Sólin Sólin Rís 06:27 • sest 20:22 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 25:21 • Sest 20:25 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 02:58 • Síðdegis: 15:36 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 09:12 • Síðdegis: 22:10 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hvaða tilgangi þjóna marglyttur?

Jón Már Halldórsson

Í líffræði er yfirleitt ekki talað um að lífverur hafi ákveðinn tilgang. Bambus hefur til dæmis ekki þann tilgang að vera fæða fyrir pöndur, býflugur urðu ekki til bara til að frjóvga blóm, og tilgangur ljóna er ekki að halda niðri stofnstærð grasbíta. Hins vegar eru allar lífverur hluti af flóknu neti lífríkis jarðar og hafa ýmis vistfræðileg hlutverk. Það á einnig við um marglyttur.

Marglyttur eru með einfaldari dýrum þegar horft er til líkamsgerðar. Þær hafa ekki heila, hjarta eða stoðgrind, en hafa dafnað ákaflega vel í vistkerfi heimshafanna. Þær finnast nálægt ströndum og á grunnsævi, úti á opnu hafi og jafnvel í mjög djúpum sjó, auk þess sem örfáar tegundir lifa í ferskvatni.

Marglyttur eru bæði rándýr og bráð og eru þannig mikilvægur hluti af flóknum fæðuvef sjávar. Á matseðli þeirra eru til að mynda sviflægar krabbaflær, hrogn, fisklirfur og aðrar marglyttur. Sjálfar eru þær fæða fyrir fjölmörg dýr, svo sem túnfiska, sverðfiska, hákarla, fugla og sæskjaldbökur. Marglyttur hafa einnig önnur hlutverk, sumar veita ungum fiskum skjól og þær taka þátt í hringrás næringarefna og kolefnis í hafinu.

Marglyttur hafa því engan sérstakan tilgang en eru engu að síður mikilvægur hluti af vistkerfi sjávar.

Heimildir og mynd:

Höfundur

Jón Már Halldórsson

líffræðingur

Útgáfudagur

7.9.2026

Spyrjandi

Guðjón Smári

Tilvísun

Jón Már Halldórsson. „Hvaða tilgangi þjóna marglyttur?“ Vísindavefurinn, 7. september 2026, sótt 7. september 2026, https://visindavefur.is/svar.php?id=85353.

Jón Már Halldórsson. (2026, 7. september). Hvaða tilgangi þjóna marglyttur? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=85353

Jón Már Halldórsson. „Hvaða tilgangi þjóna marglyttur?“ Vísindavefurinn. 7. sep. 2026. Vefsíða. 7. sep. 2026. <https://visindavefur.is/svar.php?id=85353>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

=

Hvaða tilgangi þjóna marglyttur?
Í líffræði er yfirleitt ekki talað um að lífverur hafi ákveðinn tilgang. Bambus hefur til dæmis ekki þann tilgang að vera fæða fyrir pöndur, býflugur urðu ekki til bara til að frjóvga blóm, og tilgangur ljóna er ekki að halda niðri stofnstærð grasbíta. Hins vegar eru allar lífverur hluti af flóknu neti lífríkis jarðar og hafa ýmis vistfræðileg hlutverk. Það á einnig við um marglyttur.

Marglyttur eru með einfaldari dýrum þegar horft er til líkamsgerðar. Þær hafa ekki heila, hjarta eða stoðgrind, en hafa dafnað ákaflega vel í vistkerfi heimshafanna. Þær finnast nálægt ströndum og á grunnsævi, úti á opnu hafi og jafnvel í mjög djúpum sjó, auk þess sem örfáar tegundir lifa í ferskvatni.

Marglyttur eru bæði rándýr og bráð og eru þannig mikilvægur hluti af flóknum fæðuvef sjávar. Á matseðli þeirra eru til að mynda sviflægar krabbaflær, hrogn, fisklirfur og aðrar marglyttur. Sjálfar eru þær fæða fyrir fjölmörg dýr, svo sem túnfiska, sverðfiska, hákarla, fugla og sæskjaldbökur. Marglyttur hafa einnig önnur hlutverk, sumar veita ungum fiskum skjól og þær taka þátt í hringrás næringarefna og kolefnis í hafinu.

Marglyttur hafa því engan sérstakan tilgang en eru engu að síður mikilvægur hluti af vistkerfi sjávar.

Heimildir og mynd:...