Sólin Sólin Rís 10:51 • sest 15:44 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 13:54 • Sest 09:18 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 04:33 • Síðdegis: 16:55 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:54 • Síðdegis: 23:09 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hvaða niða er þetta þegar það er niðamyrkur?

Guðrún Kvaran

Hvorugkynsorðið nið merkir ‘þverrandi tungl (sem ekki sést nema mjó sneið af)’ en einnig ‘myrkur’ og ‘dimmt kafald’ (ÍO 2002:1059). Forliðurinn niða- vísar til mikils myrkurs eins og niðadimmur, niðamyrkur, niðaþoka.

Orðið er til í öðrum Norðurlandamálum, sbr. færeysku niða ‘myrkur, ósýnilegt tungl’, sænska mállýsku ned, dönsku (forndönsku næthæ) ‘minnkandi (horfið) tungl’. Í fornu máli var notað orðið niðar, neðar í merkingunni ‘hverfandi tungl, nýtt tungl (ókviknað). (Ásgeir Blöndal Magnússon, 1989:666).

Heimildir og mynd:

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

3.12.2025

Spyrjandi

Baldur

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvaða niða er þetta þegar það er niðamyrkur?“ Vísindavefurinn, 3. desember 2025, sótt 3. desember 2025, https://visindavefur.is/svar.php?id=88171.

Guðrún Kvaran. (2025, 3. desember). Hvaða niða er þetta þegar það er niðamyrkur? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=88171

Guðrún Kvaran. „Hvaða niða er þetta þegar það er niðamyrkur?“ Vísindavefurinn. 3. des. 2025. Vefsíða. 3. des. 2025. <https://visindavefur.is/svar.php?id=88171>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

...