Sólin Sólin Rís 05:15 • sest 21:38 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 01:18 • Sest 04:30 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 07:36 • Síðdegis: 19:53 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 01:39 • Síðdegis: 13:42 í Reykjavík

Hversu mörg ríki eru í fleiri en einni heimsálfu?

Emilía Dagný Sveinbjörnsdóttir

Í eftirfarandi svari er miðað við mörk heimsálfanna eins og þeim í lýst í svari við spurningunni Hvernig eru nöfn heimsálfanna til komin?

Til þess að svara þessari spurningu þarf fyrst að ákveða hvort eingöngu er átt við þau ríki sem mörk heimsálfanna liggja í gegnum eða hvort einnig er átt við þau ríki sem „eiga“ eyjar eða landsvæði í annarri heimsálfu en þau tilheyra sjálf.

Ef miðað er við hið fyrrnefnda þá eru nokkru ríki sem fjalla í þann flokk, flest sem teljast landfræðilega bæði til Evrópu og Asíu en eitt telst bæði til Afríku og Asíu.

Fyrst má nefna Rússland en „línan“ sem skilur að Evrópu og Asíu liggur í gegnum það þannig að sá hluti landsins sem er vestan Úralfjalla er Evrópumegin línunnar en austurhlutinn er í Asíu. Í þennan flokk falla einnig Georgía, Aserbaídsjan og Kasakstan en þau liggja öll að litlum hluta innan Evrópu og tilheyra því í raun tveimur heimsálfum.

Það sama gildir um Tyrkland þar sem mörk Evrópu og Asíu liggja um Bospórussund þannig að sá litli hluti landsins sem er norðan sundsins tilheyrir Evrópu en megin hlutinn tilheyrir Asíu.

Egyptaland er hins vegar bæði í Afríku og Asíu en mörkin á milli þessar tveggja heimsálfa eru venjulega talin liggja um Súezskurðinn. Það veldur því að norð-austasti hluti landsins, Sínaískaginn, tilheyrir Asíu landfræðilega þó svo Egyptaland í heild teljist til Afríku.

Mörkin á milli Norður- og Suður-Ameríku er yfirleitt sögð liggja um Panamaeiði (e. Isthmus of Panama) en það er mjóa landræman sem ríkið Panama nær yfir og tengir þessar tvær heimsálfur saman. Ef hins vegar á að draga eina mjóa línu sem skilur að heimsálfurnar er gjarnan miðað við landamæri Panama og Kólumbíu og samkvæmt því er ekkert ríki sem tilheyrir báðum Ameríkuheimsálfunum.

Fæstum dettur sjálfsagt í hug skoða þurfi mörk Asíu og Eyjaálfu í þessu sambandi þar sem sjór skilur þessar heimsálfur að. En á einum stað, á eyjunni Nýju-Gíneu liggja mörk þeirra á þurrlendi. Vestur hluti eyjarinnar tilheyrir Indónesíu og telst til Asíu en austurhlutinn er sjálfstætt ríki, Papúa Nýja-Gínea, og hluti af Eyjaálfu. Þannig tilheyrir eyjan sjálf tveimur heimsálfum.

Ef við viljum skoða hversu mörg ríki fara með stjórnarfar að einhverju leyti á landsvæðum í fleiri en einni heimsálfu þá lengist listinn. Sem dæmi má nefna að landfræðilega tilheyra Kanaríeyjar Afríku enda aðeins rúmlega 100 km úti fyrir strönd norðvestur Afríku en stjórnarfarslega heyra eyjarnar undir Spán. Þannig má segja að spænskt landsvæði sé í tveimur heimsálfum. Það sama á við um Danmörku sem er í Evrópu en á land í Ameríku, það er Grænland, og Bandaríki Norður Ameríku sem á land í Eyjaálfu (Hawaii).

Bretland, Frakkland og Holland hafa einnig yfirráð að einhverju leyti yfir nokkrum eyjum utan Evrópu og eru það leifar nýlenduveldis þeirra. Í svörum við spurningunum Hvaða lönd tilheyra Bretlandi? og Hvað búa margir í Frakklandi? eru tilteknar þær eyjar sem heyra undir þessi ríki. Hvað varðar Holland þá fer það með yfirráð yfir eyjum í Norður-Ameríku, það er að segja Arúba og Hollensku Antillur í Karíbahafinu, eins og sjá má í svari við spurningunni Hvað eru mörg ríki í Norður- og Suður-Ameríku?

Höfundur

Emilía Dagný Sveinbjörnsdóttir

landfræðingur og starfsmaður Vísindavefsins

Útgáfudagur

16.2.2005

Spyrjandi

Andri Snær Ólafsson, f. 1989

Tilvísun

Emilía Dagný Sveinbjörnsdóttir. „Hversu mörg ríki eru í fleiri en einni heimsálfu?“ Vísindavefurinn, 16. febrúar 2005. Sótt 26. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=4756.

Emilía Dagný Sveinbjörnsdóttir. (2005, 16. febrúar). Hversu mörg ríki eru í fleiri en einni heimsálfu? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=4756

Emilía Dagný Sveinbjörnsdóttir. „Hversu mörg ríki eru í fleiri en einni heimsálfu?“ Vísindavefurinn. 16. feb. 2005. Vefsíða. 26. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=4756>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

...