Tunglið er að meðaltali 384.400 km frá jörðu. Mesta fjarlægð þess er 405.500 km en minnsta 363.300 km. Ástæða þess að tunglið er ekki alltaf í sömu fjarlægð frá jörðu er sú að braut þess um jörðu er ekki hringur heldur sporbaugur ("ellipsa"). Miðskekkja hennar er 0,0549 en í því felst meðal annars að fjarlægð jarð...
Hugmyndir um jarðkjarnann koma úr fjórum áttum:
Í fyrsta lagi sýna jarðskjálftamælingar að kjarninn er úr þungu efni og að innri kjarninn er fast efni en ytri kjarninn fljótandi. Jafnframt er stærð kjarnans og hinna tveggja hluta hans þekkt frá jarðskjálftafræði.
Í annan stað „vantar“ járn í berg jarðmöttu...
Í heild hljóðaði spurningin svona:Heil og sæl . Hvað er seil? Sem heit á stað á jörð eða örnefni? T.d. Miklavatnsseil eða -seilar, Hreiðurseil, Fremri- og Heimri-Hnúkaseil, Mógrafarseil. Veit Vísindavefurinn það?
Nafnið Seil er rangur ritháttur fyrir Seyl en orðið seyl merkir ‚vætusvæði í mýri‘, eða ‚foræði, ...
Spurningin í heild var svona:
Ef ég stend á tunglinu, í hvaða átt rís sólin?
(Í austri, held ég eftir að hafa hugsað málið)Það er rétt að sólin rís í austri á tunglinu. Hins vegar gerist það miklu hægar en á jörðinni, þar sem einn sólarhringur á tunglinu er heill mánuður, eða 29,53 jarðardagar. Ástæðan er sú að ...
Hér er svarað eftirtöldum spurningum:
Ég hef verið að velta því fyrir mér hvernig fyrsti maðurinn var á litinn? Var hann hvítur, svartur, gulur eða hvað? (Dóra Þórhallsdóttir)
Af hverju voru menn til í öllum álfum þegar menn voru ekki farnir að ferðast, og samt erum við öll eiginlega eins? (Guðrún Andrea Friðge...
Tunglið lýsir ekki af eigin rammleik heldur er það sólin sem lýsir upp þá hlið tunglsins sem að henni snýr á hverjum tíma. Við sjáum síðan misjafnlega mikið af þessari upplýstu hlið, eftir því hvernig hún snýr miðað við okkur. Þegar tungl er fullt snýr upplýsta hliðin öll að okkur. Jörðin er þá milli sólar og tung...
Rusl sem er á braut um jörðu ætti ekki að hafa nein áhrif á lofthjúpinn. Rusl sem fellur til jarðar brennur yfirleitt upp í lofthjúpnum en það getur auðveldlega valdið hættu ef það nær að falla alla leið niður.
Geimferjum stafar hins vegar nokkur hætt af geimrusli. Á braut um jörðu eru nefnilega meira en tvö mi...
Heildarþrýstingur (e. pressure) sem verkar á flugvél á flugi samanstendur af stöðuþrýstingi (e. static pressure) og hreyfiþrýstingi (e. dynamic pressure). Stöðuþrýstingur er sá þrýstingur sem stafar af loftþrýstingi loftmassans sem flugvélin er í. Hreyfiþrýstingur er sá þrýstingur sem verkar til dæmis á frambrún v...
Helios B.Jörðin gengur um sólina eftir sporbaug en sporbaugur er örlítið ílangur ferill sem líkist hring. Meira má lesa um gang reikistjarna í svarinu: Hvers vegna ganga reikistjörnur eftir sporbaug? Vegna þessa er fjarlægð jarðar frá sól ekki alltaf sú sama. Mest verður fjarlægðin 152,1 milljón kílómetrar en minn...
Svarið er í stuttu máli hvorki já eða nei heldur "bæði -- og" því að það fer eftir því hvaðan við horfum á það sem gerist.
Hraði kúlunnar miðað við byssuna og þar með bílinn ákvarðast eingöngu af gerð og eðli skots og púðurs. Við reiknum með að byssunni sé haldið fastri miðað við bílinn og skotið sé nákvæmlega ...
Loft inniheldur alltaf eitthvað af vatnsgufu. Vatnsgufan, sem oft er einnig nefnd eimur, er ósýnileg, rétt eins og flestar aðrar lofttegundir. Því heitara sem loftið er, þeim mun meiri vatnsgufa getur verið á sveimi í því. Því lægri sem hitinn er, því meiri líkur eru á að vatnsgufan í því fari að þéttast. Kólni l...
Heimspekingurinn Gíordanó Brúnó (1548–1600) hélt fyrstur manna að því er vitað er fram þeirri stórkostlegu kenningu að önnur sólkerfi væru til en okkar eigið: stjörnurnar væru sólir sem umhverfis sveimuðu jarðhnettir eins og okkar eina jörð.
Brúnó er einnig talinn merkur hugsuður fyrir kenningar sínar um óenda...
Í stuttu máli þá er munurinn á ísöld og kuldaskeiði sá að ísöld merkir ákveðið tímabil í jarðsögunni sem stóð yfir í tæplega 3 milljónir ára en kuldaskeið er notað um ákveðin skeið innan ísaldar. Kannski má líkja þessu við það að orðið vetur er notað um ákveðna árstíð en það þýðir þó ekki alltaf sé kalt á veturna ...
Því miður er ekki fullljóst hvað átt er við með spurningunni. Mennirnir eru ekki "komnir af" þeim tegundum lífríkisins sem lifa á jörðinni núna. Hins vegar er allt líf á jörð komið af einni rót, og því eiga allar lífverur á jörðinni sér sameiginlegan forföður ef rakið er nógu langt aftur í tímann. Tími jarðsögu og...
Í Alfræði Menningarsjóðs: Stjörnufræði eftir Þorstein Sæmundsson (Reykjavík 1972) segir svo um massa stjarna:
Massa (efnismagn) þeirra reikistjarna, sem hafa tungl, er tiltölulega auðvelt að finna með því að mæla umferðartíma einhvers tunglsins og meðalfjarlægð þess frá móðurhnettinum og beita síðan þriðja lö...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!