Ritið sem við köllum Biblíu er í raun margar bækur enda þýðir orðið biblía bækur. Við skiptum Biblíunni oftast í tvennt og tölum um Gamla testamentið og Nýja testamentið. Í Gamla testamentinu eru 39 rit og það er upprunalega ritað að mestu á hebresku. Í Nýja testamentinu eru 27 rit og það var fyrst ritað á grísku....
Hjá Hagstofu Íslands er að finna upplýsingar um það hversu margar bækur er gefnar út á Íslandi á hverju ári. Hins vegar eru nýjustu upplýsingarnar frá árinu 2004 og þess vegna nær þessi umfjöllun því miður bara yfir tímabilið 2000-2004 en ekki til ársins 2007 eins og spurt er um.
Á árunum 2000-2004 komu alls ú...
Starfsfólk Vísindavefsins þarf ekki endilega að hafa margar bækur við höndina til að svara spurningum. Við erum auðvitað með ýmis uppflettirit, orðabækur, alfræðirit og fleira og ef okkar vantar sérstaklega bækur getum við auðveldlega fengið þær að láni hjá Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni. Þegar við svö...
Við höfum ekki nákvæma tölu við höndina en gera má ráð fyrir að árið 1992 hafi komið út rúmlega 2000 rit.
Af þeim flokkast sennilega rúmlega 1800 sem bækur eða bæklingar og um 200 sem hljóðrit, það er geisladiskar, snældur, hljómplötur og margmiðlunardiskar.
Hægt er að finna upplýsingar um nákvæma tölu í Ís...
Hér er svarað eftirfarandi spurningum:Hvað eru apókrýfar bækur Biblíunnar?Hvar er hægt að nálgast þær?Eru apókrýfar bækur Biblíunnar bannaðar af sumum kirkjudeildum en ekki öðrum?
Hugtakið apókrýfur er notað í dag í biblíuvísindum og almennum trúarbragðafræðum um rit sem mynda hluta af rituðum trúararfi hinna fjö...
Maður þarf að læra að lesa til að geta:
ratað eftir skiltum og kortum
farið í ferðalög á Íslandi og í útlöndum
flett upp símanúmerum í símaskrá
lesið texta í sjónvarpi
lesið hvað er í matnum sem maður kaupir
lesið dagblöð og vitað hvað á sér stað í heiminum
þekkt í sundur bækur og valið þær sem maður vill...
Bókin í þeirri mynd sem við þekkjum hana er uppfinning Rómverjanna. Bók með síðum sem hægt er að fletta, svonefnt codex, festist í sessi undir lok þriðju aldar. Áður höfðu menn lesið af rollum, en það voru lengjur úr papýrusblöðum vafin upp á kefli. Hægt er að lesa meira um bækur í svari við spurningunni Hvað er b...
Eoin Colfer fæddist í Wexford á suðausturströnd Írlands árið 1965. Strax í barnaskóla fékk hann áhuga á að skrifa og nú er hann einn af þekktari barnabókahöfundum heims.
Fyrsta bók hans Benny and Omar kom út árið 1998. Segja má að Colfer hafi öðlast alþjóðlega frægð eftir að fyrsta bókin um Artemis Fowl kom út ...
Orðið bók barst í íslenskt tungumál með kristilegum lærdómi, líklegast úr fornensku þótt til séu lík orð í öðrum skyldum tungumálum frá sama tíma. Það er að minnsta kosti viðeigandi að ætla að fyrirbærið bók hafi fundið sér leið til Íslands með Biblíunni og öllum „bókum“ hennar, en gríska orðið biblos þýðir einmit...
Ágúst Einarsson er prófessor emeritus við Háskólann á Bifröst og var áður prófessor við Háskóla Íslands. Hann hefur fengist við rannsóknir í menningarhagfræði, sjávarútvegsfræðum, smásöluverslun og heilbrigðismálum.
Ágúst hefur meðal annars rannsakað skipulag smásöluverslunar og hagræn áhrif menningar í alþjóð...
Upphaflega hljóðaði spurningin svona:
Hvað þýðir ISBN-talan fremst í íslenskum bókum? T.d. ISBN 9979-1-0047-8.
ISBN stendur fyrir International Standard Book Number, og kallast á íslensku alþjóðlegt bóknúmer. Alþjóðlega bóknúmerið er nokkurs konar einkennistala sem þjónar þeim tilgangi að greina eitt rit sem bes...
Á Vísindavefnum er að finna svar Kristínar Loftsdóttur við spurningunni:Hvers vegna eru konur íslamstrúar svona kúgaðar í klæðaburði og hversdagslífi? en það fjallar um konur og íslamstrú. Þeim sem nota svör af Vísindavefnum sem heimildir í ritgerðum, svo og annað efni af Netinu, er bent á svar Önnu Vilhjálmsdóttu...
Desmond Bagley var enskur spennusagnahöfundur. Hann fæddist 29. október 1923 í bænum Kendal í Cumbria-héraði og lést 12. apríl 1983 á sjúkrahúsi í Southampton, eftir að hafa búið seinustu æviár sín á Ermarsundseyjunni Guernsey.
Bagley ferðaðist víða og bjó meðal annars í Suður-Afríku í 15 ár þar sem hann hóf ...
Í heild sinni hljóðaði spurningin svona:Hvað skrifaði Alexandre Dumas margar bækur? Gerði hann bara sögulegar bækur um konungsfjölskylduna í Frakklandi?
Alexandre Dumas (1802-1870) var óhemju afkastamikill franskur rithöfundur, en eftir hann liggja á annað hundrað verka. Þekktustu verk hans eru án efa Skytturnar ...
Fyrstu bækur Þórbergs Þórðarsonar voru ljóðakverin Hálfir skósólar sem kom út árið 1915, og Spaks manns spjarir (1917). Þau voru sameinuð og aukið við þau í bókinni Hvítum hröfnum sem gefin var út árið 1922.
Árið 1924 kom út bók Þórbergs Bréf til Láru sem markaði ekki aðeins tímamót í ævi Þórbergs, heldur einni...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!