Þær upplýsingar fengust frá Seðlabanka Íslands að einn milljarður króna í fimm þúsund króna seðlum sé 186,7 kíló að þyngd og því sem næst fjórðungi úr rúmmetra að rúmmáli. Þessar tölur miðast við að seðlarnir séu ónotaðir.
Til að setja þessar tölur í samhengi má benda á að eins lítra mjólkurferna vegur um það bil...
Milljón er sem kunnugt er þúsund þúsundir og milljarður er þúsund milljónir. Næsta tala sem hefur sérstakt heiti í þessum stiga er billjónin sem er milljón milljónir. Síðan kemur trilljónin sem er milljón billjónir og kvadrilljón sem er milljón trilljónir. Þá kemur kvintilljón, sextilljón og svo framvegis. Forskey...
Í fjárlögum fyrir árið 2003 er gert ráð fyrir að tekjur svokallaðs A-hluta ríkissjóðs verði 271,6 milljarðar króna og útgjöld 260,1 milljarður. Langstærstur hluti umsvifa ríkisins telst til þessa A-hluta. Nokkur ríkisfyrirtæki með mjög sjálfstæðan rekstur teljast til B-hluta og er gert ráð fyrir að þau skili samta...
Í fyrsta lagi eru um 6000 stjörnur sýnilegar á næturhimninum með berum augum. Við sjáum þó aldrei nema helminginn af þeim í einu af því að helmingur himinsins er fyrir neðan sjóndeildarhring. Sjá nánar um þetta í svari Sævars Helga Bragasonar við spurningunni Hversu margar stjörnur sjást á heiðskírri nóttu?
Í ...
Eins og fram kemur í svari okkar við spurningunni Hver eru heiti allra eininga metrakerfisins? Hvað ræður nafngiftinni? þá er einn milljarður nanómetra í einum metra. Í þessu sama svari er tafla sem sýnir hvað forskeyti metrakerfisins merkja.
Í svari Viðars Guðmundssonar við spurningunni Hvað er nanótækni? kemu...
Í heild hljóðaði spurningin svona:Heyrði einhvern í viðtalsþætti (um eitthvað allt annað) halda því blákalt fram að það væri ekki lengra síðan en á 10. áratug síðustu aldar sem jarðarbúar voru helmingi færri en í dag - Getur þetta virkilega staðist?
Þegar þetta er skrifað, vorið 2020, er talið að jarðarbúar séu...
Í svari okkar við spurningunni Hvað búa margir í heiminum? kemur fram að mannkynið er nú talið vera um 6,2 milljarðar en einn milljarður er þúsund milljónir eða 109.
Til samanburðar má nefna að Ísland er rúmir 100.000 ferkílómetrar að stærð. Hver ferkílómetri er milljón fermetrar þannig að landið er samtals rúm...
Á síðu Manntalsskrifstofu Bandaríkjanna er teljari sem sýnir áætlaðan mannfjölda í heiminum. Þar kemur fram að þegar þetta svar er endurskoðað (28. júní 2019) er áætlaður mannfjöldi í heiminum:7.581.592.200eða rétt rúmur sjö og hálfur milljarður.
Okkur er ekki kunnugt um síðu á vefnum þar sem konur og karlar ...
Eins og kemur fram í þessu svari eru núlifandi jarðarbúar rúmlega 6 milljarðar. Í svari Gísla Gunnarssonar við spurningunni Hvað hafa margir fæðst á jörðinni? kemur hins vegar fram að alls hafi um 27,5 milljarðar manna fæðst hingað til. Af þessu má draga þá ályktun að 21,5 milljarður hafi dáið.
Svarið við spurn...
Samkvæmt upplýsingum frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO) er talið að undir lok síðustu aldar hafi að minnsta kosti þriðjungur allra jarðarbúa fimmtán ára og eldri reykt.
Tíðni reykinga er mjög breytileg á milli landa en almennt er hlutfall þeirra sem reykja nokkuð hærra í þróunarlöndum og í löndum...
Fótbolti er vinsælasta íþrótt í heimi. Samkvæmt tölum frá FIFA (frá árinu 2000) leika rúmlega 240 milljónir manna um heim allan fótbolta. Það þýðir að einn af hverjum 25 iðka knattspyrnu reglulega. Í dómarastétt knattspyrnunnar eru um 5 milljónir manna.
Knattspyrna er leikin í öllum heimshornum. Ef börn og aðr...
Vísindamenn telja ekki að þeir geti séð aftur í Miklahvell ef þeir horfa nógu langt út í geiminn. Ástæðan er sú að fyrstu milljón árin var heimurinn ógegnsær og því verður aldrei hægt að sjá nær Miklahvelli en það.
Sennilega er þó nær að gera ráð fyrir að ekki muni unnt í náinni framtíð að sjá miklu nær Miklah...
Á vef Hagstofu Íslands má nálgast öll þau gögn sem þarf til að reikna út svar við þessari spurningu og reyndar fjölmörgum öðrum.
Nýjustu tölur um tekjur og atvinnuþátttöku Íslendinga eru frá árinu 2008. Þar kemur meðal annars fram að fjöldi starfandi einstaklinga var 178.600, þar af voru 140.600 í fullu starfi ...
Frumbyggjar í Ameríku þekktu tóbakið löngu á undan Evrópubúum og notuðu það til dæmis við helgiathafnir. Astekar reyktu til dæmis reyrstilka fyllta með tóbaki, annars staðar voru tóbakslaufin kramin og þeim rúllað upp í hýði af maís eða öðrum jurtum áður en þau voru reykt. Laufin voru einnig tuggin. Á myndinni má ...
Hægt er að beita nokkrum aðferðum til að finna aldur alheimsins og þessum aðferðum ber ekki alveg saman. Auk þess þróast aðferðir og hugmyndir ört. Um þessar mundir telja flestir aldur alheimsins vera á bilinu 11-20 milljarðar ára og margir þrengja bilið frekar og tala um 12-14 milljarða.
Þetta er gífurlega lan...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!