Sólin Sólin Rís 07:36 • sest 18:57 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 00:00 • Sest 00:00 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 08:57 • Síðdegis: 21:22 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 02:46 • Síðdegis: 15:16 í Reykjavík

LeiðbeiningarTil baka

Sendu inn spurningu

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Er búið að finna lækningu við krabbameini sem haldið er leyndri fyrir almenningi?

Valgerður Jakobína Hjaltalín

HHÍ í flokkum
Spurningin í fullri lengd hljóðaði svona:
Góðan dag.

Ætla hér að spyrja um lækningu við krabbameini. Ég hef heyrt frá mínum kennara sem kennir rafeindatækni að það sé til lækning við krabbameini og hafi verið búið að uppgötva hana fyrir löngu síðan en allt þaggað niður af lyfjamafíunni. Það var vísindamaður, sem ég man ekki hvað hét, sem fann upp rafeindatæki á síðustu öld sem gat læknað krabbamein, alnæmi og fleiri sjúkdóma. Þá er það þannig, eftir því sem ég skildi þetta, að hver krabbameinsfruma er með einhversskonar rafeind utan á sér og með þessu tæki sem gefur einhverja rafeind á móti hinni og við það eyðist rafeindin á frumunni og fruman drepst. Þessu reyndi vísindamaðurinn að koma á framfæri en var þaggaður niður af lyfjamafíunni.

Lengi hefur mönnum liðið eins og mannkynið sé á barmi þess að uppgötva lækningu við krabbameini og lengi hafa menn jafnframt spurt sig: hvað tefur? Einhverjir hafa furðað sig svo á langdreginni bið eftir allsherjarlausn við krabbameinum að vangaveltum um það hvort lausninni sé haldið leyndri fyrir almenningi hefur verið varpað fram öðru hvoru. Það má rekja í löngu máli hvers vegna sú hugmynd stenst ekki skoðun, en kannski er hjálplegt að spyrja sig einfaldrar spurningar: hverjir deyja úr krabbameinum? Svarið er hver sem er, þvert á þjóðfélagshópa, þótt vissulega sé aðgengi að heilbrigðisþjónustu misskipt í heiminum og ýmsir lífstílsþættir og aldur hafi áhrif.[1][2][3][4][5]

Ef sú staða breytist og viss þjóðfélagshópur verður skyndilega undanskilinn því að deyja úr sjúkdómnum meðan aðrir sitja enn í súpunni er mögulega orðið tímabært að fylkja liði niður á Austurvöll og krefjast svara!

Vandinn við að tala um lækningu við krabbameini (í eintölu) er sá að krabbamein er í raun ekki einn afmarkaður sjúkdómur, heldur regnhlífarheiti yfir sjúkdóma sem einkennast af því að áður heilbrigðar frumur hætta að hegða sér með eðlilegum hætti í samfélagi fruma. Ekki eru krabbamein aðeins fjölbreytt sín á milli, hvort sem borið er saman milli einstaklinga eða vefja, heldur eru þau jafnframt ólík innbyrðis. Það er að segja, mikill fjölbreytileiki getur verið milli fruma í sama æxli.[6][7] Framgangur sjúkdómsins treystir raunar á þennan fjölbreytileika og þar stendur hnífurinn í kúnni. Hvernig skal finna lausn á sjúkdómi sem ekki aðeins hegðar sér með ólíkum hætti milli einstaklinga og vefja, heldur meira að segja milli fruma? Til að auka á vanda okkar eru krabbameinsfrumurnar annars að öllu öðru leyti eins og aðrar frumur í okkar líkama. Þær eru jú við sjálf. Hvernig skal ráða niðurlögum ákveðins hóps fruma, en láta aðrar ósnertar?

Vísindakonan Marie Curie um það bil 1900. Vísindalegar uppgötvanir eru ekki gerðar af mönnum í jakkafötum sem plotta heimsyfirráð, heldur af vísindafólki sem kúldrast tímunum saman inni á rannsóknarstofum og hefur af því takmarkaðan fjárhagslegan ávinning. Vísindakonan Marie Curie lést sjálf úr krabbameini sem var bein afleiðing af rannsóknum hennar.

Upphaflega spurningin vísar líklegast til Bandaríkjamannsins Royal Raymond Rife (1888-1971), sem fullyrti að ljóssmásjá hans gæti greint veirur og einhvers konar örverur sem bæru ábyrgð á krabbameinum og fleiri sjúkdómum.[8] [9][10] Við skulum því skoða uppfinningu Rife sérstaklega hér, en þegar kemur að sambærilegum dæmum úr sögunni er af nógu að taka. Í stað þess að kafa ofan í tæknina sem slíka skulum við reyna að nálgast þá spurningu hvað greinir uppgötvanir og uppfinningar, svo sem tækni Rife, sem hafa lent í flokknum skottulækningar og gervivísindi, frá þeim sem hafa öðlast viðurkenningu.

