Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!
Ýmsar veirusýkingar geta haft langvinnar afleiðingar á bæði líkamlega og andlega heilsu og þar er COVID-19 engin undantekning. Langvinn veikindi eða ný einkenni eftir bráðafasa COVID-19 hafa verið kölluð ýmsum nöfnum. Hugtakið langvinnt COVID (e. long COVID, LC) er víða notað, önnur heiti á ensku eru post-COVID og post-acute sequelae of COVID-19 (PASC). Til einföldunar verður hér notast við LC um þessa kvilla, enda er LC hugtak sem sjúklingar sjálfir komu með til lýsingar á sínum langvinnu einkennum eftir COVID-19.
Helstu einkenni LC
LC getur birst á ótalmarga vegu en einkenni eiga það til að falla í vissa flokka eða svipgerðir (e. phenotype). Sumir með LC eru fyrst og fremst með áberandi verkjaeinkenni, sérstaklega höfuðverki og verki í liðum/vöðvum. Aðrir eru frekar með áberandi einkenni frá hjarta- og æðakerfum eða lungum, til dæmis brjóstverki, mæði, hósta og hjartsláttartruflanir. Þreyta og mæði eru með algengustu sameiginlegu einkennum í LC, þvert á svipgerðir. Einnig eiga einkenni það til að versna við hverskonar áreynslu, og geta einkennin sveiflast til í alvarleika.
Ein algeng svipgerð er sú sem líkist ME-sjúkdómnum (e. Myalgic encephalomyelitis, áður kallað síþreyta eða síþreytufár á íslensku). Óljóst er hvort þessi svipgerð LC sé í raun ein undirtegund ME eða hvort um sé að ræða annað fyrirbæri sem einfaldlega líkist því. Einkennin hér eru fyrst og fremst færniskerðing, yfirþyrmandi þreyta, örmögnun eftir áreynslu, skert hugræn virkni sem gjarnan er kölluð heilaþoka og réttstöðubundið óþol (e. orthostatic intolerance, einkenni versna við að standa en lagast við að leggjast niður). Vöðva- og liðverkir, svefntruflanir, hálssærindi, aumir hálseitlar og höfuðverkir geta líka komið fram ásamt einkennum frá mörgum öðrum líffærakerfum. Einkennin skarast þannig oft á við mörg önnur sjúkdómsástönd eins og vefjagigt (e. fibromyalgia).
Svonefnd heilaþoka er eitt af einkennum LC.
Önnur vel skilgreind svipgerð hefur áberandi einkenni frá taugakerfinu. Algengustu einkennin hér eru þreyta, athyglisbrestur, minnistruflanir, svefntruflanir, erfiðleikar við að finna orð og tap á lyktarskyni. Önnur algeng einkenni eru breytingar á bragðskyni, höfuðverkir, skyntruflanir, kvíði og depurð. Langvinnir verkir geta einnig fylgt þessari svipgerð og er mikilvægt að undirstrika að mismunandi svipgerðir geta skarast hér. Gallar í ósjálfráða taugakerfinu eru almennt algengir í LC. Slíkir gallar geta leitt til ástands sem á ensku kallast postural orthostatic tachycardia syndrome (POTS) auk hjartsláttaróreglu með eða án frekari einkenna eins og lýst er hér fyrir ofan.
COVID-19 hefur einnig verið tengt við aukna hættu á þróun nokkurra sjúkdóma í hormónakerfum líkamans, sérstaklega sykursýki, vanvirkni á nýrnahettum og skjaldkirtilssjúkdóma. Meltingartruflanir, blæðingaróregla, ófrjósemi, ristruflanir, og nýir ofnæmis- og gigtarsjúkdómar hafa einnig greinst eftir COVID-19.
COVID-19 getur valdið öndunarbilun, trefjamyndun í lunga (e. lung fibrosis), hjartavöðvabólgu og gollurshússbólgu, auk þess sem sjúkdómurinn eykur líkur á kransæðastíflu, hjartabilun, blóðsegamyndun í djúpum bláæðum og heilablóðföllum. Þessi ástönd geta leitt til langvinnra, hamlandi einkenna á borð við mæði, hósta, brjóstverki, lömun, taltruflanir, skyntruflanir, verki, bjúgsöfnun og margt fleira.
Heimildir og mynd:
Jón Magnús Jóhannesson. „Hver eru helstu einkenni hjá þeim sem hafa langvinnt COVID?“ Vísindavefurinn, 17. mars 2026, sótt 17. mars 2026, https://visindavefur.is/svar.php?id=88527.
Jón Magnús Jóhannesson. (2026, 17. mars). Hver eru helstu einkenni hjá þeim sem hafa langvinnt COVID? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=88527
Jón Magnús Jóhannesson. „Hver eru helstu einkenni hjá þeim sem hafa langvinnt COVID?“ Vísindavefurinn. 17. mar. 2026. Vefsíða. 17. mar. 2026. <https://visindavefur.is/svar.php?id=88527>.