Í stuttu máli er svarið að það eru engin sérstök neðri mörk á því hversu mikið hægt er að þjappa gögnum. Það er þó ekki hægt að þjappa þeim niður í ekki neitt, því að gögnin verða að komast til skila. En það fer eftir eðli gagnanna og þeim forsendum sem við gefum okkur, hversu mjög við getum þjappað.
Hægt e...
Upphafleg spurning var sem hér segir:Samrýmist það vísindalegri hugsun að lífverur, og þar á meðal hinn vitiborni maður, hafi þróast úr dauðum jarðefnum án þess að nokkur sköpunarmáttur hafi verið þar að verki?Þetta samræmist einmitt vísindalegri hugsun. Um leið og við færum að gera ráð fyrir því að sérstakur utan...
Snæfellsnes, eða nánar tiltekið Snæfellsnes- og Hnappadalssýsla, er að flatarmáli samtals 2.198 ferkílómetrar (km2). Af því eru 1674,5 km2 (76,2%) gróið land, 76 km2 (3,5%) eru þaktir vatni (að meðtöldum nokkrum innfjarðarósum), 15,5 km2 (0,7%) eru undir jökli, en 432 km2 (19,6%) er land sem er minna en hálfgróið,...
Til þess að segja til um flatarmál Vestfjarða þarf fyrst að skilgreina hvað er átt við með Vestfjörðum. Er verið að tala um hinn eiginlega Vestfjarðakjálka eða stjórnsýslulega skilgreiningu á Vestfjörðum?
Á landakorti af Íslandi sést vel hversu lítið vantar upp á að Gilsfjörður, sem gengur inn úr botni Breiðafj...
Sveskjur eru þurrkaðar plómur, sem eru ávextir plöntunnar Prunus domestica L. Sveskjur koma aðallega frá Bandaríkjunum, nánar tiltekið Kaliforníu, og Frakklandi. Um hægðalosandi áhrif af sveskjum hefur lengi verið vitað og er neysla þeirra talin meðal þeirra úrræða sem hægt er að grípa til við harðlífi. Ekki er fu...
Upplausnarmörk eru tengd öldulengd (λ) ljóssins sem notað er við myndyfirfærslu. Ljósið getur ekki flutt upplýsingar um breytingar á áferð yfirborðs á lengdarkvarða sem er minni en öldulengd.
Ef við gætum valið að vild öldulengd ljóss sem notað er við speglun kæmum við að upplausnarmörkum sem er fjarlægð m...
Oddur Vilhelmsson er prófessor í líftækni við Háskólann á Akureyri. Hann fæst einkum við rannsóknir á örverum í náttúrunni, vistfræði þeirra og notagildi í umhverfislíftækni.
Þrátt fyrir smæð þeirra, þá mynda örverur drjúgan hluta af massa lífhvolfsins. Þær finnast í öllum vistgerðum og geta dafnað, jafnvel myn...
Upprunaleg spurning Jóns Sævars hljóðaði svo:Getur hagvöxtur verið endalaus? Það er getur þjóðar- eða landsframleiðsla haldið áfram að aukast að eilífu? Eða er þetta bóla sem springur einhvern tíma?
Verg landsframleiðsla (VLF) er skilgreind sem markaðsvirði allrar vöru og þjónustu sem framleidd er til endanlegr...
Bæði Hallormsstaðaskógur og Vaglaskógur eru enn að stækka að flatarmáli. Girðingin sem friðar Hallormsstaðaskóg er enn svolítið fyrir ofan efstu mörk skógarins og er birki enn að sá sér í átt að henni. Girðingin er í um 300 metra hæð yfir sjávarmáli og er greinilegt að það er ekki ofan þeirra skógarmarka sem veðu...
Desibel er mælikvarði á hljóðstyrk. Styrkur hljóðs (I) er skilgreindur sem afl eða afköst (P) á flatareiningu (A) eðaI = P / AAfl eða afköst er aftur á móti orka á tímaeiningu þannig að hljóðstyrkurinn lýsir orkuflutningnum sem verður með hljóðinu á tímaeiningu.
Nú er þess að gæta að eyrun nema hljóðstyrk ekki...
Goðaland er svæðið þegar komið er að norðanverðu niður af Fimmvörðuhálsi. Það afmarkast af Merkurtungum og Múlatungum í vestri og austri en af Krossá í norðri. Norðan Krossár heitir Þórsmörk en algengt er að það örnefni sé mishaft um Goðaland. Þórsmörk er eingöngu svæðið handan Krossár, tungan sem þar liggur milli...
Ef kjarnorkusprengja springur í geimnum myndast ekki höggbylgja. Í geimnum er ekkert andrúmsloft og agnirnar sem losna við kjarnahvörfin í sprengingunni geta þess vegna ekki rekist á neitt.
Ef kjarnorkusprengja springur í lofthjúpi, eins og er á jörðinni, myndast höggbylgja þegar agnir sem losna með gífurlegum...
Upprunalega spurningin hljóðaði svona:
Bandvefslosun er vinsæl núna á líkamsræktarstöðvum. Er þetta alvöru fyrirbæri sem er gagnlegt?
Bandvefur er mjög víða í líkamanum, í raun og veru alls staðar. Sá bandvefur sem oftast er talað um í samhengi við bandvefslosun er bandvefsslíður (e. fascia) sem umvefur að...
Flestir Vesturlandabúar líta líklega á lýðræði sem rótgróið, sjálfsagt fyrirbæri en því fer fjarri að svo sé ef grannt er skoðað. Með góðum rökum má halda því fram að einu Evrópuríkin sem búið hafa við stöðugt og ótruflað lýðræði síðustu 50 árin séu Bretland, Benelux-löndin og Norðurlönd, að Finnlandi undanskildu....
Unnur Birna Karlsdóttir er forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Austurlandi. Hún lauk BA-gráðu í sagnfræði við Háskóla Íslands árið 1992, kennslu- og uppeldisfræði árið 1993, MA-gráðu í sagnfræði árið 1996 og doktorsgráðu í sömu grein við sama skóla árið 2010.
BA-rannsókn hennar fjallaði um lög um fó...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!