Sólin Sólin Rís 03:12 • sest 23:42 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 16:13 • Sest 02:24 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 01:57 • Síðdegis: 14:41 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 08:21 • Síðdegis: 20:54 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hvað er glámbekkur þegar eitthvað liggur á glámbekk?

Guðrún Kvaran

Nafnorðið glámbekkur er notað um bekk sem allir geta séð, stað sem er opinn fyrir allra augum og er ekki tryggur. Orðið virðist einungis notað í samböndunum að hafa eitthvað á glámbekk og láta eitthvað liggja á glámbekk. Nokkur dæmi eru um glámbekk í Ritmálssafni Orðabókar Háskólans frá miðri 19. öld en öll þannig að orðið er ekki skýrt sérstaklega.

mundi ef til vill langa í ketbita er það sýndist svo á glámbekk.

En við skulum nú standa við og skoða skjölin fyrst hann hefir þau svona á glámbekk hvort sem er.

Nafnorðið gláma hefur fleiri en eina merkingu samkvæmt Íslenskri orðsifjabók Ásgeirs Blöndal Magnússonar (1989:252): ‘hvítur glampi, skammvinnt sólskin, þurrkflæsa, snjóblettur í fjalli, blesa (á hesti)’. Þessar merkingar tengjast allar ljósi eða birtu á einhvern hátt og að eitthvað liggi á glámbekk gæti upphaflega bent til þess að eitthvað liggi þannig að birtu beri á svo að það sést vel. Merkingin verður síðar almennari og ekki endilega tengd birtu. Þá nægir að hluturinn sé fyrir allra augum.

Heimildir og mynd:

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

2.6.2025

Spyrjandi

N.N.

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvað er glámbekkur þegar eitthvað liggur á glámbekk?“ Vísindavefurinn, 2. júní 2025, sótt 5. júní 2025, https://visindavefur.is/svar.php?id=87810.

Guðrún Kvaran. (2025, 2. júní). Hvað er glámbekkur þegar eitthvað liggur á glámbekk? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=87810

Guðrún Kvaran. „Hvað er glámbekkur þegar eitthvað liggur á glámbekk?“ Vísindavefurinn. 2. jún. 2025. Vefsíða. 5. jún. 2025. <https://visindavefur.is/svar.php?id=87810>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

...