Sólin Sólin Rís 09:46 • sest 16:37 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 00:00 • Sest 00:00 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 07:51 • Síðdegis: 20:06 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 01:34 • Síðdegis: 14:07 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Af hverju hefur náttúrulegt val ekki þróað ódauðlegt dýr?

Arnar Pálsson

Stutta svarið er að náttúrulega velst fyrir eiginleikum sem gera lífverur betri, miðað við aðra einstaklinga tegundarinnar. Ódauðleiki virðist ekki vera einn af þessum eiginleikum.

Lengra svar

Náttúrulegt val er afleiðing af breytileika í eiginleikum lífvera og leiðir til margs konar aðlagana þeirra. Dæmi um aðlaganir eru augu, hjörtu og æxlunarfæri dýra, og grænukorn, laufblöð og blóm plantna. Náttúrulegt val er óhjákvæmileg afleiðing þriggja atriða sem upp koma í stofnum lífvera.

  1. Lífverurnar eru ólíkar í einhverjum eiginleika (til dæmis lengd lappa).
  2. Breytileikinn í eiginleikanum er tengdur erfðum að einhverju leyti.
  3. Einstaklingarnir eignast mismörg afkvæmi eða lifa misjafnlega lengi.[1]

Og vegna þess að mun fleiri afkvæmi verða til í hverri kynslóð en rúmast í vistkerfinu, þá leiðir náttúrulegt val til aðlögunar lífveranna. Í dæminu á undan gætu styttri lappir leitt til meiri frjósemi og þannig myndi stofninn breytast og á endanum samanstanda af lappastuttum dýrum (miðað við stofninn í upphafi).

Ódauðleiki er andstæða dauðleika. Allar lífverur á jörðinni eldast og deyja, en gera það mishratt. Örverur lifa flestar frekar stutt, nema þær sem framkalla gró og geta lifnað við eftir langan dvala eins og til dæmis miltisbrandsbakterían. Plöntur lifa líka mislengi, sumar aðeins í nokkrar vikur á meðan aðrar verða ævagamlar. Aldursmetið á sennilega ástralskt tré, Lomatia tasmanica, sem áætlað er að sé um 43.000 ára gamalt. Sama á við um dýr. Sem dæmi lifa sumar flugur aðeins í fáeinar vikur en kúskeljar geta lifað í nokkur hundruð ár.[2]

Kúskel (<em>Arctica islandica</em>) getur náð mjög háum aldri.

Kúskel (Arctica islandica) getur náð mjög háum aldri.

Breytileiki í langlífi dýra og annarra lífvera tengist öðrum eiginleikum eins og líkamsstærð, fjölda afkvæma, tímgun og kynþroska. Saman eru þetta kallaðir lífssögueiginleikar (e. life-history traits). Samband er á milli margra þessara eiginleika sem endurspeglar einhvers konar jafnvægi. Til dæmis lifa stór dýr yfirleitt lengur og lítil dýr skemur. Lífverur sem tímgast snemma á ævinni lifa yfirleitt stutt og þær sem tímgast seint verða langlífari. Þær sem framleiða mörg afkvæmi mynda yfirleitt lítil afkvæmi en þær sem framleiða fá afkvæmi gera þau stærri. Jafnvægið er tilkomið vegna takmarkaðra auðlinda og kostnaðar, ein kind getur til dæmis ekki framleitt milljónir lamba í fullri stærð.[3]

Kostnaðarjafnvægi (e. trade-off) er algengt þema hjá lífverum. Það byggist á því að auðlindir eins og hráefni og orka eru takmarkaðar og hver tegund þarf að nýta þær á sem skynsamlegastan hátt. Lífverur tilheyra eða velja sér allar einhverja vist, það er að segja umhverfi sem þær þrífast best í. Hitaþolnar örverur hafa valið sér hveri, ormar jarðveg eða set á hafsbotni, og apar þurrlendis vistkerfi með nægu framboði af ávöxtum og öðru ætilegu.

Náttúrulegt val mótar breytileika í áðurnefndum eiginleikum eftir þeim aðstæðum sem hver stofn stendur frammi fyrir. Við breytingar á umhverfisaðstæðum gæti verið hagstætt að lifa lengur eða skemur, eignast fleiri afkvæmi eða færri. Fyrir mannfólk þá virðist það að mynda fá og stór afkvæmi frekar seint á ævinni (miðað við önnur spendýr) vera heppilegasta leiðin. Tímgun seint á ævinni fylgir langlífi. Ódauðleika eða miklu lengri ævi myndi því líklega fylgja tímgun enn síðar á ævinni. Vandamálið við að fresta fjölgun er það að lífinu fylgja hættur til dæmis vegna sjúkdóma, afræningja og slysa en einnig innri vandkvæði, vegna hrörnunar líkamans og öldrunar.