Ýmislegt er á reiki varðandi bakgrunn og menntun Royal Raymond Rife en víst er að hann var áhugamaður um smásjár. Á þriðja og fjórða áratug síðustu aldar smíðaði hann ljóssmásjár sem hann fullyrti að gætu greint veirur og aðrar örverur sem væru ógreinanlegar með annarri samtíma tækni. Veirur og örverur þessar yllu sjúkdómum, svo sem krabbameini, og þær gæti hann jafnframt upprætt með því að beina að þeim ákveðinni bylgjulengd sem léti annars heilbrigðar líkamsfrumur óáreittar. Þessar uppgötvanir Rife fengu mikla athygli í pressunni, en vissulega dræmar undirtektir í vísindasamfélaginu þótt einhverjir hefðu sýnt þeim áhuga, að minnsta kosti til að byrja með. Það er óþarfi að mótmæla því að Rife hafi séð eitthvað áhugavert í smásjám sínum, en stökkið úr því að sjá agnir hreyfast í smásjánni og yfir í það að þessar agnir væru örverur sem bæru ábyrgð á sjúkdómum eins og krabbameini, var stórt.[11][12][13]

Royal Raymond Rife ásamt græjunum sínum árið 1929.

Það eru vissulega þekkt krabbamein sem hafa náin tengsl við sýkingar. Til að mynda tengist HPV-veiran leghálskrabbameini og bakterían Helicobacter pylori tengist magakrabbameini. Hvers vegna eru það viðtekin vísindi, en ekki krabbameins-örverur Rife? Í tilviki H. pylori var til dæmis birt grein árið 1991 (og fleiri mikilvægar greinar um það leyti) sem tengdi sýkingar af völdum H. pylori við magakrabbamein og fleiri magasjúkdóma.[14] Þessi uppgötvun gerði öðru vísindafólki kleift að spyrja frekari spurninga og setja fram eigin tilgátur til að prófa. Sem dæmi var hægt að spyrja: Veldur H. pylori-sýking krabbameini með beinum hætti? Þessa spurningu má nálgast með því að sýkja frumuræktir með H. pylori. Það var jafnframt gert og síðar meir í dýrum og þannig hefur þekking okkar á tengingu H. pylori við magakrabbamein aukist sem og möguleikar okkar á því að hagnýta þekkinguna.[15][16] Í tilviki Rife reyndist öðru vísindafólki ekki unnt að komast að sömu niðurstöðu, hvorki varðandi dularfullu krabbameinsörverurnar né tæknina til að uppræta þær. Það dugar nefnilega ekki að einn vísindamaður geri uppgötvun og segi frá henni hversu áhugaverð sem sú uppgötvun kann að vera.

Mynd af <em>Helicobacter pylori</em>, tekin í rafeindasmásjá. Á myndinni má jafnframt sjá svipur bakteríunnar sem gerir henni kleift að hreyfa sig.

Mynd af Helicobacter pylori, tekin í rafeindasmásjá. Á myndinni má jafnframt sjá svipur bakteríunnar sem gerir henni kleift að hreyfa sig.

Þeir sem setja fram nýjar aðferðir og kenningar bera ábyrgð á því að færa sönnur fyrir fullyrðingum sínum. Ef ekki hefur verið gerð fullnægjandi grein fyrir því hvernig niðurstöður fengust eða þeirri aðferðarfræði sem beitt var, er ómögulegt að sannreyna niðurstöðurnar og það grefur óhjákvæmilega undan trúverðugleika þeirra. Vísindafólki sem sannarlega hefur gert merkar uppgötvanir er almennt mikið í mun að sannfæra vísindasamfélagið um gildi niðurstaðanna. Að því undanskildu þegar Isaac Newton uppgötvaði calculus og sá ekki ástæðu til að deila því með umheiminum svo árum skipti.[17]

En hvað svo, er lækning við krabbameinum utan seilingar? Ef við horfum til baka, jafnvel bara yfir okkar eigin líftíma, má hæglega sjá hve miklar framfarir hafa orðið í krabbameinsmeðferðum, sem og krabbameinsforvörnum og greiningum. Horft aftur til ársins 1975 voru 5-ára horfur (þegar horft er á krabbamein sem heild) um 50% í Bandaríkjum, nú eru sömu 5-ára horfur yfir 70%. Hvort um sig er mikil framför frá þeim tíma þar sem krabbameinsgreining var nánast undantekningarlaus dauðadómur – og í sumum tilvikum var spurningin aðeins hvort yrði banamein sjúklingsins: krabbameinið sjálft eða stórhættuleg skurðaðgerð, jafnvel án deyfingar. Saga krabbameinslækninga hefst á tímum þar sem læknar gátu aðeins horft á æxlin utan frá og reynt eftir fremsta megni að fjarlægja massann sem við þeim blasti. Nú á dögum höfum við tólin til að rannsaka krabbamein á sameindastigi og þar með hafa krabbameinsmeðferðir orðið sí markvissari og sértækari, og því gengur okkur jafnframt betur að draga úr ómarkvissum áhrifum á aðra heilbrigða vefi. Í ljósi þess hve fjölbreytt krabbamein eru hlýtur slík persónubundin (eða krabbameinsbundin) meðferð að vera leiðin fram á við.[18][19]

