Lýsingarorðið kampakátur merkir ‛glaður, kátur og hreykinn í senn’. Nafnorðið kampur merkir ‛skegg’, samanber að brosa í kampinn ‛brosa við, brosa með sjálfum sér’. Hugsunin að baki kampakátur er líklega að skeggið iði, lyftist við það að viðkomandi brosir af kátínu.
Þessi brosir í kampinn en ...
Skæl- í skælbrosa er fengið frá sögninni að skæla ‘gráta, gretta sig’. Í Corvinuspostillu frá miðri 16. öld er þetta dæmi samkvæmt Ritmálsskrá Orðabókar Háskólans:
hæddu at mier / skældu sig oc skoku hofudin.
Þarna er merkingin greinilega ‘grettu sig’. Nafnorðið skæla merkir ‘grátur’ en í fleirtölu einnig ...
Leonardó da Vinci: La Gioconda (Móna Lísa), máluð 1503-1506. Hæð 77 cm; Lengd 53 cm. Heimild: Wikimedia Commons.
Leonardó da Vinci (1452-1519) málaði Mónu Lísu eða La Gioconda, eins og verkið er kallað víðast utan hins enskumælandi heims, í Flórens rétt upp úr aldamótunum 1500, og hann málaði hana aðeins einu s...
Guðmundur Finnbogason var einn fjölhæfasti menntamaður Íslendinga á fyrri hluta 20. aldar, brautryðjandi í skólamálum og sálfræði, ritstjóri Skírnis um árabil, hagur orðasmiður og höfundur frumlegrar kenningar um „samúðarskilninginn“.
Guðmundur fæddist á Arnstapa í Ljósavatnsskarði 6. júní 1873. Hann var af fát...
Það fer nú dálítið eftir því hvaða skilning menn leggja í „ókeypis“. Margt kostar nefnilega ekki pening. Sem dæmi mætti nefna bros, hrós eða faðmlag. Í ensku er til orðatiltækið „The best things in life are free“ sem mætti þýða eitthvað á þá leið að það besta í lífinu sé ókeypis. Ef við lítum svo á að „ókeypis“ þý...
Upprunalega spurningin hljóðaði svo:Af hverju sýna ljósmyndir fólk fyrir rúmlega einni öld það alltaf svo alvörugefið? Hef heyrt að það hafi verið vegna þess að ljósop myndavéla var lengi opið og gat því mynd verið óskýr ef ekki var hægt að vera með einn svip - og þá var auðveldast að brosa ekki. Aðrir segja að fó...
Öll spurningin hljóðaði svona: Hvenær á að nota „mig“ og hvenær á að nota „mér“ með sagnorðum? (Til dæmis mig langar, mér finnst).
Flest sagnorð taka með sér nafnorð eða fornöfn, eitt eða fleiri, til að tákna þátttakendur í þeirri athöfn, atburði eða aðgerð sem sögnin lýsir. Mjög oft stendur eitt þessara nafnor...
Vöðvaslensfár (myasthenia gravis) einkennist af mikilli vöðvaþreytu. Þetta er sjúkdómur sem auðveldlega gleymist, þar sem hann er tiltölulega sjaldgæfur og sjúkdómsmyndin oft óljós. Greiningin dregst því stundum, jafnvel árum saman. Þetta er sjálfnæmissjúkdómur, þar sem ónæmisþol líkamans raskast og ónæmiskerfið r...
Talað er um heilkenni (e. syndrome) þegar ákveðið samansafn einkenna er til staðar hjá einstaklingi. Asperger-heilkenni er gagntæk truflun á þroska (e. pervasive developmental disorders eða PDD), sem flokkast með einhverfu. Megineinkenni þessarar truflunar koma í ljós snemma í bernsku og haldast síðan óbreytt, þót...
Spurning Önnu hljóðaði svona í heild sinni:
Afhverju skrifa Íslendingar Pólland með tveimur L-um? Dregur ekki landið nafnið af ánni Po? Það er ekkert L í Po hvaðan kemur þetta auka L?
Rótin í fyrri hluta landsheitisins er Pól-. Hún er rakin til frumslavneskrar rótar, *pol’e með merkinguna „opið svæði, slétta...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!