Upphaflegar spurningar voru:
Davíð: Er til eitthvað sem heitir "bein skynjun"? Hvað varðar sjón sjáum við til dæmis bara endurkast ljóss.
Anna: Hver er munurinn á beinskynjunarkenningum og tvenndarkenningum?
Gunna heldur á epli og horfir á það. Þar sem Gunna hefur prýðilega sjón þá sér hún eplið, meðal anna...
Vísindavefurinn hefur fengið töluvert af spurningum sem tengjast kynþroska á einn eða annan hátt. Til dæmis:
Af hverju fær maður hár á kynfærin?
Hvers vegna vaxa punghárin?
Fara stelpur í mútur?
Getur röddin í stelpum breyst?
Hvenær fara strákar í mútur?
Breytist hárvöxtur á leggjum ungra kvenna við kynþros...
Í þessu svari er leitast við að útskýra hugræna atferlismeðferð sem meðferð við ofsakvíða. Hugræn atferlimeðferð er hins vegar gagnlegt meðferðarúrræði við hinum ýmsu kvillum svo sem almennum kvíða, þunglyndi og fælni.
Hugræn atferlismeðferð er tvíþætt. Annars vegar er leitast við að breyta hugarfari sem stuðla...
Stjórnlagaþing er þjóðkjörin samkoma sem hefur það hlutverk að semja nýja stjórnarskrá fyrir viðkomandi ríki. Ýmis dæmi eru um það úr sögunni að boðað hafi verið til stjórnlagaþings og gerist það allajafna í kjölfar átaka eða umróts, til dæmis eftir að þjóð hefur lýst yfir sjálfstæði sínu, grundvallarbreytingar ha...
Um Konrad Lorenz er einnig fjallað í svari eftir sama höfund við spurningunni: Hver var Konrad Lorenz og hvert var framlag hans til vísindanna?
Árið 1973 deildi Lorenz Nóbelsverðlaunum í læknis- og lífeðlisfræði með tveimur kollegum, landa sínum Karl von Frisch (1886-1982) og Hollendingnum Nikolaas Tinbergen (1...
Þegar rætt er um greiðsluþrot lands er jafnan átt við það þegar skuldir ríkissjóðs viðkomandi lands fást ekki greiddar að fullu. Mörgum er enn í fersku minni þegar ríkisstjórn Argentínu lýsti því yfir í desember 2001 að hún gæti ekki staðið við lánaskuldbindingar ríkisins og leiddi þetta til stærsta greiðsluþrots ...
Náttúruréttur er sú hugsun að þau gæði sem hafa náttúrulegt aðdráttarafl fyrir alla menn eigi að vera siðferðilegur grundvöllur þeirra laga sem yfirvöld setja. Svokölluð „náttúrulög“ eru þau boð eða fyrirmæli sem skynsemi okkar telur að sýni þessum gæðum rétta virðingu. Mannlegar athafnir eru dæmdar siðferðilega ...
Fullskipað 3,3-tvíhlutanet: Er hægt að teikna það án þess að leggirnir skerist?Þessi þraut er gjarnan orðuð á þennan hátt: Leggja þarf lagnir frá gasveitu, rafveitu og vatnsveitu í þrjú hús. Er hægt að gera það án þess að nokkurs staðar þurfi ein lögn að liggja yfir aðra?
Þrautin er oft lögð fyrir jafnt börn se...
Stutta svarið við þessari ágætu spurningu er bæði já og nei, eftir því hvernig hún er skilin. Einkum eru það orðin „vísindi“ og „forsendur“ sem þurfa skoðunar við.
Sterk hefð er fyrir því í vísindum að menn huga að þeirri þekkingu sem fyrir er, áður en þeir setja fram veruleg nýmæli, og sýna það með því að vísa...
Sagnir um hafmeyjar eru gamlar og eiga meðal annars rætur í grískum goðsögum um sírenur. Sírenurnar voru raddfagrar söngmeyjar í fuglslíki að neðanverðu er seiddu til sín menn með yndisfögrum söng og drápu þá. Ýmsum sögum fer af uppruna þeirra en þeim ber þó flestum saman um að sírenurnar hafi hlotið fuglshaminn s...
Norður-Kórea er án vafa eitt sérkennilegasta ríki heims. Allt frá stofnun þess árið 1948 hefur það farið eigin leiðir og takmarkað mjög samskipti sín við önnur ríki, að frátöldum Sovétríkjunum og Alþýðulýðveldinu Kína eftir stofnun hins síðarnefnda árið 1949.
Þótt bæði Kóreuríkin hafi farið illa út úr Kóreustrí...
Eitt helsta einkenni fornaldarsagna er tenging þeirra við fortíðina, hina óræðu „fornöld“, sem markast af baklægum efnivið þeirra um leið og hún mótar grundvöll – ásamt öðrum einkennum – að því sem kalla mætti sjálfstæða grein bókmennta eða tegund. Fortíðin er að vísu misfjarlæg og nær allt frá átakatímum evrópskr...
Í heild hljóðaði spurningin svona:Er hægt að spá fyrir um hvort að komandi vetur verður harður eða mildur með lengri fyrirvara? Er einhver fylgni milli t.d. sumars og veturs eða þá milli ára (t.d. ef tveir mildir vetur í röð auki líkur á hörðum vetri).
Því miður er ekki enn hægt með vissu að sjá fyrir fram hvo...
Litir verða til í merkilegu samspili milli tíðnidreifingar í ljósinu kringum okkur og sjónskynjunarinnar sem fer fram bæði í auga, sjóntaug og heila. Samkvæmt eðlisfræðinni getur rafsegulsvið myndað bylgjur sem berast um rúmið rétt eins og bylgjur á vatnsfleti eða hljóð í lofti. Ljósið sem við sjáum með augunum er...
Upphafleg spurning var sem hér segir:Gerist það sama aftur ef við endursköpum nákvæmlega sömu aðstæður alls staðar, til dæmis spólum tímann afturábak? Er þá ekki í rauninni allt fyrirfram ákveðið, það er að segja ræðst af aðstæðum, og hægt að reikna það út?Þetta eru í rauninni þrjár ólíkar spurningar:Gerist það sa...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!