Grænlandshákarl (<em>Somniosus microcephalus</em>) verður mögulega elstur allra hryggdýra.

Grænlandshákarl (Somniosus microcephalus) verður mögulega elstur allra hryggdýra.

Ræðum fyrst sérstaklega líffræði öldrunar og síðan áhrif náttúrulegs vals á þau ferli. Líkamar dýra verða til úr frjóvguðu eggi (eða einni frumu hjá þeim sem klóna sig) og að loknu þroskaferli verða til kroppar með mörgum frumum og líffærum. Frumuskiptingum fylgja stökkbreytingar og því fleiri skiptingar, því fleiri stökkbreytingar. Vissulega hafa dýr DNA-viðgerðarkerfi en þau geta ekki lagað alla galla. Margar stökkbreytingar eru meinlausar, en þær sem skemma gen eða erfðaefnið geta leitt til vandkvæða. Uppsöfnun stökkbreytinga með aldri er ein ástæða hrörnunar vefja og líkama dýra. Sum dýr búa yfir stofnfrumum sem geta endurnýjað vefi. Nærtækasta dæmið er stofnfrumur húðarinnar sem endurnýja sig og gefa af sér frumur sem byggja húðina sjálfa. En stofnfrumur fresta bara vandamálinu því í þeim safnast einnig upp stökkbreytingar sem leiða til vandræða. Best þekkti vandinn sem af þessu sprettur er krabbamein þar sem stökkbreytingar og aðrir þættir valda því að krabbameinsfrumur byrja að fjölga sér taumlaust og hætta að „vinna með“ öðrum frumum líkamans.

Uppsöfnun skemmdra frumna og niðurbrotsefna er önnur orsök hrörnunar líkamans. Dýr hafa marga ólíka vefi og kerfi sem þurfa að starfa saman einstaklingnum til heilla. Dæmi um þetta er orkubúskapur líkamans. Glúkósi er helsta orkuuppspretta dýra, en orka er einnig geymd sem glýkógen, fita eða prótín. Líkaminn þarf að skynja sykurstöðu sína og setja fram beiðnir um meiri sykur eða bindingu hans í glýkógen. Saman við þetta tvinnast hormón sem stýra hungurtilfinningu og seddu. Ein tilgáta er að með öldrun tapi ákveðnir vefir virkni og að þá sé líkaminn í vanda. Góð dæmi eru hjarta eða lungu. Það eru lífsnauðsynleg líffæri, á meðan hægt er að lifa af, þrátt fyrir að til dæmis útlimur eða hluti magans er fjarlægður. Önnur tilgáta er að niðurbrot á samskiptum eins og lýst var að ofan leiði til öldrunar og að endingu dauða.

Einnig er hægt að skilja öldrun með hugmyndum þróunarfræðinnar. Ein tilgáta er að val fyrir tilteknum eiginleikum sé mismikið yfir ævina. Lífverur sem komast á legg og geta fjölgað sér hafa ákveðna hæfni. Þær sem komast á legg en eru ófrjóar hafa enga hæfni, rétt eins og þær sem deyja fyrir aldur fram en hefðu getað orðið frjóar. Eftir kynþroska halda dýr oftast frjósemi um tíma en síðan dvínar hún hægt og bítandi. Hjá spendýrum eins og okkur er þetta mest áberandi í tíðahvörfum, þar sem kvendýr hætta að framleiða egg og verða ófrjó. Meðal manna minnkar líka frjósemi karla með aldri, þó nokkrir eldri karlar geti eignast börn.[4] Eftir því sem frjósemi einstaklinga minnkar með aldrinum, þeim mun veikara verður náttúrulegt val á eiginleika sem nýtast þeim síðar á ævinni, svo sem þeim sem stuðla að auknum lífslíkum. Einstaklingar sem hafa misst frjósemi sína eru stundum kallaðir „ósýnilegir“ fyrir náttúrulegu vali.[5]

Ódauðleika eða miklu lengri ævi myndi líklega fylgja tímgun enn síðar á ævinni. Vandamálið við að fresta fjölgun er það að lífinu fylgja hættur til dæmis vegna sjúkdóma, afræningja og slysa en einnig innri vandkvæði, vegna hrörnunar líkamans og öldrunar.

