusvarið getur verið lúmskt og einkennst aðallega af samskiptagöllum milli mismunandi ónæmisfrumna.

Þannig virðast sumir með LC hafa merki um ofangreint bólgusvar í taugakerfinu, sem hefur víðtæk áhrif á starfsemi þess. Þar sem að taugakerfið teygir anga sína um allan líkamann geta þessar breytingar einnig orsakað einkenni í öðrum kerfum, sérstaklega meltingarfærum og hjarta- og æðakerfum. Gallar í virkni hvatbera hafa sérstaklega verið tengdir við einkenni frá vöðvum.

Einnig ber að hafa í huga að alvarlegri tilfelli COVID-19 geta leitt til skemmda í líffærakerfum, sérstaklega lungum, sem leiða síðan til langvinnra einkenna. Þá er vert að nefna að LC orsakast ekki af langvarandi sýkingu vegna SARS-CoV-2.

Heimildir og mynd:

Höfundur

Jón Magnús Jóhannesson

læknir og rannsakandi

Útgáfudagur

13.3.2026

Spyrjandi

Björn Reynir Halldórsson

Tilvísun

Jón Magnús Jóhannesson. „Er vitað hvað orsakar langvinnt COVID?“ Vísindavefurinn, 13. mars 2026, sótt 13. mars 2026, https://visindavefur.is/svar.php?id=88526.

Jón Magnús Jóhannesson. (2026, 13. mars). Er vitað hvað orsakar langvinnt COVID? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=88526

Jón Magnús Jóhannesson. „Er vitað hvað orsakar langvinnt COVID?“ Vísindavefurinn. 13. mar. 2026. Vefsíða. 13. mar. 2026. <https://visindavefur.is/svar.php?id=88526>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

=

Er vitað hvað orsakar langvinnt COVID?
Ýmsar veirusýkingar geta haft langvinnar afleiðingar á bæði líkamlega og andlega heilsu og þar er COVID-19 engin undantekning. Langvinn veikindi eða ný einkenni eftir bráðafasa COVID-19 hafa verið kölluð ýmsum nöfnum. Hugtakið langvinnt COVID (e. long COVID, LC) er víða notað, önnur heiti á ensku eru post-COVID og post-acute sequelae of COVID-19 (PASC). Til einföldunar verður hér notast við LC um þessa kvilla, enda er LC hugtak sem sjúklingar sjálfir komu með til lýsingar á sínum langvinnu einkennum eftir COVID-19.

Hugsanlegar orsakir

Enn er lítið vitað um nákvæmar orsakir og er þróun LC margþætt og mismunandi eftir birtingarmynd hverju sinni. Líklegast er óeðlilegt ónæmissvar gegn SARS-CoV-2 sameiginleg orsök í flestum tilfellum. Það er mögulegt að ónæmissvarinu sé beint að viðvarandi afurðum SARS-CoV-2 í líkamanum, aðallega prótínum og kjarnsýrum, þó þetta sé ekki að fullu staðfest. Þetta óeðlilega ónæmissvar getur síðan leitt til vanvirkni í öðrum kerfum, svo sem bakteríuflóru líkamans, hjarta- og æðakerfi, frumum, til dæmis taugafrumum og meira að segja frumulíffærum, til dæmis hvatberum. Enn fremur getur ónæmissvarið leitt til endurvakningar annarra veira í líkamanum, til að mynda Epstein-Barr-veiru (EBV). Vísbendingar eru síðan um að gallar í virkni æðaþelsins (innra borð æða) með tilheyrandi kvillum í storkukerfi líkamans eigi þátt í þróun vissra einkenna.

Þegar talað er um bólgusvar í hinum ýmsu kerfum er ekki endilega verið að tala um hefðbundið bólgusvar sem flestir þekkja. Bólgusvarið getur verið lúmskt og einkennst aðallega af samskiptagöllum milli mismunandi ónæmisfrumna.

Þannig virðast sumir með LC hafa merki um ofangreint bólgusvar í taugakerfinu, sem hefur víðtæk áhrif á starfsemi þess. Þar sem að taugakerfið teygir anga sína um allan líkamann geta þessar breytingar einnig orsakað einkenni í öðrum kerfum, sérstaklega meltingarfærum og hjarta- og æðakerfum. Gallar í virkni hvatbera hafa sérstaklega verið tengdir við einkenni frá vöðvum.

Einnig ber að hafa í huga að alvarlegri tilfelli COVID-19 geta leitt til skemmda í líffærakerfum, sérstaklega lungum, sem leiða síðan til langvinnra einkenna. Þá er vert að nefna að LC orsakast ekki af langvarandi sýkingu vegna SARS-CoV-2.

Heimildir og mynd:...