Svarið við spurningunni er einfalt: Það er mögulegt að framleiða rafmagn með hljóðbylgjum, og við nýtum okkur það meira en ef til vill er augljóst við fyrstu sýn. Við þekkjum vel að nota má rafmagn til að framleiða hljóð og þeir sem hafa verið nægilega framtakssamir til að skrúfa í sundur hátalara vita að það er t...
Spurningin tengist þeirri staðreynd að nýta verður rafmagn í raforkukerfinu á sama augnabliki og það er framleitt í virkjunum. Ekki er til nein hagkvæm aðferð til að geyma rafmagn (raforku) í neinum teljandi mæli nema með verulegum kostnaði. Dæmi um slíkt eru að sjálfsögðu rafhlöður, en geymslan takmarkast af stær...
Þessari spurningu er hægt að svara á nokkra vegu.
Það þarf rafmagn til að knýja öll tæki og tól sem ganga fyrir rafmagni. En auðvitað væri hægt að vinna ýmis verk án rafknúinna tækja og kannski er spurningin til komin vegna þess að spyrjandi veltir fyrir sér hvort hægt sé að spara rafmagn með því að minnka notk...
Hér er einnig svarað spurningunum:
Hvernig er rafmagn búið til úr vindi?
Hvernig eru vindmyllur gerðar?
Í einföldu máli þá virkar vindmylla á öfugan hátt við viftu. Í staðinn fyrir að nota rafmagn til að búa til vind þá er vindur notaður til að búa til rafmagn. Vindurinn kemur hreyfli á snúning og hreyfillinn...
Í Reykjavík einni eru um 20.000 ljósastólpar í umsjón og rekstri Orkuveitu Reykjavíkur fyrir Reykjavíkurborg.
Nokkrar tegundir ljóskerja eru á þessum ljósastólpum, sem sjálfir eru líka af ýmsum stærðum og gerðum. Algengustu ljósgjafastærðir til lýsingu gatna eru125 W kvikasilfurs,70 W natríum,150 W natríum og25...
Raf (gr. elektron, þ. Bernstein, e. amber) finnst ekki hér á landi. Það er „steinrunnin“ trjákvoða af barrtrjám og telst ekki vera bergtegund heldur steind (e. mineral). Þó uppfyllir það hvorki þann þátt í skilgreiningu steindar að vera af ólífrænum uppruna né hinn, að hafa reglulega kristalgrind, því raf er myndl...
Vatn og rafmagn eiga fátt sameiginlegt. Vatn (táknað H2O) er efnasamband og er vatnssameindin gerð úr tveimur vetnisfrumeindum og einni súrefnisfrumeind. Orðið rafmagn er hins vegar haft um hvers konar fyrirbæri sem tengjast rafhleðslum og hreyfingum þeirra, en rafhleðsla er einn af grundvallareiginleikum efnisins...
Á tunglinu er rafmagn, ef stuðst er við þá skilgreiningu að rafmagn sé „hvers konar fyrirbæri sem tengist rafhleðslum og hreyfingum þeirra“, eins og hægt er að lesa um í svari við spurningunni Hvað er rafmagn?
Í venjulegu efni eru nær eingöngu þrjár tegundir einda, rafeindir sem eru neikvætt hlaðnar, róteindir ...
Rafhleðsla er einn af grundvallareiginleikum efnisins. Rafmagn hefur verið til í náttúrunni frá upphafi og það er til dæmis vel sýnilegt í eldingum. Rafhleðsla finnst í öllu efni, til dæmis öllu því sem er á heimilinu okkar eða í skólastofunni, en yfirleitt eru hlutirnir óhlaðnir og við greinum þess vegna ekki raf...
Svarið við þessari spurningu er það að inni í tölvunni er rafhlaða og þar fær klukkan rafmagn og orku til að ganga áfram þótt tölvan sé tekin úr sambandi við rafmagn.
Nánar tiltekið er rafhlaðan á móðurborði tölvunnar og hér að neðan má sjá hvernig henni er komið fyrir. Rauður hringur er utan um rafhlöðuna.
...
Mikið er framleitt af rafmagni á Íslandi og samkvæmt nýjum tölum frá Orkuspárnefnd eiga Íslendingar nú heimsmet í raforkunotkun á hvern íbúa.
Samkvæmt upplýsingum frá Orkustofnun er fjöldi almenningsrafstöðva á Íslandi 91. Af þeim eru 28 vatnsaflsstöðvar, 6 eru jarðhitastöðvar og 57 eru eldsneytisstöðvar sem ...
Það rafmagn sem notað er á Íslandi er nánast allt framleitt úr endurnýjanlegum orkugjöfum ólíkt því sem gerist hjá mjög mörgum öðrum þjóðum sem fá meirihluta raforku sinnar úr brennanlegu eldsneyti.
Rafvæðing Íslands hófst í byrjun 20. aldar þegar menn fóru að virkja bæjarlæki og önnur slík fallvötn. Það var s...
Hugmyndin um þráðlaust rafmagn hljómar eflaust heldur nýstárleg en hún er eldri en marga gæti grunað. Upphaf þráðlausu raftækninnar má rekja til tilrauna uppfinningamannsins Nikola Tesla í lok 19. aldar. Tesla hafði háleitar hugmyndir og stefndi fljótt að því að smíða kerfi sem myndi miðla þráðlausu rafmagni til a...
Rafstraumur getur bæði valdið minniháttar skaða í lifandi vefjum og einnig verið banvænn. Þegar straumur hleypur gegnum líkamann myndast hiti og staðbundin skemmd verður í vefjum sem er í raun brunadrep. Raflost, það er að segja mikill straumur í snöggu höggi af völdum háspennu, getur líka orðið mönnum að fjörtjón...
Orka hlutar er hæfileiki hans til að framkvæma vinnu. Raforka er sú orka sem flutt er með rafstraumi, þar sem rafstraumur er færsla rafhlaðinna agna.
Við notum raforku mikið í daglegu lífi. Umhverfið er lýst upp með rafljósum, við notum alls kyns raftæki eins og tölvur, síma og heimilistæki, og þeir sem hafa e...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!