Góðan dag. Ætla hér að spyrja um lækningu við krabbameini. Ég hef heyrt frá mínum kennara sem kennir rafeindatækni að það sé til lækning við krabbameini og hafi verið búið að uppgötva hana fyrir löngu síðan en allt þaggað niður af lyfjamafíunni. Það var vísindamaður, sem ég man ekki hvað hét, sem fann upp rafeindatæki á síðustu öld sem gat læknað krabbamein, alnæmi og fleiri sjúkdóma. Þá er það þannig, eftir því sem ég skildi þetta, að hver krabbameinsfruma er með einhversskonar rafeind utan á sér og með þessu tæki sem gefur einhverja rafeind á móti hinni og við það eyðist rafeindin á frumunni og fruman drepst. Þessu reyndi vísindamaðurinn að koma á framfæri en var þaggaður niður af lyfjamafíunni.Lengi hefur mönnum liðið eins og mannkynið sé á barmi þess að uppgötva lækningu við krabbameini og lengi hafa menn jafnframt spurt sig: hvað tefur? Einhverjir hafa furðað sig svo á langdreginni bið eftir allsherjarlausn við krabbameinum að vangaveltum um það hvort lausninni sé haldið leyndri fyrir almenningi hefur verið varpað fram öðru hvoru. Það má rekja í löngu máli hvers vegna sú hugmynd stenst ekki skoðun, en kannski er hjálplegt að spyrja sig einfaldrar spurningar: hverjir deyja úr krabbameinum? Svarið er hver sem er, þvert á þjóðfélagshópa, þótt vissulega sé aðgengi að heilbrigðisþjónustu misskipt í heiminum og ýmsir lífstílsþættir og aldur hafi áhrif.[1][2][3][4][5] Ef sú staða breytist og viss þjóðfélagshópur verður skyndilega undanskilinn því að deyja úr sjúkdómnum meðan aðrir sitja enn í súpunni er mögulega orðið tímabært að fylkja liði niður á Austurvöll og krefjast svara! Vandinn við að tala um lækningu við krabbameini (í eintölu) er sá að krabbamein er í raun ekki einn afmarkaður sjúkdómur, heldur regnhlífarheiti yfir sjúkdóma sem einkennast af því að áður heilbrigðar frumur hætta að hegða sér með eðlilegum hætti í samfélagi fruma. Ekki eru krabbamein aðeins fjölbreytt sín á milli, hvort sem borið er saman milli einstaklinga eða vefja, heldur eru þau jafnframt ólík innbyrðis. Það er að segja, mikill fjölbreytileiki getur verið milli fruma í sama æxli.[6][7] Framgangur sjúkdómsins treystir raunar á þennan fjölbreytileika og þar stendur hnífurinn í kúnni. Hvernig skal finna lausn á sjúkdómi sem ekki aðeins hegðar sér með ólíkum hætti milli einstaklinga og vefja, heldur meira að segja milli fruma? Til að auka á vanda okkar eru krabbameinsfrumurnar annars að öllu öðru leyti eins og aðrar frumur í okkar líkama. Þær eru jú við sjálf. Hvernig skal ráða niðurlögum ákveðins hóps fruma, en láta aðrar ósnertar?

Vísindakonan Marie Curie um það bil 1900. Vísindalegar uppgötvanir eru ekki gerðar af mönnum í jakkafötum sem plotta heimsyfirráð, heldur af vísindafólki sem kúldrast tímunum saman inni á rannsóknarstofum og hefur af því takmarkaðan fjárhagslegan ávinning. Vísindakonan Marie Curie lést sjálf úr krabbameini sem var bein afleiðing af rannsóknum hennar.

Mynd af Helicobacter pylori, tekin í rafeindasmásjá. Á myndinni má jafnframt sjá svipur bakteríunnar sem gerir henni kleift að hreyfa sig.