Hin megintilgáta um þróun öldrunar tengist hugmyndinni um kostnaðarjafnvægi sem kynnt var að ofan. Samkvæmt henni er sennilegt að ný stökkbreyting, sem eykur hæfni fósturs, ungviðis eða kynþroska einstaklings, hafi neikvæð áhrif þegar einstaklingurinn eldist. Hvort sem dánartíðni er jöfn yfir ævina eða eykst með aldri, þá eru alltaf fleiri ungir en aldnir í öllum stofnum.[6] Þessi tilgáta útskýrir hvers vegna erfðaþættir geta verið meinlausir eða jafnvel jákvæðir í ungu fólki, en leiða til sjúkdóma í eldra fólki. Niðurstöður margra rannsókna styðja báðar þessar tilgátur og mögulegt er að þær séu báðar sannar. Pálmi V. Jónsson fjallar ágæta um þessar tilgátur út frá öldrunarfræði mannsins í svari við spurningunni Af hverju eldumst við?

Öldrun getur átt sér margs konar orsakir, á sviði gena, frumna, vefja og þróunar. Þróunarlíkönin tvö útskýra hvers vegna þróun ódauðlegrar veru sem er frjósöm í þúsundir eða milljónir ára er frekar ósennileg.

Samantekt

  • Hæfni lífvera veltur á bæði lífslíkum og frjósemi.
  • Lífverur þurfa að velja hvernig þær nota orku sína og hráefni, til dæmis í vöxt, viðgang og fjölgun.
  • Lengri lífslengd fylgir yfirleitt seinkun á tímgun.
  • Fjarska ólíklegt er að lífvera þróist sem lifir að eilífu og eignast afkvæmi eftir hálfa eilífð.

Tilvísanir:
  1. ^ Þetta er yfirleitt kallað mishröð æxlun af þróunarfræðingum og getur tengst lífslíkum, frjósemi, lífslíkum afkvæma og mörgum öðrum eiginleikum.
  2. ^ Íslensk kúskel komst í fréttirnar árið 2007 þegar vísindamenn við Bangor háskóla í Wales mátu hana um 405-410 ára gamla – sjá Wanamaker o.fl., 2008 og „Íslensk kúskel talin elsta dýr jarðar“, 2007.
  3. ^ En hver þorskhrygna getur framleitt milljón hrogn, sem öll ættu að geta orðið að fullgildum þorskum ef þau væru frjóvguð.
  4. ^ Erfðafræðileg vandamál tengjast eldri foreldrum hjá mönnum. Hjá konum aukast líkur á litningagöllum með aldri, á meðan eldri karlar framleiða sæðisfrumur með fleiri stökkbreytingar á stökum bösum í erfðaefninu.
  5. ^ Reyndar hafa verið settar fram tilgátur um að langlífi mannfólks megi skýrast af óbeinni hæfni eldra fólks. Það er að segja afar og ömmur auka hæfni sína með því að aðstoða afkomendur sína, börn og barnabörn í lífsbaráttunni. Þetta er hugmyndin um algilda hæfni (e. inclusive fitness) sem útskýrir samhjálp meðal maura og annarra félagsskordýra og ýmislegt fleira,
  6. ^ Frávik eru bara vegna fars, t.d. brottflutnings eða innflutnings ákveðinna aldurshópa.

Heimildir og myndir:

Höfundur

Arnar Pálsson

erfðafræðingur og prófessor í lífupplýsingafræði við HÍ

Útgáfudagur

12.11.2026

Spyrjandi

Arnar Elvarsson

Tilvísun

Arnar Pálsson. „Af hverju hefur náttúrulegt val ekki þróað ódauðlegt dýr?“ Vísindavefurinn, 12. nóvember 2026, sótt 12. nóvember 2026, https://visindavefur.is/svar.php?id=89893.

Arnar Pálsson. (2026, 12. nóvember). Af hverju hefur náttúrulegt val ekki þróað ódauðlegt dýr? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=89893

Arnar Pálsson. „Af hverju hefur náttúrulegt val ekki þróað ódauðlegt dýr?“ Vísindavefurinn. 12. nóv. 2026. Vefsíða. 12. nóv. 2026. <https://visindavefur.is/svar.php?id=89893>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

Heimildir og myndir:...