Þörf er á stærðfræði:
til að geta látið tölvu reikna fyrir sig
til að geta tekið þátt í spilum og leikjum
til að geta breytt mataruppskrift sem miðuð er við fjóra í uppskrift fyrir sex
til að geta metið hvort maður hefur efni á að kaupa það sem mann langar í
til að geta reiknað út í huganum hva...
Nærtækust er sú aðferð að reikna stærð sólar út frá fjarlægð hennar og því horni sem hún spannar á himninum.
Einnig má mæla stærð sólar með því að nota birtustig og fjarlægð til sólar til að reikna ljósafl hennar. Þá er hiti reiknaður út frá birtustigi á mismunandi bylgjulengdum. Loks er notuð jafnan:L = 4pR2o...
Lítum á þríhyrninginn ABC. Hann hefur hornin A, B, og C og hliðarnar a, b og c, eins og sést á myndinni. Til þess að finna út ummál þríhyrnings leggjum við saman allar hliðar hans, það er:
\[U_{\bigtriangleup }=a+b+c\]
Til að reikna út ummálið þurfa þess vegna lengdir allra þriggja hliða þríhyrningsins að vera...
Auðvelt er að reikna verð hluta með afslætti ef upphaflega verðið er gefið upp. Til að mynda kostar 1.000 króna hlutur með 15% afslætti:0,85 ∙ 1.000 kr = 850 krþar sem talan 0,85 er fengin með því að draga afsláttinn frá heildinni (1-0,15).
Aðeins snúnara er að reikna upphaflegt verð ef afslátturinn og af...
Oft er spurt hvenær og hvernig stærðfræðiformúlur hafi orðið til. Um sumar formúlur er vitað með vissu en saga annarra er hulin í blámóðu fortíðarinnar. Einstaka sinnum bregður þó birtu á fornar athuganir.
Vitað er um háþróaða menningu meðal Egypta í Nílardalnum allt að þremur árþúsundum fyrir Krists burð. Með...
Tveir þættir virðast aðallega hafa áhrif á hversu erfitt er að búa til krossgátu á tilteknu máli, annars vegar hversu mörg orð eru fyrir hendi í málinu til að setja í gátuna og hins vegar hversu auðvelt er að giska á orð út frá nokkrum stöfum og raða þeim saman í gátu. Fyrri þátturinn er reyndar ekki jafn takmarka...
Líkurnar á að tvær eða fleiri samliggjandi tölur komi upp úr lottóútdrætti eru 42,71%, eins og sagt er frá í svari sama höfundar við spurningunni Hvers vegna finnst mér oftar en ekki þegar dregið er í lottó að samliggjandi tölur komi upp úr drættinum? Hér verður sýnt hvernig hægt er að reikna þessar líkur. Tekið s...
Talan pí (π) er óræð tala eins og það er kallað í stærðfræði, en það merkir að hún verður ekki skrifuð sem brot þar sem heilli tölu er deilt í aðra heila tölu. Þegar pí er skrifað sem tugabrot verða aukastafirnir óendanlega margir.
Margir tengja pí sjálfsagt við brotið 22/7 en það er ekki "sama sem" pí í...
Reikistjörnurnar í sólkerfinu okkar eru átta talsins. Til að reikna út ummál plánetu sem væri sett saman úr þessum átta reikistjörnum þurfum við að vita þvermál eða geisla (radíus) nýju plánetunnar. Þvermál nýju plánetunnar er hægt að reikna út frá rúmmáli hennar, sem fæst með því að leggja saman rúmmál reikistjar...
Athugasemd ritstjórnar: Þegar þetta svar var upphaflega skrifað var Plútó flokkaður sem ein af reikistjörnum sólkerfisins. 24. ágúst árið 2006 samþykkti Alþjóðasamband stjarnfræðinga aftur á móti nýja skilgreiningu á reikistjörnum. Plútó fellur ekki undir hana og telst nú til dvergreikistjarna. Reikistjörnurnar er...
Vaxtaútreikningar geta verið flóknari en ætla mætti við fyrstu sýn vegna þess að nokkrar mismunandi aðferðir koma til greina við að reikna út vexti. Hér verður þremur aðferðum lýst.
Í fyrsta lagi er hægt að nota svokallaða flata vexti en þá eru vextir eingöngu reiknaðir af höfuðstól en ekki af ávöxtun fyrri tí...
Flestir kannast við hugtakið prósenta (e. percentage) og vita að það er hundraðshluti. Þrjú prósent eru því þrír hundraðshlutar og ritast 3%.
Þegar prósenta er reiknuð tökum við hlutfall af hlutanum og heildinni og margföldum með 100. Ef við værum með 200 bolta þar sem 40 þeirra væru bláir en afgangurinn rauðir...
Í raun mætti hugsa sér að báðar aðferðirnar sem spyrjandi bendir á séu réttar. Hins vegar mun formúlan fyrir því að reikna út flatarmál, og þá fermetrafjölda ef því er að skipta, vera \(\text{lengd}\cdot \text{breidd}\).
Til að hafa þetta allt sem einfaldast skulum við ímynda okkur ferkantað hús á einni hæð. ...
20 gamlir bekkjarfélagar úr menntaskóla hittast á 10 ára útskriftarafmæli sínu. Allir hafa lokið skólagöngu sinni og eru nokkrir spenntir að fá að vita hver meðallaun gamla bekkjarins eru. Enginn er þó til í að segja frá sínum eigin launum og því vandast málin.
Er hægt að finna leið til að reikna út meðallaun b...
Bæði í verkum síðmiðalda og í verkum Arkímedesar (287 – 212 f. Kr.) má sjá þess merki að menn hafa tekið eftir því að samlagning veldisvísa tiltekinnar tölu, til dæmis 2, samsvarar margföldun talnanna. Dæmi um það gæti til dæmis verið 25·27 = 32·128 = 4096, en einnig mætti reikna 25·27 = 25+7 = 212 = 4096.
Margfö...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!