Sólin Sólin Rís 05:15 • sest 21:38 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 01:18 • Sest 04:30 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 07:36 • Síðdegis: 19:53 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 01:39 • Síðdegis: 13:42 í Reykjavík

Hvað er nöf þegar komið er fram á ystu nöf?

Guðrún Kvaran

Nöf í þeirri merkingu sem spurt er um merkir annars vegar ‘klettasnös’ en hins vegar ‘endi á bjálka’. Snös er bjargbrún, klettanibba og þegar þangað er komið er betra að vara sig til þess að falla ekki fram af. Sama er að segja um þann sem situr á bjálka. Hann þarf að gæta sín að fara ekki fram af.

Nöf merkir meðal annars ‘klettasnös’ en snös er bjargbrún, klettanibba.

Einnig er notað að vera kominn á fremstu nöf. Í yfirfærðri merkingu er orðasambandið notað um einhvern sem er um það bil að hefjast handa við eitthvað en hættir við.

Mynd:

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

21.5.2021

Spyrjandi

Örn

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvað er nöf þegar komið er fram á ystu nöf?“ Vísindavefurinn, 21. maí 2021. Sótt 26. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=81782.

Guðrún Kvaran. (2021, 21. maí). Hvað er nöf þegar komið er fram á ystu nöf? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=81782

Guðrún Kvaran. „Hvað er nöf þegar komið er fram á ystu nöf?“ Vísindavefurinn. 21. maí. 2021. Vefsíða. 26. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=81782>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

Mynd:...