Lauk- í laukréttur 'alveg réttur' er herðandi forliður eins og til dæmis mold- í moldríkur, ösku- í öskureiður og stein- í steindauður.
Orðið laukur er fyrst og fremst notað um matjurt og hnúð á plöntustöngli með þykkum safaríkum forðablöðum. Orðið er einnig notað um skrautblóm og var algengur forliður í kvenk...
Vöxtur grenitrjáa fer bæði eftir því hvaða grenitegund á í hlut og hvernig vaxtarskilyrði trésins eru. Sólskin, rakastig, jarðvegur, rými og margt fleira getur haft áhrif á hversu hratt tré vaxa.
Taka má dæmi um sitkagreni (Picea sitchensis), en það er stærsta tegund grenitrjáa og er í hópi með hraðvöxnustu tr...
Í heild hljóðaði spurningin svona:Ýmist er talað um barrskóg eða greniskóg. Hver er munurinn á þessu, hver er munurinn á barri og greni? Þessar vangaveltur komu fram í kennslustund hjá mér og gaman væri að fá svör frá ykkur.
Munurinn á barrskógi og greniskógi er sá að í barrskógi geta verið ýmsar tegundir barrt...
Um uppruna jólatrésins er flest á huldu, en talið er að rætur þess liggi í einhverskonar trjádýrkun djúpt í mannkynssögunni. Í Róm og víðar skreyttu menn til dæmis í fornöld hús sín um nýárið með grænum trjágreinum eða gáfu þær hver öðrum, og átti það að boða gæfu. Mistilteinninn í Englandi var afsprengi sömu hugs...
Upprunalega spurningin hljóðaði svona:
Get ég fengið helstu upplýsingar um íslenskan eini (plöntuna)?
Einir (Juniperus communis) er eina upprunalega, innlenda barrtréð. Hann er af sýprusætt, einnig kölluð grátviðarætt (Cupressaceae). Talið að um 50-60 einitegundir séu í heiminum öllum sem skiptast svo niður...
Á Vísindavefnum er að finna tvö svör um minnstu fuglategundir heims:Eftir Jón Má Halldórsson: Hvað er vitað um minnsta fugl í heimi?Eftir Auði Elvu Vignisdóttur: Hver er stærsti og minnsti fugl í heimi?
Í þessum svörum kemur fram að minnstu fuglategundir jarðar eru af ætt kólibrífugla (Trochilidae) og sú minnsta ...
Til byrkninga (Pteridophyta) teljast plöntur eins og burknar, jafnar og elftingar, ásamt tungljurtum og álftalaukum. Hér á landi vaxa um 40 tegundir af byrkningum þar af um 23 tegundir burkna.
Áberandi tegundir í íslenskri flóru eru meðal annars klóelfting (Equisetum arvense) sem vex víða og í margs konar gróðu...
Líklega var stökkfeti (Saltopus) léttasta risaeðlan, en leifar hans fundust í norðausturhluta Skotlands þar sem honum var gefið nafnið árið 1910. Eðlan var tvífætla, um 60 cm löng, hæðin rétt um 30 cm (frá jörðu upp á efsta hluta höfuðs) og þyngdin er talin hafa verið 900 g. Hins vegar var þverhaus (Micropachyceph...
Spurningin í heild hljóðaði svona: Hvar hafa spörfuglar á Suðurlandi náttstað og hvert leituðu þeir þegar minna var um tré á fyrri hluta síðustu aldar?Náttstaðir spörfugla eru eins misjafnir og tegundirnar eru margar. Sumir fuglar safnast saman í hópa til að sofa, á meðan aðrir velja sér náttstað þar sem þeir eru...
Spurningin í fullri lengd hljóðaði svona: Getur einhver útskýrt hvað gerðist frá því að risaeðlurnar dóu út og til ísaldar þegar spendýrin komu fram?
Miklar breytingar urðu á dýralífi jarðar fyrir um 66 milljón árum, á mörkum miðlífsaldar og nýlífsaldar. Þá dóu um 75% allra dýrategunda út, þar með taldar allar ...
Eitraðar stofuplöntur
Varasamasta stofuplanta hér á landi er líklega nería (Nerium oleander). Hún getur verið banvæn og eru nánast allir hlutar plöntunnar eitraðir. Skyld henni er vinka (Vinca rosea eða Catharanthus roseus). Hún er líka eitruð en er jafnframt mikilvæg lækningaplanta: Úr henni eru unnin lyf sem ...
Barrskógabelti jarðar, sem gengur gjarnan undir orðinu taiga í erlendum málum, liggur aðallega á svæðum á milli 50° og 60° norðlægrar breiddar, allt í kringum norðurpól. Mestir eru barrskógarnir í Rússlandi þar sem langstærstur hluti þeirra vex, auk þess sem skógarnir teygja sig suður yfir landamærin til norðurhlu...
Hefð er fyrir því að skipta jarðsögunni í upphafsöld, frumlífsöld, fornlífsöld, miðlífsöld og nýlífsöld. Öldum er svo skipt niður í tímabil, sem dæmi skiptist miðlífsöld í trías, júra og krít.
Miðlífsöld tók við af fornlífsöld fyrir um 250 milljón árum eftir mesta hrun lífríkis jarðar, þegar meira en 98% tegund...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!