Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!
Fornleifarannsóknir á Íslandi hafa leitt í ljós margháttaðar vísbendingar um mataræði á fyrri tímum. Fyrirferðarmestar eru dýrabein sem varðveitast oft vel í íslenskum jarðvegi en einnig ýmiss konar leifar úr jurtaríkinu, og í vaxandi mæli er beitt smásæjum aðferðum til að varpa ljósi á næringu, fæðuval og matarvenjur.
Dýrabeinasöfn sýna hvaða dýr voru höfð til matar. Ef söfnin eru nógu stór (oft er miðað við að 1000 greinanleg bein þurfi til að hlutföll milli tegunda teljist marktæk) er hægt að gera sér góða hugmynd um búskapinn á viðkomandi stað, það er hlutföllin milli ólíkra húsdýra og að hversu miklu leyti villt dýr voru höfð til matar. Á Íslandi á 10. öld var mest áhersla á nautgriparækt en fólk bjó líka við sauðfé, svín og geitur. Það fór svo eftir aðstæðum á hverjum stað hvaða villtu dýr voru veidd. Eitt einkenni á íslenskum bólstöðum frá þessum tíma er að alls staðar finnst sjófiskur, meira að segja langt inni í landi, en að öðru leyti er samsetning villtu tegundanna breytileg. Á sjávarjörðum á Suðurlandi ber mest á sjófugli og sjófiski, í Þistilfirði var selkjöt mikið borðað og í Mývatnssveit er silungur og rjúpa áberandi í beinasöfnunum. Eggjaskurn sýnir að við Mývatn voru andaregg tínd í miklum mæli en endurnar sjálfar hafa að mestu leyti verið friðaðar.
Dýrabeinin er hægt að greina til tegunda en það er líka hægt að greina lífaldur dýranna, kyn þeirra og slátrunaraðferðir. Það er til dæmis áberandi að kálfum var yfirleitt slátrað ungum og flestir eldri nautgripir eru kýr sem bendir til áherslu á mjólkurframleiðslu. Hausbein af sjófiski finnast einkum þar sem aflinn kom á land og var verkaður, en bein úr bolnum finnast frekar þar sem fisksins var neytt.
Íslendingar hafa borðið svið í meir en þúsund ár. Til þess benda klofnar kindahauskúpur eins og þessi. Hún kemur úr öskuhaugi í Hrísheimum í Mývatnssveit sem er frá því fyrir 938.
Fræ og aðrar jurtaleifar. Fyrir þúsund árum borðaði fólk ekki bara dýr heldur líka ýmsa fæðu úr jurtaríkinu. Mest áberandi í fornleifum eru byggfræ og er greinilegt að bygg var ræktað um allt land fram á 11. öld og í talsverðum mæli sunnanlands og vestan. Eitt af því sem ekki er vitað nógu vel er hversu mikill hluti fæðunnar var kornmeti eða hvernig kornsins var neytt – hvort það var notað til að gera grauta, baka brauð eða kannski fyrst og fremst til að brugga öl. Aðrar ætilegar plöntur finnast stundum þar sem varðveisluskilyrði eru góð, til dæmis berjalyng sem bendir til að berin hafi verið etin, en slík skilyrði eru sjaldgæf og gefa ekki skýra mynd af tegundum sem nýttar voru til matar eða hversu stórt hlutfall aðrar plöntur en korn voru af fæðunni.
Frjókorn og erfðaefni í jarðvegi gefa fyrst og fremst vísbendingar um umhverfið, frjókornin um gróðurfarið og erfðaefni í jarðvegi um þær lífverur – dýr, plöntur og bakteríur – sem voru í vistkerfinu. Byggfrjó benda til byggræktunar og frjó af öðrum nytjaplöntum er stundum hægt að greina til tegunda. Leifar af erfðaefni sem finnast í jarðvegi, til dæmis setlögum í vötnum sem hægt er að tímasetja, geta bent á hvaða ætilegu plöntur voru í umhverfinu, en erfðaefni húsdýra og annarra dýra sem voru veidd til matar sýnir hvaða dýr voru þar. Slíkar leifar gefa því fyrst og fremst óbeinar vísbendingar sem fylla þá mynd sem fræin og dýrabeinin gefa: þær varpa ljósi á hvers konar matvæla var hægt að afla í umhverfinu. En þær geta líka leitt í ljós tegundir sem ekki finnast önnur ummerki um.
