Þegar fólk verður stressað eykst magn streituhormónsins kortisóls í blóði. Nánar tiltekið eykst svokallað stýrihormón nýrnahettubarkar (SHNB eða ACTH) sem aftur eykur seyti kortisóls og skyldra streituhormóna í blóðrásina. Þetta streituviðbragðakerfi veldur örvun og svefnleysi. Rannsakendur við Svefnrannsókna- og ...
Í stuttu máli er svarið; já það er hægt að deyja úr hræðslu.
Hræðsla er eðlileg tilfinning og lýsir sér í líffræðilegum viðbrögðum við ytri aðstæðum. Eiríkur Örn Arnarson segir í svari sínu við spurningunni Hver er munurinn á kvíða og hræðslu?Hræðsla er sértæk og tengist ákveðnum stað, aðstæðum, einstaklingi eð...
Flestum er ljóst að lífsstíll getur haft mótandi áhrif á heilsuna. Í þessu felast ýmis tækifæri til að auka vellíðan og draga úr líkum á sjúkdómum. Það er í okkar höndum hvað og hversu mikið við borðum, hvort við hreyfum okkur, hvort við reykjum, og hvort og hvernig við notum áfengi. Ýmsum öðrum lífsstílsþáttum er...
Þeir sem eru andvaka þjást af svefnleysi og vaka um nætur. Svefnleysið getur verið tímabundið og varað eina nótt eða síendurtekið og þrálátt. Orsakir svefnleysis hjá mönnum geta verið af ýmsum toga, svo sem vegna verkja frá stoðkerfi, hitakófs á breytingaskeiði, tíðra næturþvagláta, andþyngsla vegna hjarta- eða lu...
Svefntruflanir geta orsakast af mörgu. Með aldri aukast svefntruflanir og eldra fólk á oft erfiðara með að sofna en þeir sem yngri eru og það vaknar frekar upp á nóttunni.
Eins getum við vaknað upp á nóttuni vegna líkamlegra kvilla, vegna verkja, ef við þurfum að pissa eða erum með andþyngsli.
Þeir sem eiga ...
Samkvæmt því sem næst verður komist er viðurkennt met í vöku án aðstoðar lyfja 264 klukkutímar eða 11 sólahringar. Þetta gerðist árið 1964 og þar átti í hlut 17 ára gamall bandarískur piltur að nafni Randy Gardner. Þessi langa vaka var í tengslum við vísindaverkefni sem hann vann að en hann vildi slá fyrra heimsme...
Snertiskyn telst til húðskyns eins og varmaskyn (hitaskyn og kuldaskyn). Snertiskynið er elsta, frumstæðasta og þaulsetnasta skyn okkar. Það er fyrsta skynið sem við upplifum í móðurkviði og það síðasta sem við missum áður en við deyjum.
Snerting er skynjuð þegar snertinemar í húðinni eða vefjum beint undir hen...
Ekki er talið ráðlegt að borða stóra og þunga máltíð rétt fyrir svefninn því það eykur líkur á meltingartuflunum og getur ruglað svefnmynstrið. Best er að borða kvöldmat að minnsta kosti tveimur tímum fyrir svefninn. Aftur á móti getur verið gott að fá sér létt snarl fyrir háttinn sem inniheldur amínósýruna tryptó...
Fátt bendir til þess að mjólkursýra hafi með beinum hætti neikvæð áhrif á uppbyggingu vöðva þó ekki sé hægt að útiloka það alveg. Þegar mjólkursýrumyndun er hins vegar orðin mjög mikil í vöðvum, breytast oftast ýmsir aðrir þættir á sama tíma í líkamanum eins og til dæmis blóðstyrkur ýmissa hormóna. Þessar breyti...
Svefnþörf og svefntími er einstaklingsbundinn. Sumir eru endurnærðir eftir 6 tíma svefn, en öðrum nægir ekki minna en 9 tímar. Þá eru sumir nátthrafnar, en aðrir morgunhanar.
Svefntruflanir eru algeng ástæða þess að fólk leitar læknis og er talið að um fimmtungur íbúa á Vesturlöndum glími við truflaðan svefn e...
Offita er sívaxandi heilbrigðisvandamál í hinum vestræna heimi og er stundum talað um offitufaraldur. Gjarnan er miðað við að fólk sé offeitt þegar svokallaður líkamsmassatuðull (BMI) er kominn yfir 30 en nánar er fjallað um hann í svari sama höfundar við spurningunni Hvað er BMI?
Fituforði líkamans er undir l...
Tvær nýrnahettur (e. adrenal glands) eru í líkamanum, ein ofan á hvoru nýra. Þær eru þríhyrningslaga og eru rúmlega 1 cm á hæð og um 7,5 cm á lengd. Nýrnahettur eru innkirtlar, sem þýðir að þær mynda hormón.
Hvor nýrnahetta er gerð úr tveimur meginhlutum, að utanverðu er svokallaður börkur sem umlykur merg að...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!