Sólin Sólin Rís 04:20 • sest 22:46 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 22:56 • Sest 14:35 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 10:51 • Síðdegis: 23:16 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 04:39 • Síðdegis: 16:58 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Hver var fyrsti forseti Íslands?

HMH

1944
Fyrsti forseti lýðveldisins var Sveinn Björnsson (1881-1952), sem var kjörinn 17. júní 1944 og sat til dánardægurs 1952.

Annar forseti Íslands var Ásgeir Ásgeirsson (1894-1972) sem sat í 16 ár, frá 1952—1968.

Sveinn Björnsson var fyrsti forseti lýðveldisins.

Árið 1968 varð Kristján Eldjárn forseti (1917-1982). Hann sat frá 1968 til 1980.

Vigdís Finnbogadóttir var fjórði forseti lýðveldisins og sat 16 ár, líkt og Ásgeir Ásgeirsson, frá 1980-1996 er Ólafur Ragnar Grímsson var kjörinn fimmti forseti Íslands. Ólafur Ragnar hefur setið lengst allra á forsetastóli, alls í 20 ár eða fimm kjörtímabil.

Sjötti forseti Íslands er Guðni Th. Jóhannesson sem tók við af Ólafi Ragnari árið 2016.

Mynd:

Höfundur

heimspekingur og fyrrverandi starfsmaður Vísindavefsins

Útgáfudagur

29.11.2000

Síðast uppfært

4.2.2021

Spyrjandi

Fanndís Hávarðardóttir, Sara Sigurbjörnsdóttir, Margrét Brynja, Ísabella Ósk og fleiri

Tilvísun

HMH. „Hver var fyrsti forseti Íslands?“ Vísindavefurinn, 29. nóvember 2000, sótt 27. júlí 2024, https://visindavefur.is/svar.php?id=1192.

HMH. (2000, 29. nóvember). Hver var fyrsti forseti Íslands? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=1192

HMH. „Hver var fyrsti forseti Íslands?“ Vísindavefurinn. 29. nóv. 2000. Vefsíða. 27. júl. 2024. <https://visindavefur.is/svar.php?id=1192>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

...