Sólin Sólin Rís 05:40 • sest 21:16 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 15:13 • Sest 05:59 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 03:57 • Síðdegis: 16:31 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:23 • Síðdegis: 22:34 í Reykjavík

Ef svartir albínóar verða hvítir af hverju verða þá ekki hvítir albínóar svartir?

EDS

Húðlitur okkar, og reyndar háralitur líka, ræðst af litarefni sem kallast melanín. Því meira litarefni sem er í húðinni því dekkra er fólk á hörund.

Albínismi stafar af gölluðu víkjandi litargeni. Eðlilega litargenið stuðlar að myndun melaníns í húð, hári og augum. Hafi einstaklingur erft albínóagenið frá báðum foreldrum myndast hins vegar lítið eða ekkert litarefni í húð hans, hári og augum og hann verður albínói.

Þar sem albínóa skortir litarefni verða þeir yfirleitt ljósari á hörund en aðrir fjölskyldumeðlimir.

Til eru mismunandi tegundir eða stig albínisma, svokallaður oculocutaneous albínismi hefur áhrif á augu, hár og húð en ocular albínismi hefur aðallega áhrif á augu, en hár- og húðlitur þarf ekki að vera mjög frábrugðinn því sem gengur og gerist meðal annarra ættmenna sem ekki eru albínóar.

Þar sem albínismi er skortur á litarefni er útilokað að albínói sem er af hvítu fólki kominn geti verið þeldökkur á hörund. Væri hann svartur, væri ekki um albínóa að ræða.

Meira er fjallað um albínisma í svari við spurningunni Af hverju fæðast börn sem albínóar? en í þessu svari er stuðst við þá umfjöllun.

Frekari fróðleikur á Vísindavefnum:

Mynd: Nature's Crusaders. Sótt 11. 11. 2009

Höfundur

Útgáfudagur

12.11.2009

Spyrjandi

Ármann Jóhannsson

Tilvísun

EDS. „Ef svartir albínóar verða hvítir af hverju verða þá ekki hvítir albínóar svartir?“ Vísindavefurinn, 12. nóvember 2009. Sótt 19. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=54354.

EDS. (2009, 12. nóvember). Ef svartir albínóar verða hvítir af hverju verða þá ekki hvítir albínóar svartir? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=54354

EDS. „Ef svartir albínóar verða hvítir af hverju verða þá ekki hvítir albínóar svartir?“ Vísindavefurinn. 12. nóv. 2009. Vefsíða. 19. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=54354>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

...