Sólin Sólin Rís 05:12 • sest 21:41 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 00:00 • Sest 00:00 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 08:09 • Síðdegis: 20:27 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 02:12 • Síðdegis: 14:14 í Reykjavík

Hvað eru til margar konur í heiminum?

EDS

Það er ekki hægt að segja upp á hár hversu margar konur eru í heiminum þar sem mannfjöldi hér á jörðinni er áætlaður. Eins þarf að áætla hversu stór hluti mannkyns eru konur og hversu stór hluti karlar. En við höfum þó nokkuð góða hugmynd um hvernig þessir hlutir.

Eins og fram kemur í svari við spurningunni Hvað eru til margir menn og konur í heiminum? þá er hægt að fara inn á síður á vefnum og sjá þar hvað mannkynið er talið fjölmennt á hverjum tíma. Þegar þetta svar er endurskoðað (27. desember 2011) stendur talan í 6.983.930,112 á vef Manntalsskrifstofu Bandaríkjanna. Hér er þó rétt að ítreka að þetta er áætlun og því má ekki taka töluna alveg bókstaflega upp á einingu. Sem dæmi þá áætla Sameinuðu þjóðirnar að mannkynið hafi farið yfir 7 milljarða markið þann 31. október 2011.



Örlítið brot þeirra rúmlega 3,37 milljarða kvenna sem fyrirfinnast hér á jörð

Í áðurnefndu svari kemur einnig fram að konur eru örlítið færri en karlar. Heimildum ber ekki alveg saman um hvernig hlutfallið er en í grófum dráttum má segja að fyrir hverja 100 konur séu 101 karl.

Miðað við að konur séu rétt tæplega 50% mannkyns er fjöldi kvenna í heiminum um það bil 3.481.800.000.

Á Vísindavefnum eru fleiri svör um fólksfjölda, til dæmis:


Þetta svar er í flokknum "bekkirnir spyrja" þar sem starfsfólk vefsins svarar spurningum frá grunnskólabekk í kennslustund, samkvæmt samningi. Lögð er áhersla á skjót svör, stutt og aðgengileg. Oft er byggt á öðrum svörum sem kunna að nýtast almennum lesendum betur.

Höfundur

Emilía Dagný Sveinbjörnsdóttir

landfræðingur og starfsmaður Vísindavefsins

Útgáfudagur

29.2.2008

Spyrjandi

Sædís Björk Jónsdóttir

Tilvísun

EDS. „Hvað eru til margar konur í heiminum?“ Vísindavefurinn, 29. febrúar 2008. Sótt 27. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=7122.

EDS. (2008, 29. febrúar). Hvað eru til margar konur í heiminum? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=7122

EDS. „Hvað eru til margar konur í heiminum?“ Vísindavefurinn. 29. feb. 2008. Vefsíða. 27. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=7122>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

=

Hvað eru til margar konur í heiminum?
Það er ekki hægt að segja upp á hár hversu margar konur eru í heiminum þar sem mannfjöldi hér á jörðinni er áætlaður. Eins þarf að áætla hversu stór hluti mannkyns eru konur og hversu stór hluti karlar. En við höfum þó nokkuð góða hugmynd um hvernig þessir hlutir.

Eins og fram kemur í svari við spurningunni Hvað eru til margir menn og konur í heiminum? þá er hægt að fara inn á síður á vefnum og sjá þar hvað mannkynið er talið fjölmennt á hverjum tíma. Þegar þetta svar er endurskoðað (27. desember 2011) stendur talan í 6.983.930,112 á vef Manntalsskrifstofu Bandaríkjanna. Hér er þó rétt að ítreka að þetta er áætlun og því má ekki taka töluna alveg bókstaflega upp á einingu. Sem dæmi þá áætla Sameinuðu þjóðirnar að mannkynið hafi farið yfir 7 milljarða markið þann 31. október 2011.



Örlítið brot þeirra rúmlega 3,37 milljarða kvenna sem fyrirfinnast hér á jörð

Í áðurnefndu svari kemur einnig fram að konur eru örlítið færri en karlar. Heimildum ber ekki alveg saman um hvernig hlutfallið er en í grófum dráttum má segja að fyrir hverja 100 konur séu 101 karl.

Miðað við að konur séu rétt tæplega 50% mannkyns er fjöldi kvenna í heiminum um það bil 3.481.800.000.

Á Vísindavefnum eru fleiri svör um fólksfjölda, til dæmis:


Þetta svar er í flokknum "bekkirnir spyrja" þar sem starfsfólk vefsins svarar spurningum frá grunnskólabekk í kennslustund, samkvæmt samningi. Lögð er áhersla á skjót svör, stutt og aðgengileg. Oft er byggt á öðrum svörum sem kunna að nýtast almennum lesendum betur....