Heyrnartól geta haft skaðleg áhrif á heyrn, sé hljóðið frá þeim stillt of hátt.
Skyndilegur hvellur getur valdið sárauka, skammtíma- eða langvarandi heyrnartapi eða aukinni viðkvæmni fyrir hljóði (e. hyperacusus). Auk þess getur langvarandi útsetning fyrir hljóðum hærri en 80-90dB valdið heyrnarskaða, til dæm...
Í dag eru þekktar 41 tegund kattardýra og telja vísindamenn að þær séu allar komnar af sameiginlegum forföður sem var uppi fyrir rúmum 10 milljón árum síðan. Þessi forfaðir núlifandi kattardýra kom upphaflega frá Asíu og dreifðist þaðan til allra meginlanda nema Ástralíu og Suðurskautslandsins. Nýlegar rannsóknir ...
Lungun eru tveir svampkenndir, loftfylltir pokar sitt hvorum megin í brjóstholinu. Þau eru helstu öndunarfæri líkamans. Barkinn leiðir innöndunarloft ofan í lungun en hann klofnar í tvær berkjur sem síðan greinast í sífellt minni berklur í hvoru lunga. Á endum minnstu berklnanna eru klasar af blöðrum, svokölluðum ...
Upprunalega hljóðaði spurningin svonaHvenær kom fyrsta uppþvottarvélin til Íslands og hvenær urðu þær algengar á íslenskum heimilum?
Fyrstu uppþvottavélarnar voru gerðar í Bandaríkjunum um miðja 19. öld. Leirtaui og borðbúnaði var snúið í þessum vélum með handafli á meðan vatn sprautaðist yfir. Þessar fyrstu vé...
Bandaríska skólakerfið er á margan hátt byggt öðru vísu upp en hið íslenska. Erfitt er að gera nákvæma grein fyrir því þar sem töluverður munur er á útfærslu milli mismunandi ríkja innan Bandaríkjanna. Þó má lýsa kerfinu í grófum dráttum miðað við það sem algengast er.
Skólaganga í Bandaríkjunum hefst yfirleitt...
Jórtrun er eitt best þekkta dæmi um samlífi spendýra (Mammalia) og örvera. Dýr sem jórtra hafa fjórskiptan maga og kallast magahólfin vömb, keppur, laki og vinstur.
Þegar jórturdýr bíta gras berst það lítt tuggið niður í vömbina. Þar er fæðan möluð og blandast munnvatni. Jórturdýr framleiða gríðarlegt magn af ...
Heimspekingar benda gjarnan á fyndni sem dæmigerðan eiginleika sem hlutir hafa aðeins í krafti þess sem er í auga sjáandans, sem má kannski líka kalla huglægan eiginleika. Þannig er oftast litið svo á að brandari sé fyndinn ef og aðeins ef einhverjum finnst hann fyndinn, alveg eins og matur er brag...
Eldstöðvakerfi Kverkfjalla er 100-130 kílómetra langt. Megineldstöðin liggur nærri suðurenda þess. Í Kverkfjöllum eru tvær öskjur. Mikill jarðhiti er vestan nyrðri öskjunnar. Ekki er vitað um nein gos eftir landnám, hvorki í Kverkfjöllum sjálfum né á sprungusveimunum. Því hafa tæpast orðið tjón eða umhverfisbreyti...
Líkaminn er um 60% vatn og er oft talað um að vatnið sé í hólfum. Hér er í raun ekki um áþreifanleg hólf að ræða heldur er þessi skipting einungis til þæginda.
Í grófum dráttum má skipta vökvahólfum í líkama spendýra, og þar með okkar mannanna, í tvö meginhólf sem hvort um sig skiptast í undirhólf. Annars veg...
Gáttaflökt (e. atrial flutter) er hjartsláttartruflun sem orsakast af truflun á rafleiðni í leiðslukerfi hjartans. Það á uppruna sinn í hjartagáttum.
Hjartað skiptist í fjögur hólf; hægri og vinstri gátt og hægri og vinstri slegil. Gáttir dæla blóði niður í slegla, hægri slegill dælir blóði í lungnablóðrás og ...
Saga Auschwitz (Oświęcim á pólsku) er viðamikil en hér eru rakin helstu atriðin sem skýra jafnframt þróun búðanna.
Útrýmingarbúðirnar í Auschwitz voru stofnaðar vorið 1940 og komu fyrstu fangarnir þangað í júní það ár. Búðirnar voru byggðar í gömlum pólskum herbúðum í bænum sem tilheyrði þá þýska rík...
Blaise Pascal (1623-1662) var franskur stærðfræðingur, eðlisfræðingur, uppfinningamaður, trúspekingur og ritsnillingur. Hann fæddist í Clermont, sem nú heitir Clermont-Ferrand í Auvergne, þar sem faðir hans var forseti skattdómsins og þekktur áhugamaður um stærðfræði og vísindi. Móðir hans dó þegar hann var þrigg...
Margir lesendur Vísindavefsins hafa spurt um kviðvöðvann, sem oft er vísað til með ensku orðunum „six pack“ en kallast á íslensku kviðbeinn. Hér er öllum þessum spurningum svarað lið fyrir lið.
Félagi minn er ekki með six pack, hann er með eight pack. Er það eðlilegt?
Já, það er eðlilegt. Enska orðið „six pa...
Hjartað hefur innra leiðslukerfi sem stjórnar hjartsláttartíðni og takti. Í hverjum hjartslætti færist boðspenna frá toppi til botns hjartans og veldur því að hjartað dregst saman og dælir blóði.
Hjartað er gert úr fjórum hólfum, tveimur gáttum og tveimur sleglum. Hver hjartsláttur hefst með því að sjálfvirkar...
Upprunalega hljóðaði spurningin svona:
Síðan 1970 hefur Hekla gosið á 10 ára fresti og hafa gosin verið lítil miðað við fyrri gos. Ég tel mig hafa lesið einhvers staðar að það gæti hafa myndast lítið kvikuhólf fyrir ofan gamla kvikuhólfið í Heklu. Ef þetta er rétt, hversu miklar líkur eru á því að gosið gæti úr g...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!