Þegar nifteindum er skotið á kjarna getur þrennt gerst, í meginatriðum, ef nifteindin fer nægilega nálægt kjarnanum. Í fyrsta lagi geta kjarnakraftar valdið stefnubreytingu á nifteindinni. Í öðru lagi getur kjarninn gleypt nifteindina og umbreyst án kjarnaklofnunar (en þó getur það valdið því að geislun komi úr kj...
Einfalda svarið við spurningunni er að það er ekki hægt að eyða úrani en það segir samt ekki alla söguna. Þess vegna er svarið við þessari spurningu í tveimur liðum.
Einfalda svarið
Líklega hefur spyrjanda komið spánskt fyrir sjónir að íslenskum fjölmiðlum verður stundum tíðrætt um að menn ætli að eyða úrani e...
Í heild hljóðaði spurningin svona:Er raunhæft að ætla að kjarnorkuver knúin þóríni geti leyst orkuvanda heimsins að einhverju eða miklu leyti? Er mikill geislavirkur úrgangur af slíku ferli? Einnig hefur verið spurt: Af hverju er þórín ekki vinsælla en úran fyrir kjarnorku?
Þórín er áhugaverður orkugjafi. Ef fa...
Svarið er nei; menn hafa ekki smíðað öflugra vopn en vetnissprengju og sem betur fer ekki fyrirsjáanlegt að þeir muni gera það í náinni framtíð. Kjarnorkan, nánar tiltekið kjarnasamruni, er líka langöflugasta orkulind sólkerfisins.
Kjarnorkusprengjur eru í meginatriðum tvenns konar. Sprengjur sem byggjast á kja...
Kjarnorkan myndast við kjarnahvörf þar sem atómkjarnar breytast hverjir í aðra og gefa frá sér orku um leið. Þannig á kjarnorkan upptök sín í atómkjarnanum en venjuleg efnaorka sem myndast við bruna og önnur efnahvörf á upptök sín í rafeindaskipan frumeinda og sameinda utan atómkjarnans. Í kjarnahvörfum breytist m...
Spurningin í heild sinni hljóðaði svo:hafnín -s, hafníum -s HK eðlis/efnafr. Er rétt að nota þessi íslenskuðu form á heitum efna en ekki -íum-formin? Eða ber að nota hvort tveggja, til dæmis við samningu orðabóka?
Orðanefnd Eðlisfræðifélagsins tók þá ákvörðun á sínum tíma að hafa -ín-myndirnar í sinni orðaskrá:...
Orðið kjarnorka (e. nuclear energy) er haft um alla orku sem rekja má til atómkjarnanna (e. atomic nuclei). Orka losnar frá kjörnunum eftir tvenns konar leiðum sem eru ólíkar en byggjast þó báðar á tveim staðreyndum. í fyrsta lagi er orka jafngild massa samkvæmt jöfnu Einsteins $E = m c^2$ og í öðru lagi er massi ...
Lise Meitner var meðal þekktustu kjarneðlisfræðinga heims á fyrri hluta 20. aldar. Þá voru breytingar á kjarna atómanna og efnaeiginleikar þeirra eitt mikilvægasta viðfangsefni eðlisfræðinga og efnafræðinga.
Meitner fæddist í Vín 1878 og voru foreldrar hennar gyðingar, faðir hennar vel stæður lögfræðingur. Stú...
Í heild sinni hljóðaði spurningin svona:Undanfarið er búið að vera mikið í fréttum að Íranar vilji fá að auðga úran. Hvað er auðgað úran?
Í náttúrulegu úrangrýti er einkum að finna tvær samsætur. Samsætan 238U er tæp 99,3% af úrani en í kjarna hennar eru 92 róteindir og 146 nifteindir, en rúm 0,7% af úraninu eru ...
Kjarnorka er orka sem eins og nafnið gefur til kynna er falin í kjörnum atóma. Kjarnorka er að því leyti ekkert frábrugðin annarri orku eða eins og ÞV segir í svari sínu við spurningunni Hvað er í kjarnorku?:Kjarnorka er ein tegund orku og dregur nafn sitt af því að hún á upptök sín í atómkjörnunum. Að því leyti e...
Þegar úranstangir, sem stundum eru íbættar plútoni, hafa verið í ofnum kjarnorkuvera í 2-3 ár verður að skipta á þeim og nýjum stöngum því að þá er mjög gengið á kjarnkleyfa efnið, samsætuna úran-235, og kjarnabrotin sem myndast við klofnun úrankjarnanna eru farin að verka hemlandi á orkuvinnslu.
Stangirnar er...
Samkvæmt upplýsingum Menntamálaráðuneytisins eru 192 grunnskólar á Íslandi. Þar af eru 46 í Reykjavík, 39 í Norðvesturkjördæmi, 45 í Norðausturkjördæmi, 62 í Suðurkjördæmi og 25 í Suðvesturkjördæmi. Fjórir þessara 192 skóla eru einkareknir.
Leikskólar á Íslandi eru 253, framhaldsskólar 36 og skólar á háskólast...
Algengasta frumefnið í alheiminum er vetni ‒ léttasta og einfaldasta frumefnið, enda stendur það fremst í lotukerfinu svokallaða. Vetnisfrumeindin samanstendur af einni jákvætt hlaðinni róteind í kjarnanum og einni neikvætt hlaðinni rafeind sem segja má að sveimi um kjarnann. Lítið er um hreint vetni hér á j...
Þetta er ágætis spurning sem hægt er að svara á einfaldan hátt: Nýja hraunið á Reykjanesskaga er basalt og að vísu geislavirkt, en í svo litlum mæli að geislunin er með öllu hættulaus og einungis greinanleg með næmustu mælitækjum.
Þeir sem vilja fræðast meira um geislavirkni í bergi geta svo lesið afganginn af...
Vatn hefur sameindaformúluna (e. molecular formula) H2O. Bókstafurinn H stendur fyrir vetni og O fyrir súrefni. Vatn er því samsett úr einni súrefnisfrumeind og tveimur vetnisfrumeindum. Bygging vatnssameindarinnar sést hér á myndinni fyrir neðan, hvor vetnisfrumeind binst súrefnisfrumeindinni með einu efnatengi o...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!