Myndir:

Tilvísanir:
  1. ^ Pukkala E., o.fl. (2009). Occupation and cancer – follow-up of 15 million people in five Nordic countries. Acta Oncologica, 48(5), 646-790. https://doi.org/10.1080/02841860902913546
  2. ^ Nobel Prize Outreach. (2011). Ralph M. Steinman – Biographical. NobelPrize.org. https://www.nobelprize.org/prizes/medicine/2011/steinman/biographical
  3. ^ Asher Jones. (2021). José Baselga, renowned oncologist, dies at 61. The Scientist. https://www.the-scientist.com/jos-baselga-renowned-oncologist-dies-at-61-68571
  4. ^ Laura Tran. (2025). Cancer researcher and pathologist Richard Scolyer dies at 59. The Scientist. https://www.the-scientist.com/cancer-researcher-and-pathologist-richard-scolyer-dies-at-59-74605
  5. ^ Wennborg, H., o.fl. (1999). Mortality and cancer incidence in biomedical laboratory personnel in Sweden. American Journal of Industrial Medicine, 35(4), 382–389. https://doi.org/10.1002/(SICI)1097-0274(199904)35:4<382::AID-AJIM9>3.0.CO;2-F. PMID: 10086198
  6. ^ Valgerður J. Hjaltalín. (2026). Geta allar lífverur fengið krabbamein? Vísindavefurinn. https://www.visindavefur.is/svar.php?id=28594
  7. ^ Helga Ögmundsdóttir. (2000). Hvað er það sem gerist í frumunum þegar við fáum krabbamein? Vísindavefurinn. https://www.visindavefur.is/svar.php?id=927
  8. ^ Rife, R. R. (1953). History of the development of a successful treatment for cancer and other virus, bacteria and fungi. Rife.de https://www.rife.de/files/history_rife_cancer_treatment.pdf
  9. ^ The ALSUntangled Group. (2013). ALSUntangled No. 23: The Rife machine and retroviruses. Amyotrophic lateral sclerosis and frontotemporal degeneration, 15(1-2), 157-159. https://doi.org/10.3109/21678421.2013.850802
  10. ^ Bracegirdle, B. (2003). Rife and his microscopes. Quekett journal of microscopy, 39, 459-473. https://www.quekett.org/wp-content/uploads/2021/01/Bracegirdle-Rife-microscopes.pdf
  11. ^ Rife, R. R. (1953).
  12. ^ The ALSUntangled Group. (2013).
  13. ^ Bracegirdle, B. (2003).
  14. ^ Forman, D., o.fl. (1991). Association between infection with Helicobacter pylori and risk of gastric cancer: evidence from a prospective investigation. BMJ, 302(6788), 1302-1305. https://doi.org/10.1136/bmj.302.6788.1302
  15. ^ Forman, D., o.fl. (1991).
  16. ^ Moss, S. F. (2016). The clinical evidence linking Helicobacter pylori to gastric cancer. Cellular and molecular gastroenterology and hepatology, 3(2), 183-191. https://doi.org/10.1016/j.jcmgh.2016.12.001
  17. ^ Smith, G. (2007). Isaac Newton. Stanford Encyclopedia of Philosophy. https://plato.stanford.edu/entries/newton
  18. ^ deVita, V. T. og Rosenberg, S. A. (2018). Two hundred years of cancer research. New English journal of medicine, 366(23), 2207-2214. https://doi.org/10.1056/NEJMra1204479
  19. ^ National Cancer Institute. (2026). SEER cancer stat facts: cancer of any site. SEER. https://seer.cancer.gov/statfacts/html/all.html

Höfundur

Valgerður Jakobína Hjaltalín

nýdoktor á Heilbrigðisvísindasviði HÍ

Útgáfudagur

1.10.2026

Spyrjandi

Viðar Valdimarsson

Tilvísun

Valgerður Jakobína Hjaltalín. „Er búið að finna lækningu við krabbameini sem haldið er leyndri fyrir almenningi?“ Vísindavefurinn, 1. október 2026, sótt 1. október 2026, https://visindavefur.is/svar.php?id=51640.

Valgerður Jakobína Hjaltalín. (2026, 1. október). Er búið að finna lækningu við krabbameini sem haldið er leyndri fyrir almenningi? Vísindavefurinn. https://visindavefur.is/svar.php?id=51640

Valgerður Jakobína Hjaltalín. „Er búið að finna lækningu við krabbameini sem haldið er leyndri fyrir almenningi?“ Vísindavefurinn. 1. okt. 2026. Vefsíða. 1. okt. 2026. <https://visindavefur.is/svar.php?id=51640>.

Chicago | APA | MLA

Senda grein til vinar

...