Samsætumælingar. Sýnt hefur verið fram á að hlutfall ákveðinna samsæta í beinum getur gefið vísbendingar um mataræði. Það eru fyrst og fremst mannabein sem hafa verið greind í þessum tilgangi en hlutfall kolefnissamsætunnar δ13C er breytilegt eftir því hversu stórt hlutfall fæðunnar kemur úr sjó og hversu stórt af landi, og hlutfall nitursamsætunnar δ15N segir til um hversu hátt viðkomandi einstaklingur var í fæðukeðjunni. Lágt δ15N hlutfall bendir til að fæðan hafi verið að meiri hluta úr jurtaríkinu en hátt hlutfall að hún hafi komið úr dýraríkinu, þeim mun hærra sem dýrin voru hærri í keðjunni, til dæmis selir og ýmsar tegundir fiska. Hlutfall δ15N í ungabörnum getur sýnt hvort þau voru höfð á brjósti eða ekki. Hlutfall brennisteinssamsætunnar δ34S hefur einnig verið notað til að greina hversu hátt hlutfall af fæðunni kemur úr ferskvatnslífverum. Vísbendingar af þessu tagi hjálpa til við að stilla af heildarmyndina því þær sýna hlutfallslegt vægi ólíkra fæðutegunda sem dýrabeinin og fræin geta ekki varpað ljósi á ein og sér.
Matarleifar. Það er ekki óhugsandi að matarleifar aðrar en bein og fræ geti varðveist en það er afar sjaldgæft. Í víkingaaldarkaupstaðnum Birka í Svíþjóð hefur fundist kolað brauð í gröfum en ekkert slíkt þekkist frá Íslandi. Það sem má helst vænta er annars vegar pottskófir, sjaldnast annað en sót innan á eldunarílátum, og uppsöfnun í botni jarðgrafinna keralda. Stór ker eða sáir voru iðulega grafin ofan í gólf húsa og förin finnast síðan við fornleifauppgröft. Stundum finnast í þessum gryfjum lög af lífrænum efnum sem efnagreiningar hafa sýnt að eru líklega mjólkurmatur – mysa eða skyr að líkindum. Það eru fitusýrur sem hægt er að greina úr slíkum sýnum og úr skán á eldunarílátum. Rannsóknir af þessu tagi eru á frumstigi og hafa enn ekki gefið mjög afdráttarlausar niðurstöður, en mikils er að vænta af framþróun á þessu sviði.
Seyðir frá 10. öld á útstöð í Þjórsárdal, sem kölluð er Bergsstaðir. Hitusteinar sjást á barminum til hægri og í sniðinu, en í því var líka þykkt lag af fuglabeinum, mest vængbein úr lunda. Lundinn hefur verið fluttur meir en 70 kílómetra inn í landið en það er ráðgáta hvers vegna aðeins vængbein urðu eftir í seyðinum.
Eldstæði. Eldstæði eins og þau sem finnast í híbýlum frá víkingaöld segja okkur ekki annað en að eldur hafi verið kveiktur og oft sýnir dreifing beina og fræja að matseld hefur einmitt farið fram við þau. Ein tegund eldstæða bendir þó til sérstakrar matreiðsluaðferðar en það eru seyðar, gryfjur sem grafnar voru utanhúss, fylltar af heitum steinum, kjöt sett á og síðan byrgt með torfi. Með þessari aðferð var kjöt (líklega fyrst og fremst) soðið við lágan hita í langan tíma. Þegar tíundu aldar fólk spurði: „Hvað er á seyði?“ merkti það „Hvað er í matinn?“
Gripir. Margir gripir tengjast matvælaframleiðslu og matargerð en flestir með almennum hætti fremur en að hægt sé að draga af þeim ályktanir um ákveðin matvæli eða rétti. Hnífar, litlir pottar úr steini og stærri pottar úr járni eru dæmi um þetta og þar sem varðveisluskilyrði leyfa finnast iðulega leifar tréíláta, tunnur, kirnur og trog sem notuð voru til að geyma mat og til að vinna hann, sérílagi mjólkurafurðir. Sjaldgæft dæmi um grip sem tengist tiltekinni matargerð eru bökunarhellur sem fóru að flytjast til Íslands fljótlega eftir 1100. Þessar hellur voru fluttar inn frá Noregi og voru fyrst og fremst notaðar til að baka hrökkbrauð.
