Töluvert er fjallað um Arabíu og Araba í norrænum miðaldaheimildum en flest af því sem þar kemur fram er ættað úr latneskum fornaldarheimildum. Í ítarlegri heimslýsingu Stjórnar, biblíurits sem er frá dögum Hákons V. (1299-1319), er Arabía sögð „hafandi í sér meira reykelsilegan og jurtarlegan ilm og sætleik en fl...
Í hnotskurn er svarið við þessari spurningu: Allir menn, að minnsta kosti allir sem eru af evrópsku bergi brotnir.
Karl mikli Frankakonungur og síðar rómverskur keisari, öðru nafni Karlamagnús (Charlemagne), var uppi 742-814. Hann átti mörg börn, bæði skilgetin og óskilgetin, og veldi hans stóð víða um Evrópu. ...
Hugtakið riddarasögur er notað um veraldlegar frásagnarbókmenntir sem voru þýddar á norræna tungu á miðöldum. Einnig eru til margar frumsamdar riddarasögur en um þær er ekki fjallað hér.
Í öðru bindi Íslenskrar bókmenntasögu fjallar Torfi H. Tulinius um riddarasögur. Þar er meðal annars að finna lista yfir þýdd...
Í öðrum kafla Sturlubókar og Hauksbókar Landnámu er fundur Íslands tímasettur með tilvísun í samtímakónga, konunga á Norðurlöndum og á Englandi, en einnig páfann í Róm og keisara. Hlöðver Hlöðversson er „keisari fyrir norðan fjall“ en auk hans eru nefndir keisarar í Miklagarði.
Hlöðver þessi er nú jafnan kallað...
Í heild hljóðuðu spurningarnar svona:
Teljast Íslendingasögurnar til skáldverka eða eru hetjur þeirra, s.s. Grettir sterki, Gunnar á Hlíðarenda og Gísli Súrsson, raunverulegar persónur sem sannanlega voru til?
Eru Íslendingasögurnar sögulegar heimildir eða eru þær skáldskapur?
Einfaldast er að skilgreina Ís...
Harún al-Rashid (Hārūn al-Rashīd ibn Muḥammad al-Mahdī ibn al-Manṣūr al-ʿAbbāsī), var fimmti kalífi veldis Abbasída og ríkti frá 786-809. Hann er þekktastur á Vesturlöndum sem kalífinn sem kemur fyrir í verkinu Þúsund og ein nótt. Verkið er safn af sögum sem eiga...
Fyrsti apríl er haldinn „hátíðlegur“ víða um heim með tilheyrandi glettum og hrekkjum. Upprunann má að öllum líkindum rekja til miðalda en þá tíðkaðist í Evrópu að halda upp á nýtt ár á vorjafndægri 25. mars.
Fyrsti apríl var áttundi og síðasti dagurinn í nýárshátíðinni, en samkvæmt fornri hefð Rómverja og Gyð...
Heitið Bláland kemur fyrir í fornum íslenskum sagnaritum, til dæmis í Mattheusar sögu postula, einu elsta sagnariti sem til er á íslensku. Af samanburði við erlendar gerðir sögunnar má sjá að þetta orð er þýðing á latneska heitinu Aethiopia. Í Historia de antiquitate regum Norwagiensium, norsku riti á latínu sem r...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!