- Yfirlitsmynd: RawPixel. https://www.rawpixel.com/image/5941554/free-public-domain-cc0-photo
- Marie Curie (c. 1900) (cropped).jpg. Wikimedia Commons. https://commons.wikimedia.org/wiki/File:Marie_Curie_(c._1900)_(cropped).jpg
- Royal Raymond Rife in his Lab - November 1929.jpg. Wikimedia Commons. Birt undir CC BY-SA 4.0 leyfi. https://commons.wikimedia.org/wiki/File:Royal_Raymond_Rife_in_his_Lab_-_November_1929.jpg
- Yutaka Tsutsumi. EMpylori.jpg. Wikimedia Commons. https://commons.wikimedia.org/wiki/File:EMpylori.jpg
- ^ Pukkala E., o.fl. (2009). Occupation and cancer – follow-up of 15 million people in five Nordic countries. Acta Oncologica, 48(5), 646-790. https://doi.org/10.1080/02841860902913546
- ^ Nobel Prize Outreach. (2011). Ralph M. Steinman – Biographical. NobelPrize.org. https://www.nobelprize.org/prizes/medicine/2011/steinman/biographical
- ^ Asher Jones. (2021). José Baselga, renowned oncologist, dies at 61. The Scientist. https://www.the-scientist.com/jos-baselga-renowned-oncologist-dies-at-61-68571
- ^ Laura Tran. (2025). Cancer researcher and pathologist Richard Scolyer dies at 59. The Scientist. https://www.the-scientist.com/cancer-researcher-and-pathologist-richard-scolyer-dies-at-59-74605
- ^ Wennborg, H., o.fl. (1999). Mortality and cancer incidence in biomedical laboratory personnel in Sweden. American Journal of Industrial Medicine, 35(4), 382–389. https://doi.org/10.1002/(SICI)1097-0274(199904)35:4<382::AID-AJIM9>3.0.CO;2-F. PMID: 10086198
- ^ Valgerður J. Hjaltalín. (2026). Geta allar lífverur fengið krabbamein? Vísindavefurinn. https://www.visindavefur.is/svar.php?id=28594
- ^ Helga Ögmundsdóttir. (2000). Hvað er það sem gerist í frumunum þegar við fáum krabbamein? Vísindavefurinn. https://www.visindavefur.is/svar.php?id=927
- ^ Rife, R. R. (1953). History of the development of a successful treatment for cancer and other virus, bacteria and fungi. Rife.de https://www.rife.de/files/history_rife_cancer_treatment.pdf
- ^ The ALSUntangled Group. (2013). ALSUntangled No. 23: The Rife machine and retroviruses. Amyotrophic lateral sclerosis and frontotemporal degeneration, 15(1-2), 157-159. https://doi.org/10.3109/21678421.2013.850802
- ^ Bracegirdle, B. (2003). Rife and his microscopes. Quekett journal of microscopy, 39, 459-473. https://www.quekett.org/wp-content/uploads/2021/01/Bracegirdle-Rife-microscopes.pdf
- ^ Rife, R. R. (1953).
- ^ The ALSUntangled Group. (2013).
- ^ Bracegirdle, B. (2003).
- ^ Forman, D., o.fl. (1991). Association between infection with Helicobacter pylori and risk of gastric cancer: evidence from a prospective investigation. BMJ, 302(6788), 1302-1305. https://doi.org/10.1136/bmj.302.6788.1302
- ^ Forman, D., o.fl. (1991).
- ^ Moss, S. F. (2016). The clinical evidence linking Helicobacter pylori to gastric cancer. Cellular and molecular gastroenterology and hepatology, 3(2), 183-191. https://doi.org/10.1016/j.jcmgh.2016.12.001
- ^ Smith, G. (2007). Isaac Newton. Stanford Encyclopedia of Philosophy. https://plato.stanford.edu/entries/newton
- ^ deVita, V. T. og Rosenberg, S. A. (2018). Two hundred years of cancer research. New English journal of medicine, 366(23), 2207-2214. https://doi.org/10.1056/NEJMra1204479
- ^ National Cancer Institute. (2026). SEER cancer stat facts: cancer of any site. SEER. https://seer.cancer.gov/statfacts/html/all.html