Annað dæmi um breytingu sem varð á mataræði á þessum tíma eru tvíboraðir sauðaleggir en þeir koma til sögunnar á 12. öld. Þeir hafa stundum verið notaðir sem þráðaleggir, sem kefli til að vinda band upp á, en götin voru boruð á þá til að sjúga úr þeim merginn. Á 10. og 11. öld var þessi aðferð ekki notuð heldur voru leggirnir þá brotnir til mergjar (bókstaflega) og gæti það tengst því að kjötið hafi verið eldað öðruvísi, þannig að beinið yrði frekar stökkt og auðveldara að brjóta það.
Af þessu yfirliti sést að það eru margvíslegar vísbendingar um mataræði á Íslandi fyrir þúsund árum. Um sumar hliðar málsins erum við mjög vel upplýst, einkum um hvaða lífverur fólk lagði sér til munns og í hvaða hlutföllum, en miklu minna er hægt að segja um hvernig maturinn var verkaður, um geymsluaðferðir eða eldunaraðferðir. Engar mataruppskriftir eru þekktar frá þessum tíma.
Hugmyndir okkar um mataræði á víkingaöld eru því að mjög miklu leyti mótaðar af yngri ritheimildum, til dæmis Íslendingasögum og öðrum miðaldaheimildum. Lýsingar þeirra á smjörgerð og ostaframleiðslu koma ágætlega heim og saman við það sem við vitum um búskap á 10. öld þó engar beinar heimildir séu um þannig meðferð á mjólkurmat á þeim tíma. Það er þó fyrst á 18. og 19. öld sem við fáum sæmilega nákvæmar lýsingar á matargerð og mataræði á Íslandi, og oft virðist ganga upp að heimfæra þær upp á fyrstu aldirnar. Hvort það er réttmætt getur verið erfitt að vita en miðað við þær framfarir sem hafa orðið í fornleifavísindum í seinni tíð er góð von til þess að margt geti skýrst betur í náinni framtíð.
Heimildir og myndir:
Guðrún Alda Gísladóttir & Mjöll Snæsdóttir 2011, ‘Steinar fyrir brauð. Norsk eldhústíska á Íslandi.’ Upp á yfirborðið. Nýjar rannsóknir í íslenskri fornleifafræði, Orri Vésteinsson ofl. ritstj., Reykjavík: Fornleifastofnun Íslands, 51-68.
Hallgerður Gísladóttir 2023, Íslensk matarhefð, 2. útgáfa, Reykjavík: Þjóðminjasafn Íslands.
Hildur Gestsdóttir, Kerry Sayle & Howell Roberts 2020, ‘Þú ert það sem þú borðar – Samsæturannsóknir á Ingiríðarstöðum.’ Árbók hins íslenzka fornleifafélags 109, 69-92.
Lísabet Guðmundsdóttir 2020, ‘Munngátslepjandi víkingar í 101 Reykjavík.’ Minjaþing helgað Mjöll Snæsdóttur á sjötugsafmæli hennar 12. febrúar 2020, Guðrún Alda Gísladóttir ofl. ritstj. Reykjavík: Fornleifastofnun Íslands, 53-70.
Orri Vésteinsson 2006, ‘Lífsbaráttan – á hverju lifði fólk?’ Reykjavík 871±2. Landnámssýningin. The Settlement Exhibition, Reykjavík: Minjasafn Reykjavíkur, 98-107.
Orri Vésteinsson. „Hvernig geta fornleifafræðingar komist að því hvað fólk borðaði á Íslandi fyrir þúsund árum?“ Vísindavefurinn, 18. nóvember 2026, sótt 18. nóvember 2026, https://visindavefur.is/svar.php?id=89799.
Orri Vésteinsson. (2026, 18. nóvember). Hvernig geta fornleifafræðingar komist að því hvað fólk borðaði á Íslandi fyrir þúsund árum? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=89799
Orri Vésteinsson. „Hvernig geta fornleifafræðingar komist að því hvað fólk borðaði á Íslandi fyrir þúsund árum?“ Vísindavefurinn. 18. nóv. 2026. Vefsíða. 18. nóv. 2026. <https://visindavefur.is/svar.php?id=89799>.